![]() |
|
|
sunnudagur, maí 30
Tilganslaust þvaður Er eiginlega ekki að nenna að vera að þessu, en finnst ég verð að setja eitthvað hérna inn fyrst ég er kominn af sjó. En ég er svo drullu þunnur, hvenær ætla ég eiginlega að fara að læra að drekka, er ekki að verða kominn tími á það?? Eða ætti maður bara að fara að hætta þessu. Ég er eignlega á því þessa stundina, eins og reyndar flesta sunnudaga, síðan virðist viðhorfið alltaf breytast einhverra hluta vegna þegar að það fer að líða á vikuna. Ég skil þetta bara ekki. Veit ekkert um það hvort ég fari aftur á sjó eftir sjómannadag. Þá fer maður bara aftur í Lyftuna, þyrfti nú samt eiginlaga að gera það hvort eð er núna í vikunni. En ég er eitthvað voðalega duglítill núna. Ætli það tengist eitthvað drykkjunni í gær??
fimmtudagur, maí 20
Allt er gott sem endar vel Vonandi endar þetta vel... Það virðist fátt ætla að vera til að kæta mann þessa dagana. Fell í hverju prófinu á fætur öðru, missi af Herjólfi og nú er helvítis tölvu druslan mín farinn í einhverja fýlu og neitar að hleypa mér á netið. Er einmitt að pikka inn þessi orða á tölvunni hans pabba. Mér bauðst reyndar að fara út í eyju í gær, átti að fara að líta eftir eggjum. En ég var eiginlega ný skriðinn upp úr Herjólfi og nennti því eiginlega ekki. Sérstaklega í ljósi þess að mér skildist að það væri einhver svaka fjöldi fólks á leiðinni út á snattaranum, öðru nafni Þór. Báran er náttúrulega ekkert brúkuð í einhverjar svona túrista ferðir. Mér skildist það á pabba að fýllinn væri ágætlega orpinn, þó reyndar aðalega í dröngunum. En þeir komust ekki út í Girðisdrang að athuga með svartfuglinn, hann snéri víst hvort eð er allur öfugt við hvernig hann á að snú þegar hann er orpinn (man ekki hvort er hvað). Jæja var þetta ekki skemmtilegur fróðleikur? Það er víst allt enn á huldu með hvað verður með mig í sumar, gæti verið að ég væri á leiðinni á sjó á morgun. En ég fæ víst ekki að vita það fyrr enn á morgun, annars er það bara Lyftan. Svo næsta blogg mitt gæti orðið í fjarlægri framtíð, sjáum bara til með það...
miðvikudagur, maí 19
Fari það kolað... Ég þarf víst að eyða einnri nótt meir í borginni en að ég gerði ráð fyrir þetta árið. Hafði það af að missa af Herjólfi. Hlaut svo sem að koma að því að þetta bölvaða kæruleysi í manni kæmi í bakið á manni. Það var ansi tæpt í þó nokkur skipti í vetur að ég næði á réttum tíma, en nú var ég of seinn. En það er víst svona þegar að maður ætlar sér að gera allt sem maður þarf að gera á fimm mínúndum. Þandi ræfils volgsvagninn eins og mest ég mátti, en allt kom fyrir ekki, og þurfti ég að horfatár votum augum á eftir skipinu, eða allt að því. Mætti tveimur lögreglubílum á leiðinni aftur í borgina, þakkaði mínu sæla fyrar að það skildi henda þá en ekki meðan að ég var að hendast í Höfnina. En svona er nú einu sinni lífið..
mánudagur, maí 17
Ekki er þetta nú til að koma manni í gott skap Þó að þynkan sé á undanhaldi í dag þá er nú ansi þunnt í manni hljóðið, var að fá út úr einu prófinu enn, og eins og glöggum lesanda síðunnar ætti að vera ljóst, af undangengnum orðum mínum, að þá gekk ekki vel. Ég féll enn einu sinni, og í þetta skiptið með 4,5, getur þetta orðið meira svekkjandi. Maður er bara glaður yfir því að að veraá leið heim til Eyja á næstunni, og þegar að það er svona fínt veður eins og er búið að vera megnið af deginum, þá er ekki laust við að maður fái smá fiðring fyrir því að fara að komast út í Brand. Enda fer sennilega að líða að því að það verði kominn tími á að fara í egg. En jæja best að fara að koma sér í að gera eitthvað af viti, á víst nóg eftir að gera, áður en ég fer í Herjólf áannað kvöld.
sunnudagur, maí 16
Spurt og svarað Ef þið farið inn á dalurinn.is, þá er þar efst varpað fram spurningunni: Hvaða ár var þjóðhátíðarlagið "Ég veit þú kemur" ? Engin keppni eða neitt, bara til skemmtunar. Sem er svo sem alveg gott og gilt, en það fyndna við þetta er að manni er bent á að smella á hnapp merktan Þjóðhátíðarlög, þar sem manni bjóðist að hlusta á lagið. En á hnappinum sem maður á að ýta á til að geta spilað lagið er einmitt ártalið.
Prófum lokið Þá er mínu fyrsta skólaári í tæp þrjú ár lokið. Og eins og lög gera ráð fyrir, þá sturtaði maður náttúrulega í sig af því tilefni í gær. Nemendafélagið bauð upp á bjór að loknu prófi, sam maður þáði auðvitað með þökkum. Þegar honum hafði verið rennt niður, þá fórum við fjórir saman á Kaffibrennsluna, þ.s. við fengum okkur hádegis mat sem saman stóð af tveimur Erdinger bjórum. Síðan skildu leiðir okkar, og ég hélt heim á leið, skellti mér í strurtu og hellti í mig aðeins meiri bjór. Svo röllti ég mér til Heimis þar sem við sátum ég, hann og Torfi til um sjö, þegar að við héldum á Gaukinn, þ.s. var slútt hjá vélaverkfræðinni. Þar var verið að sýna Eurovision, en sökum ölvunar þá man ég lítið hvað þar fór fram, var algerlega búinn að tapa einbeitingunni þegar komið var að stigagjöfinni. En þreytan og það hvað maður byrjaði snemma að þjóra sagði til sín, og ég fór heim einhvertíman um tvö, hálf þrjú. Fékk far hjá Kolbeini, sem var rólegur þetta kvöldið, sökum barsmíða sem hann mátti þola kvöldið áður. Og já ég er víst líka fallinn í línunni aftur, verð bara að ná þessu í þriðju tilraun eins og Kolli.
föstudagur, maí 14
Bakþankar Þeir sem gefa sér stöku sinnum tíma til að blaða í gegnum Fréttablaðið, hafa sennilega tekið eftir lið sem þeir eru alla virka daga með á baksíðunni hjá sér og kallast Bakþankar. Þar skiptast nokkrir valdir einstaklingar á að skrifa niður hugleiðingar sínar, og minnir þetta um margt á blogg, nema hvað að þetta er bara á pappír. Eitthvað virðast þessir aðilar vera valdir út frá einhverju ákveðnu kerfi, þ.s. þeir virðast flestir deila svipuðum skoðunum, allanvega miðað við það sem ég hef lesið í þessu. Meðal þeirra sem gjarnan skrifa þarna er maður að nafni Guðmundur Steingrímsson, og hef ég oft gaman að skrifum hans, þó við kunnum að hafa mismunandi skoðanir á ýmsum málum. Hann á einmitt Bakþankana í blaðinu í dag, og þótt ótrúlegt meigi virðast þá var ég nú sammála honum í allanvega einu (NB. ekki öllu) sem hann skrifaði, og er það eftirfarandi: Ég segi og skrifa. Frekar vil ég forseta Bandaríkjanna sem potar vindli í frístundum upp í sköp hjákonu sinnar heldur en forseta sem sendir innrásarlið til annarra landa til þess að pota kústskafti upp í afturendann á stríðsföngum. Og vil ég hér með fyrir hönd ritstjórnar helgiforseti.blogspot.com fara fram á það við alla kosninga bæra Ameríkan sem lesa þessa síðu, að þeir sjái til þess í næstu kosningum að Bush nái ekki endurkjöri. Takk fyrir.
Því miður ... en ég má bara ekki vera að þessu. Því ég á próf á morgun.
fimmtudagur, maí 13
Af prófskrekki Afhverju þjáist ég ekki af prófskrekki? Það myndi í það minnsta halda manni við lærdóminn...
miðvikudagur, maí 12
Spjall Allt finnur maður sér að gera annað en að læra. Var að enda við, eins og þú lesandi góður hefur eflaust rekið augun í, að setja inn eitthvað svona spjall dæmi. Ég stal kóðanum fyrir þessu af síðunni hans Ella Mónó, og kann ég honum hinar bestu þakkir fyrir það. Ég veit svo sem ekki hvort það sé einhver þörf á þessu, þar sem ég er nú líka með komment kerfi, en við sjáum nú bara til. En eitthvað verður maður að gera fyrst maður nennir ekki að læra.
Heilbrigðiskerfið í lamasessi... ...eða kannski ekki. Því af þessari grein, sem ég sá í Fréttablaðinu, að dæma þá virðumst við vera að gera eitthvað rétt í hleibrigðismálum. Því samkvæmt henni þá er meðalaldur íslenskra karlmanna hæðstur allra, eins er ungbarnadauði hvergi óalgengari en hér á landi. Íslenskar konur eru hins vegar ekki lengur í toppsætinu yfir meðalaldur kvenna í heiminum, og sitja þær nú aðeins í 5. sæti, sem verður nú samt að teljast nokkuð gott. Menn telja að reykingarnar sem fylgdu því að Kaninn kom hérna á stríðsárunum sé farinn að segja til sín. Engu að síður er rétt að taka það fram að meðalaldur íslenskra kvenna er ekki búinn að minnka heldur er aðeins búið að draga úr aukningu hans, í samanburði við aðrar þjóðir, undanfarin ár.
Bananar og menn Ég heyrði reyndar eitt sem mér fannst svolítið fyndið þennan tíma sem ég entist að hlusta á Útvarp Sögu í gærkvöldi. Það var náttúrulega verið að ræða þetta fjölmiðlafrumvarp, og mótmæli liðsins á Norðurljósum, þetta að henda bönunum á tröppur Alþingishússins. Þetta átti víst að vera einhver tilvísun til hinna svokölluðu banana-lýðvelda. Þá var farið að rifja upp hvaða að þessi nafngift er komin. En það var víst svo að á sínum tíma þá komust til valda í þessum löndum vinstri-sinnaðar ríkisstjórnir, sem reyndust hinum risavöxnu ávaxta/banana fyrirtækjum óþægur ljár í þúfu. Þá gripu þessi banana fyrirtæki til þess ráðs að ausa í ráðamennina peningum, til að hafa áhrif á stjórnun landanna. Ég veit það að þetta er algert aukaatriði í þessu máli, en ég get ekki að því gert að finnast það fyndið, að þegar fyrirtæki með einokunarstöðu líkt og Norðurljós hafa, og minnir þannig um margt á banana fyrirtæki þessara banana-lýðvelda, er að veif bönunum framan í ráðamenn þessa lands og kenna ríkistjórnina við banana-lýðveldi, þegar hún er að reyna að draga úr þessari einokunarstöðu þeirra.
Hið ódæla útvarp Ég er með útvarpsvekjara á náttborðinu mínu, og ég geri það gjarnan að kveikja á útvarpinu á honum og stilla það á svona "sleep-timer" þegar ég er að fara að sofa. Mér datt það í hug í gærkvöld, þegar kominn var tími á að ganga til náða, að stilla útvarpið á Útvarp Sögu, enda finnst mér þægilegt að sofna útfrá töluðu máli. En eitthvað virðist "signalið" hjá þeim vera leiðinlegt, allanvega þarna uppi í risi hjá mér, því ég ætlaði ómögulega að geta fundið þetta. Mikið agalega getur svona vesen verið pirrandi. Ég settist upp í rúminu og fór að veifa lotnetinu um, þar til að ég fann stað þar sem "signalið" virtist vera í sómasamlegu lagi. Þá kom ég loftnetinu þar fyrir og lagðist útaf. En þá virtist minn annars merki skrokkur eitthvað trufla "signalið", svo ég greip til þess ráðs að liggja nú, helst eins líkt og ég taldi að ég myndi svo gera þegar að myndi lox hafa það af að still þennan fjanda, meðan ég veifaði loftnetinu enn um. Það hafðist svona nokkurn veginn að finna gott "signal" þá, en ég heyrði alltaf í einhverri sora stöð bakvið, sem var að spil einhver Ricky Martin lög eða eitthvað álíka, svo ég gafst nú fljótlega upp á því að reyna að hlusta á það. Þá sá ég að klukkan var orðinn eitt, og vissi ég að þá væri á Rás 2 sagðar veðurfregnir, og að þeim loknum þá væri dægurmála útvarpið endurflutt (ekki spyrja mig afhverju ég veit það). Því ákvað ég bara að skipta yfir á það, enda þar á ferðinni talað mál sem ég gat allt eins farið að sofa út frá. En þá lox þegar að ég gaf mér almennilega tíma til að slappa af, þá var ég sofnaður áður en að veðurfregnum lauk. Og boðskapur þessarar sögu er... aldrei hlaupa með opin skæri...
þriðjudagur, maí 11
Borgin enn á ný Þá er maður kominn aftur í borgina, sem er svo sem ágætt, að öðru leiti en því að það er frekar slæmt að búa á 4. hæð þegar að maður er jafn sárfættur og ég er þessa dagana. Ég fór nefnilega í körfubolta á bæði laugardags- og sunnudagskvöld, og er frekar slæmur af harðsperrum þessa dagana, en maður kallar nú ekki allt ömmu sína í þessum efnum, frekar en öðrum, og harkar þetta bara af sér. Þetta verður stutt stopp hjá mér núna, á mitt síðasta próf á laugardaginn og hugsa svo að ég flytji endanlega til Eyja (yfir sumarið) á mánudag-þriðjudag. Maður verður náttúrulega að taka gott fyllerí á laugardaginn, í tilefni af próflokum. Hefði reyndar viljað vera laus til að hella mér í könnu á föstudeginum, þ.s. Víkingur og co. í Hoffmann eru að fara að spila á Gauknum. En svona er þetta, maður fær víst ekki allt sem maður vill. Þyrfti svo að útrétta aðeins hérna í borgini áður en að ég fer endanlega og þyrfti því að nota mánudaginn í það, spurning samt hvort ég fari þá ekki bara með seinni ferðinni á mánudaginn. Kann eiginlega ekki við annað en að mæta í það minnsta tvö daga áður en að kemur að árshátíðinni þarna inni í Lyftu, sem verður einmitt þarnæstu helgi.
mánudagur, maí 10
Ein einkunn í hús Þá er ég búinn að fá út úr einu prófi. Merkilegt þó að það er prófið sem ég fór í síðast, þ.e. á fimmtudaginn. Þetta var sem sagt teinkniprófið, var ekki alskostar sáttur við einkunnina. Var búinn að vera að gera mér vonir um áttu en fékk ekki nema sjö. Get þó huggað mig við það að ég var í það minnsta yfir meðaltalinu, sem var 6,3. Kom mér samt á óvart að það voru 18 sem féllu í þessu, sérstaklega þ.s. það hafði aðeins einn fallið á síðustu tveimur árum. Og svo auk þessara 18 sem féllu þá voru 6 sem að ekki mættu til prófs. Þá er bara að vona að þetta hafi ekki verið eina prófið sem maður nái á þessari önn
sunnudagur, maí 9
...ú ú ú... Harðsperrur og þynka, þetta á álíka vel saman og súkkulaðiís og laukur, sem mér skilst að sé argasti viðbjóður. En já ég fór í körfubolta í gærkvöldi, og þar var sko algjört stjörnulið á ferð. Menn á borð við Andra Hugo, Sindra Frey og Birki Atla að ógleymdum Friðbergi Agli Sigurðssyni sem er orðinn svo fúlskeggjaður að hann minnir einna helst orðið á kanadískan skógarhöggsmann. Þetta tók nú ekki alveg jafn mikið á og ég átti von á svo ég ákvað þegar ég var búinn að skella mér í sturtu, að kíkja í smá heimsókn á Mánabar. Þar gekk Tryggvi Már svo hart fram í því að sleja mér bjór, að það endaði með að ég drakk sennilega einhverja 5-6 bjóra þar inni. Þá var kominn svo mikill hugur í mann, að ég ákvað að rölta með Tryggva yfir á Lundann, sem er náttúrulega hvort eð er í leiðinni heim. Eitthvað ílengdist ég þar, og runnu ofan í mig nokkur vodka blönduð vatnsglös. Tryggvi ræfillinn var með svo mikinn móral yfir því hvað hann hafði gengið hart fram í sölumennskunni á Mánanum, að hann borgaði tvö af þessum glösum ofan í mig. Og kann ég honum ekkert nema bestu þakkir fyrir það. Kvöldið á Lundanum endaði svo með því að Gunnari Má og Beikoninu laust saman, með þeim afleiðingum að hún grýtti gleraugunum hans í gólfið og steig á þau.
laugardagur, maí 8
...svo ljómandi fögur þú ert... Rosalega flott veður hérna á Eyjunni björtu. Er einmitt að plæa í því hvað í andskotanum ég sé að gera innan dyra í þessu veðri. Er reyndar búinn að vera að leita logandi ljósi að einhverju region crack-i fyrir DVD í PS2 á Kazaa. Sú leit er litlum árangri búin að skila. Og því bið ég þig, minn sauð tryggi lesandi, að ef þú hefur einhverjar upplýsingar varðandi svona region crack, þá endilega fræddu mig um það. Spurning um að fara bara að koma sér út í sólina og sæluna, og sitja inní bíl og keyra í nokkra hring. Jú veistu ég held ég láti bara verða af því, kippi kannski Sindra með mér.
Mekilegt Rakst á ÞETTA þegar ég var eitthvað að vafra á netinu, og ákvað að deila því með þér lesandi góður. Njóttu vel...
föstudagur, maí 7
...nú leik ég þér lag... Humm, áttaði mig í gær kvöldi á þeim mistökum sem ég hafði gert í "postinu" mínu hér að neðan. En eins og Guðmundur var svo vinsamlegur að benda á, þá þýðir "sínkó" víst fimm en ekki sex á spænsku. Svo þjóðhátíðardagur þeirra Mexíkóa var víst í fyrradag en ekki í gær. Ég áttaði mig reyndar ekki á þessum mistökum fyrr en Guðmundur hringdi í mig í gær til að svekkja mig með þeim fregnum að hann væri staddur á Bowie tónleikum. Þegar hann hringdi í mig þá var búið að vera hlé í einhvern hálftíma eða meira eftir að upphitunar hljómsveitin Stereophonics hafði klárað, og voru sviðsmennirnir eitthvað að brasa við að taka niður fána merktum þeim. Svo hringdi hann í mig aftur seinna, en þá var komið í ljós að einn sviðsmannanna hafi hrapað við þessar aðgerðir og slasast illa eða jafnvel látist, og voru tónleikarnir þá flautaðir af. Svo Guðmundur fékk ekki að sjá goðið í þetta skiptið. En til að bæta það upp þá skildist mér á honum að hann væri á leiðinni eftir fáeina daga á tónleika með Fleetwoodmac. Sem hann, fyrir einhverjar illskiljanlegar sakir, fílar alveg hreint í botn. Þá talaði hann líka um það að ef hann kæmi ekki á Þjóðhátíð, þá færi hann á föstudeginum á Þjóðhátíð á sameiginlega tónleika hjá Poison og Kiss. En eitthvað hefur Bogga misheyrst þegar að ég var að tala um þetta, því hann er viss um það að Guðmundur ætli sér á Boyzone tónleika í stað þess að koma á Þjóðhátíð.
fimmtudagur, maí 6
6. maí Þá hugsa ég að hann Guðmundur vinur minn Míla sé heldur betur að taka á því í USA í dag. Því eins og allir ættu að vita þá er sínkó de mæjó (það skal athugast að kann ekkert fyrir mér í spænsku) í dag, þ.e. þjóðhátíðardagur Maxíkóa. Hann tók í það minnsta vel á því á degi heilags Patreks, og þ.s. faðir hans, að mér skilst, er bundinn konu af rómönsk-amerískum uppruna þá hef ég fulla trú á því að hann finni til það mikillar samkenndar með þessu fólki að hann sjái ástæði til þess að sletta ærlega úr klaufunum.
Eyjan mín bjarta, nú leik ég þér lag... Þá er þessi prófa törn senn á enda. Á reyndar ekki næsta próf fyrr enn 15. maí, en það er jafnframt mitt síðasta. Búinn að fara í tvö próf núna á tveimur dögum. Ekki fyllilega sáttur við útkomuna úr því fyrra, sem var línuleg algebra og rúmfræði, en þar var þó sennilega aðalega um að kenna kæruleysi af minni hálfu. Það síðara var svo sem öllu léttara og þægilegar, og var það í eina skemmtilega áfanganum sem ég var í á þessari önn, tölvuteikningu og framsetningu, nokkuð sáttur við framistöðu mína í því og á allt eins von á sæmilegri einkunn. En þ.s. það er þetta langt í næsta próf hjá mér, þá hef ég tekið ákvörðun um það að skella mér til Eyja yfir helgina. Og þar bíður manns bara stífur lærdómur, eða eitthvað í þá áttina, bara spurning hvernig manni gengur að "mótivera" sig þegar að það er rúm vika í næsta próf. Ætli að maður taki sér ekki bara smá pásu frá lærdóminum, bara passa sig á því að hún vari ekki of lengi.
þriðjudagur, maí 4
Þá er friðurinn úti Hanson bræður voru hjá Leno í gær, hélt maður væri laus við þetta fyrirbæri fyrst þeir væru ekki búnir að bæra á sér svona lengi. Var reyndar að giska á að þeir hefðu látið sig hverfa úr sviðsljósinu, svona á meðan að múturnar gengju yfir, og væru að koma nú tvíelfdir tilbaka. Þeir virðast þó ekki nærri gleymdir í Bandaríkjunum, þ.s. það var eitthvað fólk þarna sem var búið að "campa" þarna fyrir utan síðan á laugardaginn. En þetta var einmitt mánudags þáttur sem var sýndur í gær sem þýðir, fyrir ykkur sem ekki vitið það, að þá er Leno með besta dagskráliðinn Headlines. En fyrir ykkur sem misstuð af því í gær þá smellið bara HÉR og þá getið þið rúllað í gegnum eitthvað af þessum fyrisögnum.
mánudagur, maí 3
Allt er hey í harðindum nema hrærivél... Allt finnur maður sér að gera þessa dagan en að læra. Var að enda við að setja inn mail-link og msn-link á síðuna mína. Svo að nú getur lesnadi síðunnar haft við mig samband ef hann hefur á því áhuga. Það var heljarinnar bras að fá þennan msn-link til að virka, ætlaði að stela kóðanum af síðunni hans Bogga, sem og ég reyndar gerði. Það var útaf fyrir sig nokkuð einföld aðgerð, hins vegar hafði ég ekki rænu á því að athuga hvort að linkurinn sem hann væri með inni á síðunni sinni virkaði. Hann gerði það ekki. Svo að þá hófst hjá mér leit að einhverjum sem væri með svona link á síðunni sinni, sem virkaði. Fór fyrst í gegnum linka-listann minn, og fann þar engan. Hófst svo hand við að fara í gegnum listann hjá Bogga, og rakst þar á síðuna hjá Steina Trausta sem, þó hann hafi ekki verið duglegur að upp færa hana (já já ég veit) upp á síðkastið, er með msn-link sem virkar. En þá var verkið ekki einu sinni hálfnað því þessi linkur byggist upp á javakóða sem inni hélt tilvísanir í einhver function og object sem oru dreifð um kóða síðunnar, svo það tók mann dágóða stund að ráða fram úr þessu þannig að maður fengi það til að virka. En allt hafðist þetta nú á endanum, og nýttust þar stundirnar sem maður eyddi í að lesa og skrifa javakóða í tölvunarfræðinni fyrir áramót.
Einföld skilgreining Einföld skilgreining á muninum á kapitalisma og kommúnisma: Kapitalistinn sér mann sem er ríkur og hefur það gott, og hugsar: Ég vildi að ég væri jafn ríkur og hefði það jafn gott og hann. Kommúnistinn sér sama mann, og hugsar: Ég vildi að hann væri jafn fátækur og hefði það jafn skítt og ég.
sunnudagur, maí 2
Hátíðis dagur Engelbert Humperdinck á afmæli í dag, og er kappinn orðinn 68 ára gamall, en eitthvað er hann nú yngri á myndinni hér til hliðar. En fyrir hönd ritstjórnar helgiforseti.blogspot.com þá vil ég óska honum innilega til lukku með afmælið.
Komið sumar, minn rass !!! Hver var eiginlega að reyna að ljúga að manni að það væri komið sumar? Vona að sá maður verið úti í þessum skíta norðan garra. Það á ekkert að vera skíta kuldi núna, eitthvað rétt um 2°og maður sem hélt að það væri virkilega farið að hilla undir sumar. Jæja rétt samt að líta á björti hliðranar, styttist óðum í þessum fjandans skóla, verður fínt að fara að vinna aftur, og eiga kannski smá aur einhver tíman. Er kominn með miða á Metallica í A-svæði og alles (þ.e.a.s. ef Hannes klikkar ekki á þessu (sem ég á svo sem ekkert vona á (en maður veit nú aldrei))). Litli síðhærði feiti táningurinn í mér hoppar núna af kjæti. Verður nú svo sem að viðurkennast að aðdáun mín á þeim félögunum í Metallica er búin að fara ögn rénandi undanfarin ár. En maður er nú samt svona nett spenntur fyrir þessu þ.s. þetta var nú heitur draumur hjá manni hérna í denn að komast á tónleika með þeim fjórmenningunum. Hannes getur víst reddað einhverjum miðum í forsölu þarna í gegnum vinnuna, svo ef það er einhver sem ramabr inn á þessa síðu og vantar miða á tónleikana og þekkir kauða. Þá mæli ég eindregið með að sá hinn sami hafi samband við hann sem fyrst, þ.s. ég held hann geti verzlað meira til viðbótar.
laugardagur, maí 1
Slappað af í miðri próftörn Virðist eitthvað ætla að togna úr þessari pásu sem ég ákvað að taka mér frá lærdómi. Er svo sem ekkert farinn að stressast neitt yfir því, enda á ég ekki próf aftur fyrr enn á miðvikudaginn, en maður þyrfti nú samt eiginlega að fara að líta í bók. Ákvað samt að skella mér í bíó í gær, fórum saman félagarnir Kolbeinn, Þórir og ég. Eftir nokkrar fortölur höfðum við Kolbeinn það af að telja Þóri á það að fara með okkur á Secret window. Hann vildi endilega fara á einhverja heimildarmynd um fjallaklifur í Háskólabíó (N.B. fjallaklifrið átti sér ekki stað í Háskólabíó), en hann sá nú alls ekki eftir því að fara með okkur á Secret window, enda snilldar mynd þar á ferð. Johnny Depp er náttúrulega einhver besti leikarinn í dag, og fær þarna alveg frábæra persónu til að leika sér með, skemmtilega kaldhæðin. Og ekki er nú John Turturro síðri, frábær leikari þar á ferð, og hann skilar sinni persónu alveg ótrúlega vel. Flott handrit með vel heppnuðum kaldhæðnum húmor, sem klikkar náttúrulega ekki í höndunum á svona snilldar leikurum. Hvenær breyttist þessi síða eiginlega í kvikmyndagagnrýnis síðu?? |
Ég er fæddur í Eyjum 1981
Lesist á eigin ábyrgð Blogg-óði maðurinn
Þetta skoða ég Fréttir
Gamalt og mis gott mars 2004 Þakkir fá blogskins |