*
*
*
*
föstudagur, apríl 30


Bara svona að prófa
Rosaleg mynd, og ekki sakar það nú að Brandurinn sést á henniÁkvað að prófa að setja inn mynd á þetta blogg mitt, og fyrst það er að verða kominn smá svona sumar fiðringur í mann, og maður þ.a.l. farið að hlakka svolítið til þess að komast heim til Eyja þá ákvað ég að leita af einhverjum Eyja myndum á google.com. Þar rakst ég á þessa mynd sem er hér til vinstri. Þetta er mynd sem Sigurgeir ljósmyndari tók af Surtseyjagosinu, það er einmitt til eintak af henni út í Brandi, það er reyndar svart hvítt, og er þetta í fyrsta skipti sem ég sé þessa mynd í lit. Ég man það ekki alveg, en mig minnir að mér hafi einhver tíman verið sagt að hann hafi unnið einhver stór alþjóðleg verðlaun fyrir þessa mynd. Enda ekki oft sem menn ná myndum af eldingum, hvað þá svona mörgum eldingum.







Skrítið!
Jæja svo ég vitni nú enn einu sinni í grein sem ég las á netinu, þá rakst ég á
ÞESSA inni á eyjar.net. Í henni stendur m.a.:
"Varamannafundur í bæjarstjórn
Fjórum varamönnum var skipt inná á bæjarstjórnarfundinum í gær.
- þrír varamenn sjálfstæðismanna sátu fundinn ásamt 5 manni á lista V-listans...
Andrés Sigmundsson, Framsóknarflokknum, sem myndar meirihluta með V-listanum sat fundinn og hefur því enn 100% mætingu á bæjarstjórnarfundi.
"
Skrítið að Andrés skuli enn vera með 100% mætingu, þ.s. að ef hann mætir ekki þá er meirihlutinn fallinn.
P.s. Titill þessa "posts" er hugsaður sem kaldhæðni...






fimmtudagur, apríl 29


Fordómar hverra??
Rakst áðan á grein inn á mbl.is sem vakti nokkra athygli hjá mér. Hún er í grófum dráttum (já já ég veit) svona:
" Idol-dómari hafnar kynþáttafordómum í atkvæðagreiðslu
Simon Cowell, dómari í bandarísku Idol söngvarakeppninni, telur að... Hann hafnar því að kynþáttafordómar almenning hafi ráðið úrslitum í síðasta Idol þættinum, þar sem svört söngkona var kosin út úr þættinum
"
Mér finnast þessar pælingar ansi furðulegar, þar sem ég hélt að hinir svokölluðu hörundsdökku minnihlutahópar Bandaríkjanna væru ekkert lengur í minnihluta, heldu þvert á mót í meirihluta. Því skil ég ekki alveg hvernig kynþáttafordómar eigi að hafa getað stuðlað að því að þessi söngkona var kosin út. Auk þess sem ég man nú ekki betur en svo að það hafi nú einmitt verið hörundsdökkur söngvari sem hafi unnið síðustu keppni.
Greinina er hægt að lesa í heild sinni HÉR
P.S. Ég las ekki alla greinina







Svona er lífið
Jæja, þá er maður ný stiginn útúr fyrsta prófinu þetta árið. Stemmningin svona bærilega, ekki alveg nægilega sáttur við framistöðuna en er samt temmilega bjartsýnn á að hún dugi mér til að skríða í gegnum þetta. Er með svona hálfgerða "could go either way" tilfinningu. Það kemur bara í ljós þegar að maður fær útúr prófunum, sem ég á ekki von á að verði fyrr en undir jól svona af fenginni reynslu.






miðvikudagur, apríl 28


Þetta er eiginlega of mikið rætt en...
Ég ætla samt að minnast á eitt varðandi þetta fjölmiðlafrumvarp, sem maður getur varla skrúfað frá útvarpstæki án þess að hellist yfir mann fréttir af. Því ég rakst á ansi athyglis verðar pælingar inni á Eyjafréttum.is sem bendir manni á að þetta frumvarp hefur nú áhrif á fleiri heldur en ræfilsgreyið hann Jón Ásgeir & co. Því eins og glöggum ætti að vera kunnugt um þá rekur Eyjasýn, útgáfufélag Frétta, einnig sjónvarpsstöð, þó hún kunni að vera smá í sniðum.
Greinina sem ég er að tala um er hægt að nálgast HÉR.







Dugnaðnum áfram haldið
Já ég veit það, lesandi góður, að þú hefur ábyggilega talið að þetta raus mitt um dugnað hér að neðan væri aðeins tómt þvaður. En viti menn, svo er nú ekki. Ég og mínir nýfundnu lærifélagar, sem að saman standa að mestu af misskrýtnum sunnlendingum, slógum upp tjaldbúðum hér á annari hæð VR II og erum búnir að vera frá því um 9:00 í morgun að berjast í gegnum gömul próf í Líkindareikning og tölfræði, að reyna að bæta á skilning okkar og þekkingu í þeim efnum. Sem var lítill sem enginn fyrir. Og nú er maður fyrst að sjá sér fært að skríð heim á leið, að leggjast í rekkju í nokkra tíma til að safna kröftum fyrir átök morgun dagsins, sem hefjast væntanlega stundvíslega (??) kl. 8:00 í fyrramálið.






þriðjudagur, apríl 27


Dugnaður
Já nú er sko tekið á því, er búinn að vera uppi í skóla í allan dag að görpast í Líkinda og tölfræði, að reyna að bæta fyrir áhuga og athafna leysið sem er búið að vera í allan vetur. Hins vegar bara spurning hvort maður sé ekki full seinn í því að reyna að grípa um rassinn. Var meira að segja að í gær til að ganga 12 og mættur í morgun aftur um 8. Svo nú er það bara kraftur.
Hrós vel þegin...







Gleðifréttir
Það er ekki laust við að það hafi komið upp í manni smá sumarfiðringur þessi fáu skipti sem sólin hefur eitthvað sýnt sig undanfarna daga. Eyjarnar eru farnar að toga ansi stíft í mann, ekki síst þegar maður rekst á frétt sem -->þessa<-- Það fer ábyggilega að líða að fyrstu ferðunum út í Eyju, það yrði nú gaman ef maður kæmist eitthvað í egg í ár. Eins ætla ég nú að vona að það verði nú eitthvað aðeins meira að gera í lundaveiðinni í ár en var í fyrra, sem var held ég það allra slakast ár sem ég hef upplifað í lundaveiði þessi 12 ár sem ég hef verið að berja á þessum greyjum.






mánudagur, apríl 26


Hrikalega er maður framtaksamur
Eða kannski ekki, held að þessu helgi hafi farið í svo gott sem ekki neitt. Jú fór reyndar svo sem á tónleika með Hoffman á föstudeginum. Tók þá gáfulegu ákvörðun að fá mér eins og eina kippu fara svo á tónleikana og rölta svo bara heim. Það fór á aðeins annan veg, endaði með því að ég eyddi þeim fáu aurum sem ég hafði umleikis í að reyna að auka á ölvunina, tróð mér einhvern jakka sem Hannes fann, sem var N.B. 15 númerum eða e-h álíka of lítill á mig og var í honum nánast alla nóttina. Enduðum svo á því að far í 10-11 í Lágmúla e-h tíman um 6-7 og að versala okkur eitthvað að éta, ég í jakkanum litla, Hannes í húfu sem hann hefði allt að getað tjaldað í og Sigurður eins og hann er. Verslaðu mér hrúgu af pasta, hrúgu af Jelly Belly með jalepanos-bragði (ekki spyrja mig afhverju...) og endaði svo á að stela Mogganum. Röltum svo allir upp í Álftamýri til Sigurðar þ.s. okkur Hannesi var úthlutað svenfplássi. Sem var svo sem ágætt, því við höfðum báðir ákveðið að skilja bílana okkar eftir þar fyrir utan.
Fór svo í bíó á laugardeginum, sá Whole ten yards, allt í lagi ræma bara afþreying. Og sunnudagurinn fór í jaaa veit ekki alveg hvað. Jú reyndar kláraði Mario í Gamboy sem einhver af meðleigendum mínum á að ég held. Sem er held ég það sem ég get verið einna stoltastur af, af öllum sem ég afrekaði þessa helgina...
Afhverju nennir maður ekki að læra??






föstudagur, apríl 23


Bill aflífaður á sumardaginn fyrsta
Já já, þá er bara komið sumar, og aldrei þessu vant þá fer það bara alveg helvíti vel af stað. Bæði sumardagurinn fyrsti og síðasti vetrardagur bara uppfullir af veðurblíðu og skemmtileg heitum. Ég kaus reyndar að fagna komu sumars með allt öðrum hætti en það fólk sem þeyttist um götur borgarinnar í einhverjum skrúðgöngum, eða hvað það kýs nú að kalla þetta. Því félagi minn og vinur hann Hannes Kristinn Eiríksson bauð mér með sér í einhverja sérstaka starfsmanna sýningu á Kill Bill Vol. 2 í Regnboganum í gær. Og bara eitt orð VÁ!! Djöfulsins snilld er þetta maður og mikið djöfull langar mig að sjá fyrri myndina sem fyrst aftur. Manni fannst það samt hálf skrítið að vera í Bíó kl. 2 að degi til, sérstaklega þegar maður kom út í sólskinið, sem var ekkert sérstaklega lítið af í gær.
Svo bara gleðilegt sumar og allir að drífa sig á Kill Bill Vol. 2, og ef það eru einhverjir vitleysingar eins og Boggi sem eru ekki enn búnir að sjá fyrri myndina, þá bara hvað er eiginlega í þér maður??






miðvikudagur, apríl 21


Sérkennileg tilviljun skýtur upp kollinum
Hennti inn nýjum tengli áðan á Ægisdyr. Tók þá eftir því að þeir eru eins og við í VKB titlaðir sem áhugafélag. VKB er reyndar titlað sem áhugamannafélag, eða eins og stendur í þjóðskránni: "Vinir Ketils bónda,áhugamfélag 700603-5980 Ásvegi 32 900 VESTMANNAEYJAR ". Hvernig þeir fengu út að við værum áhugamannafélag þegar að við sendum inn umsóknina veit ég ekki, en þeir fengu reglur félagsins sendar með umsókninni svo þeir hljóta að hafa séð það einhvern veginn út úr þeim. En hvað ætli þeir telji að við séum svona miklir áhugamenn um??







Enn eiga Týrarar undir högg að sækja
Rakst áðan á grein í Vaktinni sem varð til þess að mér var hugsað til þeirra feðganna Geira Múrara og Bogga Bloggara, en hún er svona:
"ÞÓRARI hannar nýtt merki á Týsheimilið!
Það hefur farið misvel í menn að horfa á eftir Týsmerkinu af Týsheimilinu. Samkvæmt heimildum Vaktarinnar vildu allra hörðustu Týrararnir að fyllt yrði upp í Þórsmerkin á Þórsheimilinu en aðrir vildu að á væntanlegu ÍBV skilti á Týsheimilinu yrði einnig Týsmerkið. Hönnun á nýja skiltinu er nú í vinnslu en fyrrum markvörður í yngri flokkum Þórs, Sæþór Þorbjarnason, hefur verið fenginn í verkið. Hvort það verði til að gleðja Týrara skal ósagt látið."
Birt án leyfis frá Eyjar.net







Lífið. Það er yndislegt!
Jaa, það eru bara rétt um 100 dagar í Þjóðhátíð, djöfull líður þetta maður. Finnst sem það hafi bara verið í gær sem ég var að elta nýkeypt tjald okkar út um víða velli austurbæjarins. Ekki kannski alveg í gær en svona kannski fyrir hálfum mánuði eða svo. En djöfull á þetta örugglega eftir að vera rosaleg Þjóðhátíð, eins og þær eru reyndar allar. Fékk nettan fiðring um páskana þegar að við sátum nokkrir heima hjá Tryggva Má og hann skellti Þjóðhátíðarlaginu frá því í fyrra á fóninn. Minnti mig á það þegar maður er að rölta upp Ásaveginn einhver tíman um 09:00 á sunnudags morgni í blíðskapar (ábyggilega slæmt að lenda í óblíðum sköpum) veðri hugsandi sáttur til þess að enn sé heill dagur eftir að herlegheitunum. Skilst að það eigi að vera einhver svaka uppákoma á laugardeginum sem eigi að koma öllum rosa á óvart, trúi samt varla að þeir fari út í sama vesen og þegar að þeir fengu Jet Black Joe og Rottweiler vitleysingana sem leynigesti, enda selja þeir nú ekki marga miða út á leynigesti, né er sérlega mikil auglýsing í þeim. Því hef ég trú á að þeir fari fljótlega að auglýsa þetta tromp sitt.
Hvað skildi það nú vera??






mánudagur, apríl 19


Dugnaður?
Mér skilst það að Hannes ræfillinn sem nær genginn upp að hnjám eftir að þurfa að ná í tuðruna 10 sinnum í eigið net í gær, þegar KFS tapaði 10 - 0 fyrir Breiðabliki. Gott að greyið eigi frí núna eftir hádegi í skólanum, gæti verið að maður myndi gefa sér tíma til þess að hafa smaband við hann á eftir og reyna með einhverju móti að stappa í hann stálinu. Það yrði nú leitt ef þessi ósigur yrði til þess að gera hann afhuga íþróttum um alla framtíð. Hann getur þó huggað sig við það að veru hans innan VKB stendur allanvega ekki ógn af þessu, því að samkvæmt reglu nr. 6.1 er meðlimu félagsins óheimilt að skara fram úr í nokkurri íþrótt.






laugardagur, apríl 17


Lærdómur! Fyrir konur og homma?
Hver er þín skoðun?

Jæja, var að spá í að fara enn einu sinni að væla um það hérna hvað ég er þunnur, en er reyndar ekkert sérstaklega þunnur. En það er kannski líka kominn tími til að ég ræði eitthvað annað hérna en drykkjuskap. Fólk sem að les þetta og þekkir mig ekki gæti farið að hallast að því að ég væri svolítið blautur, ólíkt fólkinu sem þekkir mig og veit að ég er alveg rennadi blautur. Ef ég ætla ekki að fara að tala um drykkju, hvað ætla ég þá að tala um, jú kannski það að nú eru allar líkur á því að ég verði að vinna aftur í Lyftunni í sumar. Stebbi Jóns er víst búinn að vera að herja eitthvað á pabba um að ég komi aftur í sumar. Það á víst, að mér skilst, að senda mig eitthvað á suðurlandið að vinna í KÁ smiðjunum, gæti verið áhuga vert, þeir eru allanvega ágætir þessir sunnlendingar sem ég er búinn að kynnast hérna í verkfræðinni. En jæja best að fara að reyna að læra eitthvað, það er búið að vera hálf brösulegt, megnið af tímanum er búið að fara í það að segja sögur eins og þessa.






fimmtudagur, apríl 15


Átakanlegir páskar
Mikið skelfilega er maður nú farinn að slappast í þessu blogg-veseni. Ætlaði mér nú til að byrja með að reyna að henda einhverju hérna inn u.þ.b. daglega. En manni er kannski afsökun í því að maður er búinn að liggja afvelta nær alla páskahátíðina sökum þynku, þó kannski öllu meir vegna egin leti. En hvað um það, maður skemmti sér þó helvíti vel á meðan að á kenndiríunum stóð, og þá ekki síst á því síðasta, sem átti sér einmitt stað á sunnudeginum. Yfirleitt skemmtilegast þegar að fylleríin eru svona "spontant", byrjaði ekki að djúsa fyrr en um 00:20, var búinn að vera allt kvöldið að reyna aðþrífa Eyverja salinn eftir afmælisfögnuðinn sem ég stóð fyrir þar á föstudeginum. Fór svo til að láta Sigga og Þóri hafa flöskur sem þeir höfðu skilið eftir niðri í Ásgarði. Þeir sátu heima hjá Víkingi, ásamt misfríðu föruneyti. Eftir nokkrar fortölur af hálfu peyjanna þá ákvað ég bara að drífa mig heim, skella mér í sturtu og sturta svo í mig, sem og ég gerði. Mér tókst, með hjálp kvikyndis á Lundanum, að verða bara nokkuð hífaður, þó tíminn sem maður gaf sér til þess hafi ekkert verið sérstaklega mikill. Og kann ég hinar ýmsustu "skendileseringar" sögur að segja af vinum mínum eftir þetta skrall, en þar sem ég kýs að halda þeim í hópi minna vina þá ætla ég ekki að segja frá þeim hér...






sunnudagur, apríl 11


Klikk
Virðit eitthvað hafa klikkað í þessu blog dæmi, póstið hér að neðan átti að koma inn í gær eins og sést á dagsetningunni, en fór víst ekki alla leið á síðuna eða eitthvað. En það er allanvega komið inn núna, svo bara njóttu vel.






laugardagur, apríl 10


Tuttugu og þriggja í einn dag
Vil bara byrja á að vera svona svolítið leiðinlega formlegur og þakka öllum sem að heiðruðu mig með nærveru sinni á 23 ára afmælisdeginum mínum. Þetta var bara alveg helvíti fínt, vel mætt og svona. Er reyndar ekki enn þá búinn að nenna að fara og taka til og þrífa og svona, fer bara í það á morgun, er bara búinn að vera að veltast um með peyjunum og hlæja að ömurlegum þynku húmor í allan dag. Haffi hinn smái vild einmitt einhverra hluta vegna endilega fá að krydda typpið á Viggó með kartöflu kryddi, sem er með innihaldslýsinguna: tómatduft, salt og krydd, sem mér þótti einkar athyglisvert. En Viggó, þótt ótrúlegt megi virðast var ekki á sama máli.
Mér finnst sem ég verði eiginlega að segja eitthvað meira, vil ekki enda þetta á að tala um typpið á Víkingi, en mér dettur ekkert vitrænt í hug svo...






föstudagur, apríl 9


Aldurinn færist yfir
Já þótt ótrúlegt megi virðast þá er drengurinn bara orðinn 23 ára. Djöfull er maður að verða gamall, þetta er svakalegt, fermingar "ríjúnjonið" bara á næsta ári. Styttist í gráu hárin, jaa eða skallan bara, spái því reyndar að ég verði sköllóttur þegar fram í sækir. En hvað um það, það er bara ammalisveisla í kvöld, fyllerí og skemmtileg heit. Byrjar reyndar á kvöldverði með familíunni og ömmu og frænda mínum. Pabbi stendur einmitt sveittur núna inni í eldhúsi að maltsjóða reyktan lunda, þetta á eftir að vera tær snilld.
Fór á smávægilegt kenndirí í gær, það var hörku stuð, við Hannes kíktum til Tryggva Más þar sem fyrir voru snillingar eins og Einar Sigþórs, Kiddi Gogga og Steini Trausta. Kvöldið gat nú ekki klikkað með svona liði innan borðs, enda gerði það það ekki. En djöfull þarf ég að fara að hætta að láta skrifa á mig inni á Mánabar, þetta á bara eftir að enda með ósköpum...






fimmtudagur, apríl 8


To whom it may consern
Í tilefni þess að ég verð 23 ára á morgun, þá hef ég í hyggju að standa fyrir mannfagnaði í kjallara Ásgarðs í Vestmannaeyjum, gjarnan kenndur við Eyverja. Herleg heitin hefjast kl 21:00, og er lesandi þessarar síðu boðinn hjartanlega velkominn.

Snyrtilegur klæðnaður og ríkulegar gjafir æskilegar...






miðvikudagur, apríl 7


Aukin hætta á hryðjuverkum ??
Í ljós atburða undan farina daga þá tel ég að hættan á hryðjuverka árásum á vegum alqaida (eða hvernig sem þetta er nú skrifað) hafi aukist stórlega, og þá jafnvel hérlendis. Þar sem Arsenalmenn eru núna undan farið búnir að missa af möguleikanum á hverjum titlinum á fætur öðrum, þá hef ég trú á að Bin Laden, sem harður stuðningsmaður Lundúnarliðsins, sé orðinn ansi pirraður. Þessi pirringur hans tel ég nefnilega að geti orðið til þess að hann fyrirskipi árásir nú á næstu dögum, líklegast þá í Chelsea-hverfi Lundúna eða Manchester. En eins og áður sagði, þá tel ég Íslendinga ekki undanskilda þessari ógn, þ.s. Eiður Smári átti náttúrulega stóran þátt í því að Chelsea sló Arsenal út úr meistaradeildinni. Því bið ég lesanda þessarar síðu að hafa varann á, og að ef hann sér mann klæddan túrban með tínamíd túpu undir höndum, þá mæli ég með að hann taki til fótanna.






mánudagur, apríl 5


Þunnur á mánudegi
Er þetta ekki merki um að maður sé að verða gamall, þegar maður er farinn að verða þunnur í 2 daga eftir að hafa tekið eina helgi með trompi. Skildist á Sigurði, og öðrum sem voru nærstaddir, að ég hafi verið ansi skrautlegur, bæði föstudag og laugardag. Skildist reyndar á Sigurði að ég hafi verið á dansgólfinu á Nösu, á nákvæmlega sama blettinum í einhvera þrjá tíma. Sem þýður sennilega 1/2 tíma í ljósi þess hver var að segja frá. En við komum víst þar inn, skelltum okkur á gólfið, og svo fór hann á eitthvað ráp, og þegar hann snéri aftur á ný þá var ég víst staddur í sömu sporum og þegar han skildi við mig. En hvað nóg um það, ég er ekki alveg að höndla þetta, að vera enn þunnur á mánudegi en svona er þetta þegar aldurinn færist yfir mann, enda ekki nema örfáir dagar í 23 afmælisdaginn. En hvenær ætli maður læri að drekka, það er nú eitthvað að nálgast 10 ár síðan að maður fór að fikta við þetta, og ekki er ég enn að læra að gera þetta svo að vit sé í. Kannski að þessi geti tekið mann í smá kennslu stund um hvernig eigi að fara að þessu, enda búinn að vera í námi, að mér skilt aðalega í þessum efnum erlendis.






föstudagur, apríl 2


Pústað á flöskudegi
Þá er einhverri mestu "törn" minnar annars ómerkilegu skólagöngu lox lokið. Maður er varla búinn að hafa tíma til að líta upp af tölvuskjánum undan farna daga. Búinn að liggja yfir lokaverkefni í tölvuteikningu og framsetningu til 3 - 4 á nóttinni undanfarna daga (jaaa eða nætur), var að skila því af mér bara núna rétt áðan. Þá er það bara lífið í kvöld held ég, þ.s. góðvinur minn hann Sigurður bongó ákvað að skella sér í borgina þessa helgi. Ætli stefnan sé ekki sett á Nösu, mér hefur nefnilega skilist að Jet Black Joe eigi að halda uppi fjörinu þar fram á nótt, hljómar óneitnalega mjög freistandi.






fimmtudagur, apríl 1


Þakkir
Ég vil þakka lesanda síðunnar, Sindra Frey Ragnarssyni, innilega fyrir innlitið.






Ég

er fæddur í Eyjum 1981

hef búið í Eyjum nær alla ævi

bý núna í Reykjavík

vinn sem möppudýr í smiðju í Garðabæ

er flokksbundinn Sjálfstæðismaður

veit ekki hvað ég get sagt fleira um sjálfan mig

býð þig hjartanlega velkominn á síðuna

e-Póstur

msn




Lesist á eigin ábyrgð

Blogg-óði maðurinn
Blogg-óða konan
Blogg-óði faðirinn
Þessi flúði land
Passið ykkur á þessum
Síra
Sýra
njé-2
Þessi kom á Þjóðhátíð
Oft gaman að þessum
Þessi er rokk-fróður
Þessi hefur áhuga á listum
Þessi kann að segja sögur
Þessi fær aldrei notið steríós
Þessi stuðlar að fjölgun mannkyns
Þessi ætlar að laga í mér lifrina
Þessi fór til Spáns
Þessi á dýptarmæli
Þessi fílar Bubba óhóflega mikið
Þessi styður Newcastle United
Þessi er mikið fyrir murtuna
Þessi stúderar í Danaveldi
Þessi er í Breskum leikskóla
Þessi kann á rússneskar bongótrommur
Þessi fann Jesúm
Þessi biður að heilsa
Þessi stjórnar bæ
Þessi kann að jóðla
Þessi valdi Hellisey
Foster's Blog
Foster's Net
VKB's Blog

Þetta skoða ég

Fréttir
Mogginn
Vísir
eyjar.net
Háskólinn
VKB
Dalurinn
Ægisdyr
Eyjabloggarar
B2.is
Google
Heimabankinn
Dagskráin
Árgangur '81
Leikjanet
Uncyclopedia
Encyclopedia
KÉSHÁM (NBA)
Öll tónlist
Eyverjar
IMDb
TV.com
YouTube
Reykjavík FM

Gamalt og mis gott

mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008
september 2008
október 2008
nóvember 2008
desember 2008
janúar 2009

Þakkir fá

blogskins
Main Site
Powered by TagBoard Message Board

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

eXTReMe Tracker