*
*
*
*
mánudagur, júní 28


Marinering og meira til
Það er ekki laust við að það hafi verið tekin létt marinering um helgina, þ.e.a.s. að maður hafi legið í bleyti. Já það eru nú víst ár og daga síðan að maður hefur sleppt úr tveimur heilum helgum. Svo að maður skellti sér á þokkalegt kenndirí þegar að maður skilaði sér í land aftur. Fórum eftir ballið á laugardags nóttinni niður á bryggju, ég, Hafþór Halldórsson og Hermann Sigurgeirsson, að taka á móti Ísleifi VE sem var að koma í land, og skila Sigurði Birni Oddsteinssyni (eða Sigurði tánings stúlku eins og ég kýs að kalla hann) af sér í frí, þ.s. að til stendur hjá Sigurði að skella sér á eitt stk. Metallica-tónleika.
Ég spjallaði heillengi við Gumma Sveins á ballinu, hann og Addi Þórs ætla, eins og venjulega, út í Brand fyrstu vikuna í Júlí. Eftir að vera búnnir að tala um úteyjaferðir og lundaveið í dágóða stund, þá vorum við báðir orðnir alveg upptjúnaðir í að fara að komast út. Var einmitt að spá í að reyna að komast út strax daginn eftir tónleikana. En þ.s. ég er en að gæla við þá hugmynd (skrýtið orða tiltæki...) að komast annan túr með Guðmundi fyrir Þjóðhátíð, þá gæti farið svo að manni gæfist tæplega tími til að fara þarna út. Verð bara að sjá til með hvernig að það verður, þegar að fer að líða á vikuna.






föstudagur, júní 25


Meir enn lítið gengið á
Nei, ég er ekki dauðir. Það kom bara skyndilega uppá að mér bauðst að fara túr með nýja Guðmundi VE 29. Þurfti að ná tali aðeins af pabba, kom því við niðri á verkstæði hjá honum. Hann sat þá inni á skrifstofu hjá sér að tala í símann. Á hinum endanum var greinilega Eyþór, því pabbi spurði mig hvort ég hefði áhuga á að fara á Guðmund. Ég þurfti þarna að taka ákvörðun um þetta á einhverjum sekúndum. Svo var það bara einn og hálfur tími sem mér gafst til að finna mig til og koma mér um borð. Þá kom letin sér loxins vel, þ.s. ég var ekki enn búinn að nenna að hafa fyrir því að taka uppúr töskunum frá því að ég náði í draslið mitt um borð í Antares.
Svo nóttina sem við lögðum úr höfn, þá fékk ég skilaboð þess efnis að ég ætti að hafa samband við systir mína vegna pabba. Og þegar að ég náði sambandi við hana þá kom í ljós að pabbi hefði fengið kransæðastíflu og verið fluttur með sjúkraflugi í borgina. En það blessaðist nú allt saman, sem betur fer, og hann komst í þræðingu þarna strax einhverjum tveimur tímum eftir að hann fann fyrir þessu, og bíður þess bara núna að fara í þræðingu á annari æð.
Og svo núna fyrir tæpri viku þá fékk ég fréttir af því út í smugu að læðan á heimilinu hefði verið að gjóta fimm ketlingum. Svo það beið manns bara heil hersing af nýgotnum kettlingum þegar að maður skilaði sér lox heim.
Þá er það bara Frakkland - Grikkland í kvöld og eitthvað kenndirí að honum loknum. Og forsetakosningar og ball á morgun. Og svo auðvitað Metallica eftir rúma viku. Það held ég að verði, eins og Guðmundur Kristján myndi orða það, Laglega kúl...






mánudagur, júní 7


Vinnufélagar mínir teknir af lögreglu fyrir að ríða við Kirkjugarðinn
Ef þú leasndi góður hefur verið að velta því fyrir þér hverjir Þetta hafi verið, þá get ég sagt þér það að þetta voru félagar mínir þeir Grétar Már Óskarsson og Hannes Kristinn Eiríksson. Og Tryggvi ræfillinn var alveg í rusli í dag yfir því að hvorugur þeirra skyldi vera í vinnu, þ.s. hann langaði svo agalega til að geta skotið þessu á þá.







Yfir 100 milljónir í bíla
Mér hefur borist það til eyrna, frá áræðanlegum heimildum, að Jón Ásgeir bónus prins, sé skráður fyrir 15 ökutækjum, þar af 7 bílum. Og hafa fróðir menn sagt mér að þessir 7 bílar hafi kostað hann ekki undir 100 milljónum. Meðal annara á hann Porsche jeppa, sem og Porsche sport bíl, en bara þeir tveir kosta sennilega ekki undir 30 milljónum.
En hvað er ég að þvaðra um þetta, kannt þú að spyrja þig minn tryggi lesandi. Þ.s. ég hef aldrei verið sérlegur áhuga maður um bíla, auk þess hvað kemur mér það við hvað Jón Ásgeir mikið á af slíkum tækjum. Var bara að spá í þegar ég heyrði þetta, afhverju væri ekkert búið að fjalla um þetta í sorpritinu DV. Finnst þér yfirskrift þessa "pósts" ekki vera týpísk forsíðu fyrirsögn í DV?
Spurning að hringja þetta inn sem fréttaskot til þeirra...







Nóg af sjó
Þá er það víst komið á hreint að ég fer ekki aftur út með Antares, ekki í þetta skiptið í það minnsta. Og kannski ekki seinna vænna að það komist á hreint, þ.s. skipið er að öllum líkindum að leggja úr höfn u.þ.b núna. En já það var nóg að gera um helgina. Nenni ekki að vera að fara út í eihver smá atriði hérna, en allanvega þá er ég búinn að lofa mér því að ég fer aldrei aftur í þennan pott/kar hans Haffa. Stórhættulegt helvíti...
En já aðalfundur VKB fór vel, ég hélt sæti mínu sem forseti, og öllum viðstöddum kom saman um það að þetta hefði verið lang besti aðalfundurinn til þessa. En hins vegar var eftir-fundar-partýið það slappast til þessa, en það mátti svo sem kannski líka við því að róast aðeins.
Fékk svo enn ein gleðitíðindin hér áðan, ég náði bara víst Burðarþolinu, og það með 7, bara nokkuð sáttur við það sko. þá gæti verið að maður reyndi að hjakkast í þessu eitthvað áfram.






föstudagur, júní 4


Allt á fullu
Maður er búinn að vera gjörsamlega á þönum undan farna daga við aðalfundar undirbúning. Maður er varla búinn að mega vera að því að lifa, að hafa allt þetta vesen ofan á það að vera að reyna að stunda vinnu. En nú er maður farinn að sjá fyrir endann á þessu, bara eftir að klippa til Skaupið. Ætli maður fái sér ekki eins og einn eða tvo øll yfir því. Svo er það bara potta/kosninga partý hjá Hafþóri hinum smáa (a.k.a. Haffi með brjóstin). Bara að vona að maður haldi forseta tigninni á morgun. Eða kannski ekki, þá yrði maður allanvega laus við að bera ábyrgð á öllu þessu veseni.






miðvikudagur, júní 2


Fosetinn fyrstur með féttirnar
Jaaa, eða svona svo til. Var reyndar sjálfur búinn að frétta þetta fyrir nokkru. En þetta var víst mikið leyndarmál, svo ég hef þagað yfir þessu fram til þessa. En mér skilst að þetta hafi lekið í Séð og heyrt, og að þetta eigi að birtast hjá þeim í blaðinu í dag (þótt ótrúlegt megi virðast, þá er ég ekki búinn að sjá Séð og heyrt í dag). En svo eru nú mál með vexti að bæði hljómsveitirnar Mínus og Egó munu troða upp á laugardeginum á Þjóðhátíð. Egó munu spila fram að flugelda sýningu og Mínus að henni lokinni. Spurning hvort Mínus taki Lover boy...






þriðjudagur, júní 1


Smá upplyfting
Það þarf ekki að hringja í Bolla og spurja um undirskál ef þú býrð í Bandaríkjunum. Sjáðu bara
Þetta
eða Þetta
eða Þetta
Svo er nú líka Þetta til
og Þetta...







Meir en lítið framundan
Lítur allt út fyrir að það gæti orðið nóg að gera hjá manni næstu daga. Aðalfundur VKB um helgina, og þar sem bæði ég og félagsmálaráðherrann Borgþór Ásgeirsson erum tiltölulega nýkomnir af sjó, þá er lítið búið að fara fyrir undir búningi á fundinum góða. Og ef á að framkvæma ekki nema helming þeirra hugmynda sem upp hafa komið fyrir fundinn, þá mun það taka allan okkar tíma. Er auk þess að fara að mæta í vinnu inn í Skipalyftu í fyrramálið, svo maður verður að finna tíma fyrir aðalfundarundirbúning á kvöldin. Erum meðal annars búnnir að boða til félagsfundar í kvöld, sem verður fyristi fundurinn sem haldinn er hjá félaginu hér í Eyjum í jaaa... ég man ekki hvað langan tíma. Svo það er bara að taka á honum stóra sínum, láta hendur standa fram úr ermum, snúa bökum saman, bíta jaxlinn og taka ærlega á því næstu daga, svo aðalfundurinn geti orðið sá glæsilegasti til þessa. Enda gæti nú farið sem svo að þetta yrði minn síðasti sem forseti, þ.s. Kolbeinn er farinn í mótframboð gegn mér.






Ég

er fæddur í Eyjum 1981

hef búið í Eyjum nær alla ævi

bý núna í Reykjavík

vinn sem möppudýr í smiðju í Garðabæ

er flokksbundinn Sjálfstæðismaður

veit ekki hvað ég get sagt fleira um sjálfan mig

býð þig hjartanlega velkominn á síðuna

e-Póstur

msn




Lesist á eigin ábyrgð

Blogg-óði maðurinn
Blogg-óða konan
Blogg-óði faðirinn
Þessi flúði land
Passið ykkur á þessum
Síra
Sýra
njé-2
Þessi kom á Þjóðhátíð
Oft gaman að þessum
Þessi er rokk-fróður
Þessi hefur áhuga á listum
Þessi kann að segja sögur
Þessi fær aldrei notið steríós
Þessi stuðlar að fjölgun mannkyns
Þessi ætlar að laga í mér lifrina
Þessi fór til Spáns
Þessi á dýptarmæli
Þessi fílar Bubba óhóflega mikið
Þessi styður Newcastle United
Þessi er mikið fyrir murtuna
Þessi stúderar í Danaveldi
Þessi er í Breskum leikskóla
Þessi kann á rússneskar bongótrommur
Þessi fann Jesúm
Þessi biður að heilsa
Þessi stjórnar bæ
Þessi kann að jóðla
Þessi valdi Hellisey
Foster's Blog
Foster's Net
VKB's Blog

Þetta skoða ég

Fréttir
Mogginn
Vísir
eyjar.net
Háskólinn
VKB
Dalurinn
Ægisdyr
Eyjabloggarar
B2.is
Google
Heimabankinn
Dagskráin
Árgangur '81
Leikjanet
Uncyclopedia
Encyclopedia
KÉSHÁM (NBA)
Öll tónlist
Eyverjar
IMDb
TV.com
YouTube
Reykjavík FM

Gamalt og mis gott

mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008
september 2008
október 2008
nóvember 2008
desember 2008
janúar 2009

Þakkir fá

blogskins
Main Site
Powered by TagBoard Message Board

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

eXTReMe Tracker