*
*
*
*
miðvikudagur, mars 31


Hummm
Vil byrja á að tak það skírt fram að þetta tengist ekkert pólitík hjá mér, hef bara einstaklega gaman af að velta mér upp úr svona asnalegum pælingum, en er það algengt að menn fari til Skotlands í fæðingarorlofi???







Djöfulsins viðbjóður
Hata helvítis snjó! Það á ekkert að vera snjór núna fjandinn hafi það!!







Áhugaverðar ponderingar áhugaverðs manns
Var að renna í gegnum blogg-linka listan minn sem er hér til hliðar, og rakst þá á ansi áhugaverðar ponderingar (er það löglegt orð??) hjá flugvallarstarfsmanninum fyrrverandi Ásgrími, þær er hægt að lesa -->HÉR<--. Rétt að taka það fram að ég er ekki sammála honum í öllu, þó mér reynist erfitt að finna eitthvað í þessum umrædda pistli til að fetta fingur út í.







Mikið lagt á ungan dreng
Er núna undanfarið búinn að vera að brasa í lokaverkefni í tölvuteikningu og framsetningu. Þetta er meiri vinna heldur en ég gerði mér grein fyrir í fyrstu, við eigum að hanna tæki eftir skilyrðunum sem sett voru fyrir hönnunarkeppnina, þessa þarna sem sem er alltaf sýnd hjá steingerfingnum í Nýjustu tæni og vísindum. Teikna það í þrívídd, hluta það í sundur, velta stykkjum þess til og frá og útskýra virkun þeirra. Var fyrir framan tölvuna til rúmlega 3 í nótt, og á enn mikið meir en nóg eftir. En djöfull var erfitt að koma sér fram úr í morgun, þurfti hreinlega að neyða mig fram úr rúminu og það fyrir hálf tilgangslausan tíma. Nú er ég bara ráfandi um ganga VR eins og uppvakkningur, hálf rænulaus af þreytu.
Hvað í andskotanum er ég þá að þvælast hér, afhverju kem ég mér þá ekki heim í rúmið, jaaa eða að teikna...






þriðjudagur, mars 30


Speki dagsins
It lies in the eyes up stiars, that he's totaly out driving and that he came compleatly from mountains, I teach in tit of him.







Voðalega getur maður verið einfaldur
Var í fyrilestir í Línulegri Algebru áðan, kannarinn mismælti sig og sagði graðgrunnur í stað raðgrunnur, og ég var eini maðurinn í stofunni sem flissaði. Já og svo hafði ég líka gaman af Starscky and Hutch, fullt af aulahúmor, sem er einmitt mitt aðalsmerki.






laugardagur, mars 27


Ógnar ástand
Ástandið í næsta nágreni við hann Kolbein virðist ekkert vera á leiðinni að skána. Ef það er ekki brotist inn í Búnaðarbankann þarna rétt fyrir ofan hann, sem virðist gerast nærri mánaðarlega, þá er brotist í -->10-11<--. Þetta fær mann til að ímynda sér að þarna sé á ferð afar kjarkaður ungur maður, að leggja það á sig að búa á svona átakasvæði, en þar sem ég þekki manninn þá er mér fyllilega ljóst að svo er ekki, sennilega þorir hann bara ekki að flytja í burtu.






föstudagur, mars 26


Verð ég alltaf svona fullur?
Rakst á þessa mynd inni á slinger.tk áðan og var bara að velta fyrir mér, verð ég alltaf svona fullur? Þ.s. ég man yfirleitt lítið eftir mínum eigin fylleríum þá varpa ég þessari spurningu fram til hverra þeirra sem telja sig eitthvað um það vita...







Bíó í stað brjósta
Fór í Bíó í gær á mynd sem ég bjóst við að væri nokkuð góð, en annað kom á daginn. Kvöldið hófst reyndar á því að Kolbeinn hringdi í mig og spurði mig hvort ég ætlaði ekki að kíkja með honum á karlakvöld hjá X-inu, þ.s. Stjáni nokkur Stuð hafði látið hann hafa nokkra miða á það. Ég var reyndar í fyrstu ekki alveg viss hvort ég nenti, en þegar hann sagði mér að það ætti að vera blautbols keppni á svæðinu þá þurfti ekki meiri fortölum við. Ég rauk strax af stað til Kolbeins svo við gætum nú verið sæmilega tímanlega á ferðinni, þ.s. á miðanum stóð að hann gilti aðeins meðan húsrúm leyfði. Svo ég bjóst við því að það væri geypilegt magn svona gjafamiða í umferð. Við Kolbeinn sátum svo þarna heima hjá honum drykklanga stund, þ.s. hann hafði kallað til liðs við sig, fyrir þessa sendiför, andleganleiðtoga sinn Gretti Jóhannesson. En eins og andlegra leiðtoga er siður, var hann frekar seinn fyrir. Meðan við biðum þess að Grettir léti sjá sig fengum við skyndilega þá flugu í höfuðið að bjóð með okkur manninum sem býr hinu megin við vegginn hjá Kolbeini, honum Ívari Erni. Þegar Grettir svo lox lét sjá sig, þá var haldið af stað niður í bæ, en við ákváðum skjót að gefa drauminn um blautbolskeppnina upp á bátinn er við ókum framhjá Jóni forseta, þ.s. herlegheitin áttu að fara fram, því þar fyrir utan biðu eitthvað nærri 50 ungir menn æstir í að sjá brjóstgóðar mær í blautum blússum. Svo við ákváðum þess í stað að skella okkur bara í Bíó í staðin, og fyrir valinu varð myndin Twisted, þó svo að ég hafi reynt að "agentera" fyrir því að farið yrði á American Splendor. En eins og áðurur sagði þá gerði ég mérr vonir um það að þarna væri á ferðinni ágætis ræma. En svo reyndist ekki vera, þetta var eiginlega bara ein stór Hollywood klisja, nema hvað að núna vara bara aðal töffarinn kona. Þetta átti að vera eitthvað rosa plott með svakalegu twist-i í lokin, en ég gat sagt þeim sessunautum mínum strax í hléinu hvað þetta twist myndi vera. Sem sagt mæli ekki með þessari mynd, allavega ekki í bíó, kannski alltílagi afþreying til að glápa á á vídeó, en ekki mikið meira en það.






fimmtudagur, mars 25


Python fær endurnýjun lífdaga
Greinilegt að fleiri hafi fengið sömu hugmynd og ég eftir að hafa horft á The passion of the Christ. Eitt það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég var að ganga út úr Bíó salnum að lokinni myndinni, var einmitt: "Djöfull ætti maður að fara að horfa á Life of Brian aftur". Lét einmitt verða af því nú á mánudaginn, fékk þá Þóri og Kolbein (kafteinninn eins og hann er þekktur í R.L.) til liðs við mig. En já hvað er ég eiginlega að bulla, jú það er nú þannig að ég heyrði sagt frá því í útvarpinu í gær, að fyrirtækið sem á dreyfingar réttinn að myndinni hygðist setja hana aftur í bíó hús um heim allan af tilefni þess hvað Passion er búin að vekja mikið umtal að undanförnu.
Talandi um Python, þá þyrfti maður nú að fara að drífa í að henda Holy Grail aftur í tækið fyrst maður hafði hana með sér í borgina, og jafna vel að koma á þessu Python kvöldi sem ég er búinn að ætla að standa fyrir allatíð frá því að ég ákvað að taka megnið af Python safninu með mér.






miðvikudagur, mars 24


Alvörunni áfram haldið
Þar sem greinilegt er að þessi síða mín er farin að taka á sig alvarlega mynd, með umfjöllun minni um fréttamennsku og bæjarpólitíkina í Eyjum, hef ég ákveðið að halda áfram á þeirri braut og velta hér upp máli sem ég hef verið að velta fyrir mér nú um nokkurt skeið. Það er varðandi lykt, ég hef lengi velt því fyrir mér hvernig lykt virkar. Eins og t.d. að fiskifýla festist oftast í fötum manna, ólíkt skítafýlunni. Hvernig ætli heimurinn væri ef skítafýlan festist alltaf í fötum manns eftir a maður hefði hægðir. Gæti verið óþægilegt ef maður þyrfti að létta á sér inni á einhverjum veitinga stað, að setjast aftur til borðs og anga þá af saur. En ætli það væri þá ekki búið á finna upp eitthvað svona ilmsprey dæmi sem væri á öllum salernum, og maður gæti úðað yfir sig eftir hægðarlosun, og allir væru þá gangandi um lyktandi eins og alpafura, eplatré eða nýjir bílar. Eða væri fólk kannski bara vant þessu og væri ekkert að kippa sér upp við þetta og tæki þessum skíta angan eins og hverju öðru hundsbiti...
Spurning sko...






þriðjudagur, mars 23


Til hamingju
Maður er víst tilneyddur að setja hér inn árnaðar óskir og annað slíkt, því óska ég hér með mínum helsta læri félaga, eftir að Kolbeinn gafst upp á ströglinu, Ívari Róbertssyni til hamingjum með þann merka áfanga að fagna 21 árs afmæli sínu í dag. Þó mér þyki það nú ansi skítt af honum að hafa ekki mætt með svo mikið sem eina kökusneið með sér í skólann í dag.






mánudagur, mars 22


Hvers vegna sleit Andrés samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn?
Rak augun áðan í afar athyglisverða grein, inni á eyjafréttum.is. Smellið -->HÉR<-- til að skoða hana, en hér ef þið viljið lesa greinina. Þetta varð til þess að maður fór að velta fyrir sér, hvað var í raun það sem varð til þess að slitnaði upp úr meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokksins og Anrésar Sigmundsonar. Það sem Andrés bar helst fyrir sig, var þessi skýrsla vinnuhópsins, sem hann taldi ómögulega með öllu. Persónulega tel ég, þó ég hafi nú ekki mikið fyrir mér í því, að Andrési hafi sárnað það svo að hugarfóstir hans, þessum hraðferjum, hafi í raun verið hafnað í þessari skýrslu. Ég er fullkomlega sammála því að þessar ferjur sem til eru henti engan veginn til siglingar hér, þær eru hannaðar fyrir mun rólegra sjólag en hér er, og myndu mun fleiri ferið falla út með þeim, en gerist með þann Herjólf sem við höfum í dag, auk þess sem þær eru ekki hannaðar fyrir sömu þungaflutninga og Herjólfur hefur getu til að sinna.
Er það rétt af manni, sem hefur til margra ára gefið kost á sér til pólitískra starfa, að láta einhverja persónulega drauma eins og þennan verða til þess að þeir slíti samstarfi, sem þeir eiga aðeins þátt í sem fulltrúi hóps? Eins og flestir sem fylgust með þessu á sínum tíma ættu að vita, þá var á þessum tíma ekki vilji inna Framsóknarfélagsins í Eyjum fyrir því að slíta þessu samstarfi. Eins spyr maður sig að því, að ef þessi skýrsla var ástæðan fyrir stjórnaslitunum, á þeim forsendum að:
"Tillögur hópsins gera [gerðu] ekki ráð fyrir því að ráðist verði í neinar úrbætur í samgöngumálum nú þegar eins og krafa Vestmannaeyinga er [var] um"
hvers vegna er þá núverndi meirihluti ekki búinn að standna fyrir neinum stórvægilegum breytingum á samgöngumálum Eyjanna á þessu ári sem liðið er frá því að upp úr samstarfi Andrésar og Sjálfstæðismanna slitnaði?






sunnudagur, mars 21


Merkileg helgi
Já þetta var eiginlega að miklu leiti, þó nokkuð merkileg helgi. Fyrir það fyrsta þá datt ég ekki í það á föstudaginn, eins og vaninn hefur verið svo oft hjá mér eftir að ég fluttist í borgina. Hef nefnilega yfirleitt verið svo spenntur að fá mér í könnu að ég hef ekki getað beðið til laugardags, og hrunið í það á föstudögum. En viljinn virðist eitthvað vera að styrkjast, því maður náði að halda sér í rólegheitum á föstudeginum. Um kvöldið fórum við fjórir saman ég, Boggi, Kolli og Grettir á eina mögnuðustu mynd sem ég hef séð The passion of the Christ. En þar sem annar hver maður er að tala um þessa mynd, ætla ég ekkert að vera að fjölyrða neitt um hana, mæli bara eindregið með því að allir fari á þessa mynd, helst í Bíó, því þar nýtur hún sín einna best.
En það borgaði sig sko að bíða með bjór þambið fram á laugardag, því þá beið manns ærlegt bjór þamb. Boggi dró mig með sér á ásháíð hjá Vöku, þ.s. vel var veitt af veigum, enda varð maður ansi valtur, þegar á fór að líða. Endaði reyndar alveg hreint á snepplunum, og hefur ábyggilega tekist að gera mig að fífli, eins og ég er svo sérlega laginn við að gera undir áhrifum bjórs og áfengis, eins og sumir myndu orða það.
Sem sagt barasta fín helgi, með skuggalegri þynku, ég er nú fyrst rétt að geta hugsað sæmilega skírt.
Eða kannski ekki...






föstudagur, mars 19


Fréttamennska
Það var eitt sem fékk mig svolítið til að íhuga fréttamennsku núna í liðinni viku. Þessi hryðjuverki sem áttu sér stað í Madríd í síðustu viku, voru náttúrulega hrikaleg, og því eðlilega mikið fjallað um þau í öllum fréttatímum. Svo var sprengt við eitthvað hótel í Bagdad, og fyrstu fréttir sögðu, að mig minnir, að 29 hafi farist, sem reyndust svo síðar vera 6, sem þó er vitanlega skelfilegt, og eðlilega um það fjallað. En það sem sló mig hins vegar var að ég las frétt um að inni á textavarpinu, núna einhvertíman í vikunni, að hópur öfgafullra kristinna manna í Úganda hafi drepið 337 manns. Ekki minnist ég þess að það hafi verið minnst á það einu orði í fréttum sjónvarps, né útvarps. Það skal þó tekið fram að ég hvorki horfði á alla fréttatíma í sjónvarpi né hlustaði á alla sem var útvarpað á þessum tíma. En samt fór það ekkert fram hjá mér að þetta fékk ekki nálægt því svipaða umfjöllun og sprengingarnar í Madríd. Því fór maður að velta fyrir sér hvort mannfall í Afríku væri ekki jafn fréttnæmtt og mannfall í Evrópu, ég skil það að Spánn stendur okkur eðlilega nær og allt það, en 337 manns drepnir á einu bretti og vart minnst á það, það finnst mér alveg hróplegt. Það læddust líka að manni þær hugsanir, hvort mönnum þætti það ekki jafnmikið fréttaefni að kristnir menn væru að drepa einhverja heiðingja, eins og að múslimar að sprengja lestar í kaþólskulandi. En ég trúi því nú tæplega að menn hugsi virkilega þannig á fréttastofum landsins, í það minnsta ekki meðvitað.






miðvikudagur, mars 17


Eitthvað fyrir Skjá 1
Mér var að detta í hug, nýtt "twist" á svona blind-date þátt fyrir sjónvarp. Hvernig væri ef garuinn sem færi á date-ið, eða stúlkan, væri með bindið fyrir augun allan tímann. Það gæti orðið helvítið fróðlegt að sjá hvernig að það færi. Alltaf gott sjónvarpsefni, þegar fólk er að labba utan í hluti.
Hvað er þetta maður, þetta er bara hugmynd, sagði aldrei að hún væri góð...






þriðjudagur, mars 16


Vor í lofti
Það er aldeilis að það er kominn vor fiðringur í mann, sólin farin að glenna sig og svona. Nú langar mann helst að sitja einhverstaðar úti með einn ískaldan øll og slappa af. Maður nennir engan vegin að læra núna, ekki að það sé eitthvað sérstaklega nýtt samt. Mann er bara farið að hlakka til sumarsins, ég er eiginlega alveg búinn að gefa allar hugleiðingar um að finna mér vinnu hér í borginni upp á bátinn. Þar á reyndar einna stærstan hlut að máli, að það er búið að taka köttinn af pillunni og stefnt að því að láta hana gjóta í vor eða sumar. Maður getur nú varla hugsað sér að vera annar staðar en heima í Eyjum í sumar ef húsið verður hálffullt af kettlingum. Svo er ég nú eiginlega líka að verða svolítið þreyttur á þessu einhvæfa mataræði sem maður stundar þegar maður er að elda ofan í sig. Maður er eiginlega farinn að bera meiri virðingu fyrir hugmyndarflugi móður sinnar í eldamennsku eftir að maður er búinn að vera að brasa í þessu sjálfur, maður varð hálf pirraður ef maður fékk það sama oftar en einu sinni í viku, jafnvel ef það var bara vikulega, en nú étur maður jafnvel það sama allt upp í 3 daga í röð. Sem skapast kannski aðalega af því að ég hef enga tilfinningu fyrir magninu sem ég er að elda, og á það til að elda pasta-rétti í magni sem myndi duga ofan í 10 manns.






mánudagur, mars 15


Er þetta ekki að verða full gróft
það var þáttur áðan á Sky, sem ég verð nú bara að viðurkenna að gekk eiginleg fram af mér. það er en eitt "twist-ið" á þessu Batchelor æði. Nú eru einhverjir tjallar fengnir til að berjast um hönd Miriam, þátturinn heitir einmitt There is something about Miriam. En "twist-ið" er það að Miriam er ekki einhver Suður-amerísk gyðja, eins og þeir allir halda, heldur einhver gaur, sem er búinn að éta einhver hormón til að á hann yxu júgur. Þetta hlýtur að enda með málsókn, allt einhverjir svaka machó gaurar. Samt hálf fyndið, en eiginleg of, annað hvort svartur eða grófur húmor fyrir mig, eins og Happienes.
Jæja nóg um það, best að fara að drullast í bælið, maður þarf víst að vakna til að fara með þessum dall upp á land í fyrramálið.






sunnudagur, mars 14


Allt á réttri leið
Búinn að redda þessum tungumála örðuleikum, og kominn með ágætis lúkk á þetta, og setja upp einhverja linka og svona. En ef einhver þvælist hingað inn, og finnst hann eiga erindi inn á linka listann minn hér til hliðar, þá endilega að kommenta á það hér að neðan.






laugardagur, mars 13


Þynnri en andskotinn
Er hann svo þunnur??? En hvað er annars andskoti, anti-scotshman, er það þá Wales-maður, eða kannski bara tjalli, hvað veit ég. En samt gott að vera þunnur heima í­ Eyjum frekar en í­ vesturbæ Reykjaví­kur. Maður getur allan vega verið nokkuð viss um að það sé ekki partý í gangi hérna þegar að maður kemur heim, og lí­ka laus við alla sjálfsvarnar gúrúa sem ganga um hótandi líkamsmeiðingum.






föstudagur, mars 12


Loxins á heimleið
Kí­kti hérna bara aðeins við áður en ég færi af stað í Þorlákshöfn. Bara rétt til að reyna að "fí­nesera" þetta eitthvað hjá mér. Loxins er maður á leiðinni heim, mesti pirringurinn að vera runninn úr manni. þarf reyndar að þvælast eitthvað út í­ Kópavog, og ná í hliðarskrúfudælu til að flytja með mér til Eyja, og þ.s. ég er ekki beinlínis ratvísasti maðurinn hér á höfuðborgarsvæðinu, hvað þá þegar að það kemur að Kópavogi, þá hugsa ég að ég fari bara að koma mér fljótlega af stað að reyna að finna þessar Landvélar, sem þetta á að bíða mí­n á.






fimmtudagur, mars 11


Sko minn!
Fattaði þetta bara







Þarf að fara að læra á þetta
Já maður þarf nú að fara að kynna sér hvernig þetta vesen virkar eiginlega, fyrst manni var nú á annað borð hent út í þetta. Læra að setja upp svona komment krapp og linka og svona vesen.
En annars nenni ég þessu ekki, ég er hund pirraður, ætlaði að fara heim til Eyja í­ kvöld, en þá tóku þeir upp á því­ að aflýsa seinni ferðinni. Svo ég er bara í­ fýlu og farinn...






miðvikudagur, mars 10


Helví­tið hann Boggi
Skil ekki hvað hann var að þraungva þessari blogg vitleysu upp á mig. Hélt þetta væri full reynt eftir að ég átti að vera með "vikulega" pistla inni á VKB síðunni, sem gekk, jaaaa illa. Ekki bað ég um það, frekar en þetta blogg.
En heyrðu, ef ég er svona á móti þessu, hvers vegna er ég þá að skrifa þetta núna, hummmm, þá er ég hættur.






Ég

er fæddur í Eyjum 1981

hef búið í Eyjum nær alla ævi

bý núna í Reykjavík

vinn sem möppudýr í smiðju í Garðabæ

er flokksbundinn Sjálfstæðismaður

veit ekki hvað ég get sagt fleira um sjálfan mig

býð þig hjartanlega velkominn á síðuna

e-Póstur

msn




Lesist á eigin ábyrgð

Blogg-óði maðurinn
Blogg-óða konan
Blogg-óði faðirinn
Þessi flúði land
Passið ykkur á þessum
Síra
Sýra
njé-2
Þessi kom á Þjóðhátíð
Oft gaman að þessum
Þessi er rokk-fróður
Þessi hefur áhuga á listum
Þessi kann að segja sögur
Þessi fær aldrei notið steríós
Þessi stuðlar að fjölgun mannkyns
Þessi ætlar að laga í mér lifrina
Þessi fór til Spáns
Þessi á dýptarmæli
Þessi fílar Bubba óhóflega mikið
Þessi styður Newcastle United
Þessi er mikið fyrir murtuna
Þessi stúderar í Danaveldi
Þessi er í Breskum leikskóla
Þessi kann á rússneskar bongótrommur
Þessi fann Jesúm
Þessi biður að heilsa
Þessi stjórnar bæ
Þessi kann að jóðla
Þessi valdi Hellisey
Foster's Blog
Foster's Net
VKB's Blog

Þetta skoða ég

Fréttir
Mogginn
Vísir
eyjar.net
Háskólinn
VKB
Dalurinn
Ægisdyr
Eyjabloggarar
B2.is
Google
Heimabankinn
Dagskráin
Árgangur '81
Leikjanet
Uncyclopedia
Encyclopedia
KÉSHÁM (NBA)
Öll tónlist
Eyverjar
IMDb
TV.com
YouTube
Reykjavík FM

Gamalt og mis gott

mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008
september 2008
október 2008
nóvember 2008
desember 2008
janúar 2009

Þakkir fá

blogskins
Main Site
Powered by TagBoard Message Board

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

eXTReMe Tracker