*
*
*
*
sunnudagur, júlí 25


Líður að Þjóðhátíð
Fjandinn þetta sumar er  bara að verða búið! Djöfull líður þetta hratt maður!! Og eins og venjulega, þá er maður ekki búinn að gera nærri því helminginn af því sem maður ætlaði sér í sumar. Ótrúlegt hvað maður heldur alltaf að maður geti komið miklu í verk á einu sumri. En við í VKB erum búnir að gera samt helling, Þjóðhátíðarheftið okkar komið úr prentun, dósirnar alveg að smella saman og saumaskapnum við bolina í þann veginn að ljúka. Djöfull verður gaman á þessari hátíð maður... Held ég sé bara ekki alveg að átta mig á því hvað það er í raun stutt í þetta. En svo er það bara harkan sex (hvaðan kemur þetta orðatiltæki eiginlega??) lærdómur og læti. Er nefnilega á leiðinni í upp töku próf 19. ágúst. Fer maður að læra í ládeiðunni sem leggst alltaf hérna yfir Eyjarnar fyrsta hálfa mánuðinn eða svo eftir Þjóðhátíð. Ohh hvað það á eftir að vera gaman (ATH. síðasta setning var meint sem kaldhæðni).






fimmtudagur, júlí 22


Hillir undir lokin
Jæja, þá er farið að sjá fyrir endann á þessu streði öllu. Vorum til að verða 04:00 í nótt að klára Þjóðhátíðarheftið okkar. Eigum rétt aðeins eftir að "fínesera" það eitthvað smávegis, og svo förum við með það á eftir og grýtum því í fosterinn til prentunar. Þá fara Þjóðhátíðarlofts-dósirnar líka að klárast fljótlega. Auk þess sem saumaskapnum við þessa boli fer senn að ljúka. Þá er það bara að finna kaupendur að þessu öllu saman. Efast samt um að það verði nokkuð mál, þ.s. þetta eru sértaklega fallegir og eigulegir gripir...






miðvikudagur, júlí 21


Fiðringur fyrir hátíðinni
Það er allt vitlaust að gera þessa dagana á vígstöðvum Vina Ketils Bónd. Við sátum fram til að verða 03:00 í nótt að vinna í Þjóðhátíðarheftinu okkar. Við fórum einnig og afhentum Birgi Guðjónssyni fyrsta eintakið af Þjóðhátíðarlofts dósunum. Og hlaut það þó nokkra umfjöllun á vefmiðlum okkar Eyjamanna Eyjafréttum.is og eyjar.net. Auk þess sem einhverjirkvittar hafa verið uppi um það að þetta muni berast í tal á RÚV núna á næstu dögum. Svo má nú náttúrulega ekki gleyma því að við félagarnir erum búnnir aðsitja sveittir við saumaskap núna undan farna daga að sauma boli á Þjóðhátíðargesti. Með slagorði félagisins þessa Þjóðhátíðina sem verður bara að koma í ljós hvað sé.






þriðjudagur, júlí 20


Hefuru þýfufleyti??
Þetta er alveg skelfilegt maður, ég er bara með flösu á enninu. Já þú last rétt, með flösu á enninu. Lenti í hörku veiði þegar veðrið var sem best þarna á föstudaginn, að ég sat úti í sólinni eiginlega stanslaust allan daginn. Og sólbrann þ.a.l. svo illa, að ég er allur farinn að flagna, og það veldur stanslausri snjókomu fyrir augum mínum. Ekki gaman það. Hefði samt kannski verið vit að vera í þessu ástandi á Metallica tónleikunum, hefði þá haft forskot á alla þá sem voru mættir þarna til að þeyta flösu. Spurning samt hvort maður sé ekki spenntari fyrir því að þeysa flötu. Efast samt um að flagnandi enni hjálpi til í þeim efnum...







mánudagur, júlí 19


Það hressir Skonrokkið
Jæja þá kom að því, loxins orðið hægt að hlusta á Skonrokk í Eyjum. Ég á það víst vini mínum honum Tryggva Má Sæmundssyni það að þakka. Þar sem hann er að koma upp Þjóðhátíðarútvarpinu Gufan fm 104,7 og samdi við Skonrokk um að senda þá út yfir þann tíma sem ekki yrðu útsendingar hjá Gufunni. Gunfan sjálf fer ekki í loftið fyrr enn á miðvikudaginn, en Skonrokk er nú þegar farið að rúlla á fm 104,7. Ég vil bara óska öllum Vestmannaeyjingum innilega til hamingju með það. Og það er bara vonandi að þessir vitleysingar hjá Norðurljósum sjái að sér og kippi X-inu út fyrir Skonrokk. Enda er vart hlustandi á þetta X...







Kominn úr suðurhöfum
Jæja, þá er maður búinn að skila sér úr lundaveiðinni, sólbrunnin og fínn. Var bara fín veiði, náði 400 kvikyndum á þessum fimm dögum sem égvar úti, ekki amalegt sérstaklega í ljósi þess að ég náði bara 35 fyrstu tvo dagana.
Það færist stöðugt meira líf í kettlingana, þeir eru aðeins farnir að brölta um stofuna og farnir að slást við hvorn annan og mömmu sína. Svo fer bara að líða að streðinu með að venja þetta á kassa og svo leiðis. Og já, ef þú lesandi kær, hefur áhuga á að eignast eitt af þessum dýrum þá förum við sennilega að fara að láta þetta frá okkur einhvertíman á næsta mánuðu eða svo. Þegar þetta verður farið að geta bjargað sér sjálft, orðið kassavant og þess háttar.
Og já það er hægt að breyta um lit á textanum í þessu bloggi...






miðvikudagur, júlí 14


Þjóðhátíð, lundaveiði og allt... og allt
Hrillilega er maður að verða slappur í þessu blogg-veseni. En jæja, margt í gangi þessa dagana. Það er víst komið á hreint að ég verð á Þjóðhátíð, þ.s. ég ákvað að koma mér út úr því að fara þennan túr með Guðmundi VE (við afar litla hrifningu foreldra minna, sem vildu náttúrulega að maður yrði skynsamur og notaði þennan tíma frekar til að afla peninga en til að eyða þeim (ég er bara greinilega ekki það skynsamur)). Já og allt að verða vitlaust hjá VKB þetta verður víst stærsta Þjóðhátíð í sögu félagsins (svona eiginlega "make or break" dæmi). En já svo er ég sennilega að fara út í eyju núna á eftir. Þarf nefnilega eiginlega að redda bróður mínum. Svo eru nefnilega mál með vexti, að bróðir minn fór út í Brand á mánudaginn og ætlaði að vera þar í einhverja viku til 10 daga, held ég, til að fagna þrítugs afmæli sínu, sem er einmitt í dag (til hamingju brósi). En það er nú þannig, að það er haft fyrir reglu úti í Brandi að mönnum er meinað að vera þar úti einir, sem er náttúrulega bara skynsamlegt (NB. ekki upphugsað af mér) þ.s. alltaf er hætta á því að eitthvað komi uppá. En þeir tveir sem eru með honum úti núna eru einmitt að fara í land á eftir, svo ef ég færi ekki út til hans þá yrði hann koma í land þar til að þeir feðgarnir Gvendur bót og Öddi fara út, en þeir ætla út á föstudaginn. Svo þá fer maður bara og drepur nokkra lunda og hefur það næs.






fimmtudagur, júlí 8


Vantar pössun...
Þá fer að líða að því að maður þurfi að fara að koma sér af stað norður til móts við Guðmund VE. Mamma og pabbi þurfa að fara þarna um svipað leiti, því það á að fara að hreinsa úr annari æða hjá pabba. Og þ.s. systir mín verður á einhverjum þvælingi uppi á landi og bróðir minn að halda upp á þrítugs afmæli sitt úti í eyju þá vantar okkur eiginlega kettlingapíu. Er ekki einhver þarna úti sem langar alveg voðalega til að passa 5 tveggja vikna gamla kettlinga???







Ný VKB síða
Þá er lox búið að henda upp nýrri VKB síðu, komnir líka með nýtt og mun flottara lén http://vinirketils.com/ Það er reyndar hellingur sem þarf að vinna í til að koma síðunni í það horf sem henni er ætlað, en það stendur nú allt til bóta.






miðvikudagur, júlí 7


Þjóðhátíð???????
Ekki er maður nú búinn að vera neitt sérlega duglegur við þetta blogg vesen eftir að maður kom í land. Langt um liðið frá síðustu færslu, og ýmislegt á daga manns drifið á þeim tíma. Fór á vegum Eyverja á hörku djamm út í Ellirey, þar sem Sigurður táningsstúlka fór með einhverjar þær mestu ýkjur sem ég hef á ævi minni heyrt. Svo vorum mál með vexti að ég fékk Víði Róberts til að fara upp með bakpokan minn, þ.s. ég ætlaði að bera bretti sem átti að fara á varðeld. En það fór ekki betur en svo að hann missti bokann minn í stærðarinnar poll á leiðinni upp. Skömmu eftir að ég skilaði mér upp að kofanum, þá heyri ég að Sigurður er að tala við einhvern í síma, og segir honum að ég hafi dottið í sjóinn. Mér þykir nú ansi langur vegur frá því að pokinn minn fari í poll og að ég fari í sjóinn. Svo var það auðvitað Skvísusundið með tilheyrandi fjöri að úteyjaferð lokinni.
Síðan á sunnudeginum, þá var það sjálf stóra stundin, tónleikar með Metallica. Ég var temmilega spenntur fyrir þessu, þar sem ég hafði nú ekkert mikið verið að hlusta á þá undanfarin ár en síðhærði táningurinn í mér braust fram þegar tónleikarnir hófust, og ég fékk mestu gæsahúð ævi minnar þegar Ecstasy of Gold hófst. Ég hefði aldrei trúað því að þetta myndi snerta mig svona djúpt, en þetta var hreint ótrúlegt.
En svo er það stóra málið, ég fór niður í Ísfélag í morgun, að tala við Eyþór Harðar útgerðarstjóra, og það eru víst allar líkur á því að ég sé að fara aftur á Guðmund VE. Sem er svo sem ágætt að öllu leiti öðru en því, að það er ekki víst að ég nái þá Þjóðhátíð. Því ef við verðum ekki búnnir að fylla hann af frosnu fyrir Þjóðhátíð, þá fer hann ekkert í land. Svo það er bara að krossleggja fingur og vona að allt fari vel. Spurning um að fara núna í vikunni og redda öllu áfenginu sem til þarf, ef maður skyldi skila sér í land kannski á föstudegi eða laugardegi.






Ég

er fæddur í Eyjum 1981

hef búið í Eyjum nær alla ævi

bý núna í Reykjavík

vinn sem möppudýr í smiðju í Garðabæ

er flokksbundinn Sjálfstæðismaður

veit ekki hvað ég get sagt fleira um sjálfan mig

býð þig hjartanlega velkominn á síðuna

e-Póstur

msn




Lesist á eigin ábyrgð

Blogg-óði maðurinn
Blogg-óða konan
Blogg-óði faðirinn
Þessi flúði land
Passið ykkur á þessum
Síra
Sýra
njé-2
Þessi kom á Þjóðhátíð
Oft gaman að þessum
Þessi er rokk-fróður
Þessi hefur áhuga á listum
Þessi kann að segja sögur
Þessi fær aldrei notið steríós
Þessi stuðlar að fjölgun mannkyns
Þessi ætlar að laga í mér lifrina
Þessi fór til Spáns
Þessi á dýptarmæli
Þessi fílar Bubba óhóflega mikið
Þessi styður Newcastle United
Þessi er mikið fyrir murtuna
Þessi stúderar í Danaveldi
Þessi er í Breskum leikskóla
Þessi kann á rússneskar bongótrommur
Þessi fann Jesúm
Þessi biður að heilsa
Þessi stjórnar bæ
Þessi kann að jóðla
Þessi valdi Hellisey
Foster's Blog
Foster's Net
VKB's Blog

Þetta skoða ég

Fréttir
Mogginn
Vísir
eyjar.net
Háskólinn
VKB
Dalurinn
Ægisdyr
Eyjabloggarar
B2.is
Google
Heimabankinn
Dagskráin
Árgangur '81
Leikjanet
Uncyclopedia
Encyclopedia
KÉSHÁM (NBA)
Öll tónlist
Eyverjar
IMDb
TV.com
YouTube
Reykjavík FM

Gamalt og mis gott

mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008
september 2008
október 2008
nóvember 2008
desember 2008
janúar 2009

Þakkir fá

blogskins
Main Site
Powered by TagBoard Message Board

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

eXTReMe Tracker