![]() |
|
|
þriðjudagur, ágúst 31
Lyktar af dauða og volæði Jæja þá er maður fluttur í borgina. Skólinn rétt að skríða af stað og svona, og allt að verða komið í sama leiðinda horfið. Prófaði núna áðan í fyrsta skipti að keyra beint úr Grafarvoginum í skólann, það tók mig ekki nema rétt um 15 mín, þetta var reyndar svo sem ekki á háanna tíma, en allanvega góðs viti. Bjóst eiginlega við meiru sko. Jæja þá er það bara Bónus í dag og flott heit, koma sér upp lager ef mat og öðru. Verður sérstakt að þurfa að fara að elda ofan í sig aftur eftir allan þennan tíma. Humm hvernig sauð maður aftur pasta??? Samt ágætt að vera kominn hingað aftur, þó mér þyki það nú óþarfi að það skyldi endilega þurfa að byrja að rigna þegar ég flyt hingað. Ég sem ætlaði að rölta um bæinn og skoða allar fáklæddu físurnar í góða veðrinu. En svona er þetta víst, þetta spilast ekki allt eftir manns höfði. Enda ef svo væri, þá væri ég búinn með verkfræðina núna, sá fyrsti til að klára hana (Sindri slepptu því) á einu ári. P.s. yfirskrift þessa pósts er tilvísun í íslenskan texta Mjúkrassa strákanna við lagið Man of constant sorrow
mánudagur, ágúst 30
Með ráð undir rifi hverju Eins og kemur fram í póstinu hér að neðan, þá fórum við nokkrir peyjarnir í það í gærkvöldi er við sátum að sumbli í húsinu hans Hafþórs er kenndur er við smæð sína (hrillilega er þetta háfleygt hjá mér...) að semja íslenskan texta við lagið Man of constant sorrow. Þegar líða fór á textasmíðina og menn fóru að sjá að þetta var alls ekki fráleitt sem við vorum komnir með, þá vildum við endilega fara í það að festa þetta niður á blað. Var ég þá sendur í leiðangur að reyna að útvega okkur bæði skriffærum og eitthverju til að rita á. Skaut því þá upp í kollinn á mér að ég ætti penna úti í bíl hjá mér sem ég hafði einmitt „parkerað“ fyrir utan húsið. En þó ég væri svo kominn með pennann í hendurnar þá var málið ekki nærri því leyst, því enn vantaði okkur eitthvað til að skrifa á. Æddi ég því um allt hús eins og óður væri, og spurði alla sem ég mætti hvort þeir hefðu nokkuð eitthvert bréfsnifsi sem ég gæti fengið að krassa á. Einn þeirra sem varð á vegi mínum og ég spurði hvort hefði nokkuð til að skrifa á, hafði ekkert bréfsefni haft með sér í þetta sinn en ekki stóð þó á svarinu hjá honum, enda er táningsstúlkan hann Sigurður Björn ekki þekktur fyrir að deyja ráða laus. En hann benti mér einmitt, undrandi á eftirtektarleysi mínu, á að þarna væri allt fullt af hvítum veggjum... Skemmtileg saga það finnst ykkur ekki?
sunnudagur, ágúst 29
Af flutningum og drykkju... Þá fer að líða að því að maður fari að flytjast búferlum, í Grafarvoginn. Fer á morgun með seinniferðinni, ætla að reyna að koma Volgs wagen druslunni minni fyrst í gegnum skoðun í fyrramálið. Er reyndar ekkert farinn að pakka enn þá eða neitt, enda tekur því svo sem ekki að vera að stressa sig eitthvað á því. Fór aldrei þessu vant á kenndirí í gær. Var reyndar búinn að lofa sjálfum mér því að vera rosa duglegur og vera edrú þessa helgina, ekki hvað síst sökum þess að hún móðir mín var búina að vera eitthvað að íja (??rétt stafsett??) að því við mig að ég ætti við drykkjusýki að stríða. Ég er ekki frá því að hún hafi haft eitthvað fyrir sér í því. Þetta var nú reyndar frekar ómerkilegt kenndirí að eiginlega öllu leiti nema kannski því, að við peyjarnir, eða Mjúkrassa strákarnir eins og við kölluðum okkur, gerðum íslenskan texta við lagið Man of constant sorrow, sem hét í okkar meðförum Maður eilífrar eymdar. En jæja maður verður verður þá bara edrú í Reykjavíkinni. Eða er það ekki annars??
fimmtudagur, ágúst 26
Bumban Það stóð til að fara á fund sýslumanns núna í dag og ræða við hann um Stóra Margeirsmálið. En kallinn er víst í einhverju fríi fram í miðja næstu viku, svo það virðist þurfa að bíða betri tíma. Það er víst komið á hreint að ég mun búa í Grafarvogi í vetur, og leigja þar herbergi af kjötbollunni honum Kolbeini Ólafssyni. Eða kannski öllu heldur forledrum hans sem eiga víst þessa íbúð. En Kolbeinn mun einmitt ver í hinu herberginu í íbúðinni, og vona ég að vel muni fara á með okkur. En þar sem við erum báðir sérstaklega dagfarsprúðir drengir, þá hef ég ekki nokkra trú á öðru. Vissi náttúrulega alltaf að það myndi rætast úr þessum málum. Sérstaklega vegna þeirra gífurlegu viðbragða sem ég fékk við því þegar ég óskaði eftir samastað í borginu hér á blogginu (ATH. síðasta setning var ætluð sem kaldhæðni). Fínasta íbúð í fínu hverfi, flott bara að öllu leiti, nema hvað varðar fjarlægð frá skóla og miðbæ. Enda hef ég trú á að maður fái að gista hjá einhverjum sem býr nær miðbænum eftir nokkur kenndiríin í vetur. Og stúlkur ekki vera að fylla komment kerfið hjá mér, sendið mér bara e-mail ef þið viljið að ég gisti hjá ykkur nótt og nótt í vetur, það er einmitt þar til gerður linkur hér til hliðar. Frétti í gær af nýjum veitinga stað sem á víst að fara opna í Reykjavíkinni á næstunni, við Austurstræti að mig minnir. Svo eru mál með vexti, að ég var boðaður í hamfletningu hjá veiðifélaginu í Brandinum, eyjunni sem ég stunda lundaveiði í. Og rifum við einhver 1700 kvikyndi úr hamnum. Á meðan á því stóð tjáði gjaldkeri félagsins okkur það að veitingastaður sem ætti að fara að opna í borginni ætlaði að kaupa af okkur eina 1000 fugla. En þeir þyrftu að bíða þess að þeir yrðu búnir að koma upp frystigeymslu hjá sér. Þessi veitingastaður átti einmitt að bera það skemmtilega heiti Bumban. Þetta nafn veldur því nú bara held ég, að maður neyðist til að kíkja einhvertíman þangað í át.
miðvikudagur, ágúst 25
Heim á ný Jæja, þá er maður kominn aftur til Eyja. Er reyndar ekki harð ákveðinn í því hvað ég ætla mér að stoppa lengi. Þessi fjandans skóli fer víst að byrja, djöfull er ég ekki að nenna að fara aftur í skóla. Myndi helst bara vilja flytja til Reykjavíkur og fara að vinna þar. Nenni allanvega ekki að vera hérna í vetur, nær allir vinir mínir að verða komnir í borgina, og fer þeim ört fjölgandi sem þangað flytja. Er heldur ekki alveg að sjá hvernig ég ætla að fara að því að lifa í borginni í vetur án þessað vera að vinna. En sökum vitleysings háttar af minni hálfu í sumar, er ég ekki nærri því jafn vel fjáður og ég ætlaði mér að vera nú í haust. En æi segir maður ekki bara að þetta reddist. Það er nú útlit fyrir að við komum út allanveg fjórum af kettlingunum fimm sem læðan á heimilinu eignaðist núna í sumar. Er nú þegar búið að finna þremur þeirra heimili, reyndar einum hérna (þ.s. við ætlum að halda einum eftir) og einum hjá systir minni. Svo er einhver kelling að skoða þá sem eru eftir núna. Hefði verið leiðinlegt ef við hefðum þurft að láta lóga þessu núna, þegar þeir eru búnir að vera svona lengi inni á heimilinu. Svo ef þú, minn dyggi lesandi, hefðir áhuga að að taka eitt dýranna að þér, þá endilega hafðu samband.
þriðjudagur, ágúst 24
Djöfull getur þetta verið pirrandi, HA! Mikið djöfull þoli ég ekki þegar menn, þá sérstaklega fjölmiðlamenn, enda setningar á ha. Ég get látið þetta fara alveg hrikalega í taugarnar á mér. Skil reyndar ekki afhverju, en ég geri alltaf einhverra hluta vegna meiri kröfur til fjölmiðlamanna en annars fólks að þeir tali þannig að vit sé í. En maður ætti nú að vera löngu búinn að gera sér grein fyrir því að það sé ekkert samasemmerki milli þess að hafa atvinnu af að tjá sig, og að vera almennilega fær um það. Sér í lagi ef maðurinn hefur atvinnu af því að tjá sig um íþróttir. En þeim sem það hafa þykir mér einmitt vera helst hætt við að enda sínar setningar á ha, ekki síst spurningar: Þetta var nú bara ágætis leikur af ykkar hálfu, HA? Þó held ég samt að þetta fari meira í taugar á mér þegar menn enda setingar sínar á ha, og eru ekki að spyrja neinn að neinu... En æi, nóg um það. Bara hættið þessu!
föstudagur, ágúst 20
Eftirsóttur í mannfagnaði Já já, það er aldeilis að maður er að verða eftirsóttur í allskyns samkomur (eða samkuntur eins og Borgþór orðaði svo eftirminnilega á sínum tíma). Það er nefnilega búið að bjóða mér að vera viðstaddan opnun á nýrri saumastofu á Laugarveginum, já þú last rétt saumastofu. En svo eru mál með vexti að fráfarandi formaður Eyverja, og vinnkona mín (þó ekki fráfarandi) og kjólameistari Selma Ragnarsdóttir, stefnir að því að gera stóra hluti í tískuiðnaðinum hér í Reykjavík og mun opna vinnustofu að Laugarvegi 59 2. hæð, og bauð hún mér í onunaparty þar í kvöld. En auk þess þá hringdi í mig frænka mín hér rétt áðan og bauð mér í slátur heim til sín. Svo að ef maður lætur sjá sig á öllum stöðum, þá er dagskráin ansi þétt skipuð hjá manni í kvöld. Slátur og síðan øll á eftir, gerist nú ekki öllu betra.
Enn af bíó-ferðum í borginni Fór aftur í bíó í gær, nú á Fahrenheit 9/11. Maður gerði sér náttúrulega ákveðnar væntingar fyrir þessa mynd, og get ég sagt þér það minn tryggi lesandi, að ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Þetta er einhver fyndnasta mynd sem ég hef séð í þó nokkurn tíma, Michael Moore er helvíti hnittinn gaur. En þó svo að ég telji mig vera demókrata þegar kemur á bandarískum stjórnmálum, þá fannst mér hann vera fullgrófur á köflum í gagnrýni sinni á repúlikanana. Þetta var svo greinilegur áróður, og oft á það lágu plani, að ég hef trú á því að þetta virki bara öfugt á marga Kana sem voru kannski óákveðnir fyrir. En hvað um það, þá er þetta hin mesta skemmtun og ansi upplýsandi á köflum, þó maður reyni nú að passa sig á að taka þessu ekki öllu sem heilögum sannleika.
fimmtudagur, ágúst 19
Gullæði að grípa um sig í Eyjum?? Ég rakst á þessa afar athyglis verðu grein inni á Eyjar.net. Þar segir að þýskur jarðfræðingur haldi því fram að hann hafi fundið demant í nýjahrauninu í Eyjum. En það eru nú hreint ekki allir á því að þessi frétt sé sannleikanum samkvæm, samanber þessa grein sem er einnig að finna inni á Eyjar.net. Ég er persónulega sammál þeim Sigurði og Atla um að þetta sé ekki satt, þ.s. ég tel mig vera ansi nálægt því að vera sérfræðingur í málefnum nýjahraunsins. Því ég og æskuvinur minn Leó Snær eyddum oft heilu dögunum þarna uppi á hrauni, og fórum í margar fjarsjóðsleitir, sem engar báru árangur. Við fylltum meira að segja eitt sinn poka af einhverju sem við einmitt töldum að væru demantar, en reyndust svo vera eitthvað algengt fyrirbæri sem ég man ekki hvað heitir. Svo ég tel mig hér með geta lýst því yfir, að gefnu mínu sérfræði áliti, að þessi frétt sé bull...
miðvikudagur, ágúst 18
Þorpið heillaði Við fórum nokkrir peyjar í bíó í gær að sjá nýju M. Night Shyamalan myndina, the Village. Helvíti fín mynd sko, mæli eindregið með henni (svona þegar ég hef hvorki tommu stokk né málband við hendina (mikið skelfilega er ég fyndinn (á eflaust eftir að drepa einhvern einhvern daginn (úr hlátri þ.e.a.s.)))). Mér finnst sem hann nái sér aftur á flug í þessari mynd, eftir þau vonbrigði sem Signs olli. Mér þótti Adrien Brody alger snilld í hlutverki þroskahefta mannsins og svo var þessi nýja þarna, hún Bryce Dallas Howard, virkilega góð í sínu hlutverki. Handritið er flott hjá honum Shyamalan, þó svo að ég hafi nú verið búinn að geta mér til um hvað aðal „twist-ið“ í því væri. Þá spilar hann virkilega vel úr þessari hugmynd, og nær að koma inn slatta af punktum sem maður sér ekki fyrir. Held svei mér þá bara að það sé orðið langt síðan ég hafi varið 800 kr á janf gáfulegan hátt.
þriðjudagur, ágúst 17
Stóra Margeirs-málið Já þetta er satt, Bræðrafélagið Vinir Ketils Bónda, sem ég er einmitt í forsæti fyrir, hefur verið kært fyrir „áfengisauglýsingu“ sem birtist í Þjóðhátíðarheftinu okkar (Þroskahefti). Auglýsingin hljóðar reyndar orð rétt svona: Skál frá Margeiri skipstjóra Hvað er ólöglegt við þetta? Getur einhver sagt mér það??
Afbrigðilegheit Hvað er í gangi ÞARNA. En bíddu er Haffi kominn með samkeppni?? Já svei mér þá, ég er nú ekki frá því --> SMeLLA
mánudagur, ágúst 16
Brjóstin sem fylla borgina Jæja, þá er maður kominn í þessa fjárans borg aftur. Æi, það er svo sem kannski alveg ágætt, fínt að komat aðeins að heiman. En ég er sko engan veginn að nenna að fara að eyða tímanum mínum í einhvern lærdóm og vesen. En svona er þetta víst... Við Boggi fórum með fyrir ferð Herjólfs í dag, og ætlaði Boggi að komast inn á Stúdentagarðana, þ.s. hann er reyndar ekki enn kominn með herbergi, en Lára frænka hans er komin með í sömu íbúð og hann ætlar að vera, svo hann ætlar fyrst um sinn að vera í hinu herberginu í íbúðinni, sem sagt herberginu hennar og svo skipta þau sennilega, eða kannski ekki (skiluru MIG ekki?). En jæja, „pojntið“ er það að maðurinn sem sér um að útbítta lyklum, er ekki við nema frá 11 - 12 0g 15 - 16 svo við urðum að gera eitthvað til að drepa tímann þar til að Borgþór kæmist í að ná í lykilinn sinn (eða nei, hennar Láru...). Það dráp var aðalega framkvæmt með því að aka um stræti borgarinnar, þá helst neðri hluta Laugarvegarins. Þar var margt föngulegra stúlkna á ferð, en vorum við Borgþór helst á því að það hefði verið rýmingar sala á sílíkoni núna í sumar, þ.s. að hver stórbrjósta þveng mjóa stúlkan rak aðra. Og er svo sem ekkert nema gott um það að segja...
sunnudagur, ágúst 15
Múrarinn farinn að steypa Nú er vinur minn og fyrrverandi sambýlingur, og sérlegur „bloggfrík“, Borgþór Ásgeirsson, kominn upp á lag með að nota einhverskonar gsm-blogg. Og er það búið að vera í meira lagi athyglisvert að fylgjast með bullinu sem hann er búinn að vera að henda inn núna, meðan hann hefur legið í marineringu á töðugjöldum. Að megninu til eru þetta nú ansi ómerkileg og sérlega steypt ýmist mynd eða hljóð skeyti sem hann hefur verið að senda þarna inn. Kannski þó að ÞESSU undanskildu.
laugardagur, ágúst 14
Hundraðasta póstið Já minn dyggi lesandi, þá er sú stóra stund runnin upp, komið að mínu hundraðasta pósti. Á þessum merku tímamótum tel ég rétt að minnast eins af mínum fyrstu bloggum. Fór inn í „archives-ið“ hjá mér áðan og var að leita að viðeigandi gömlu pósti til að henda hérna inn. Þar rakst ég á eftirfarandi og vegna þess að stórvinur minn Kolbeinn Ólafsson tók upp á því að fytja núna nýverið þá fannst mér tilvalið að láta það flakka: Ógnar ástand
föstudagur, ágúst 13
Nýtt „lúkk“ Það ætti ekki að fara fram hjá neinum, sem á annað borð hefur rambað hingað inn áður, að ég er búinn að breyta „lúkkinu“ á síðunni. Ég kann ágætlega við þetta svona, var eiginlega orðinn svolítið leiður á hinu, fannst það of rautt eitthvað. Þessi mynd þarna efst er bara eitthvað sem fylgi „skinninu“ ágætis mynd reyndar, en ég var samt að reyna að finna eitthvað annað. Ef þið hafið einhverjar ábendingar um einhverja sniðuga mynd bendið mér þá endilega á hana (ha ha voða fyndið). Er helst að spá í einhverri svona grátóna mynd. Eins ef þið finnið eitthvað að þessari nýju uppsetningu minni, þá endilega bendið mér á það.
Kettlingar fást gefins Ég auglýsi eftir fólki sem hefur áhuga á að eignast kettling. Er með þrjá kettlinga sem ég þarf eiginlega að losna við sem fyrst. Ef það finnst ekki heimili fyrir þessa ræfla á næstu dögum, þá á að farga þeim. Svo ef einhver þarna úti hefur áhuga á að taka eitt þessara greyja að sér, þá vinsamlegast hafi samband við mig sem fyrst.
Ekki á allt kosið í þessu Ætli maður verði ekki að henda einhverju hérna inn á síðuna fyrir ykkur ræflana. Síðan er nú búin að vera svaka vinsæl udanfarna daga. Bara búnir að kíkja hérna inn um 60 manns síðan á sunnudaginn að ég póstaði síðast. Nema að þetta sé bara Sindri Freyr að koma aftur og aftur, spurning sko... En já búið að vera mikið í gangi hjá manni þessa vikuna. Búinn meðal annars að fara í tvenn grillteiti, fyrst á þriðjudaginn hjá Bogga, þ.s. voru auk okkar Bogga þeir Hannes Kristinn Eiríksson viðskipta- og iðnaðarmálaráðherra og sérlegur tengiliður Vina Ketils Bónda við íslenskt atvinnulíf og Siguður táningsstúlka. Það var svaka fjör og afrekuðum við meðal annars það að ná tjalddúknum niður pakka honum saman og koma honum í geymslu, auk þess sem við gegnum frá teppinu úr tjaldinu sem var búið að hanga til þerris í þó nokkra daga. Svo sló Hannes einnig upp grillteiti hjá sér í gærkvöld, þar sem ég og barbarónninn Tryggvi Már Sæmundsson (auk Hannesar vitanlega) gæddum okkur á alveg hreint dýrindis hvítlauks humri með hvítlaukssósu og hvítlauksbrauði, og var þessu öllu auðvitað skolað niður með ótæpilegu magni af bjór og smá hvívíni með humrinum. En nú er allt gamanið búið og sit ég hérna einn eftir á Eyjunni meðan peyjarnir fara allir á töðugjöld. En svona er þetta bara, maður verður víst að ryna að læra eitthvað fyrir þetta upptökupróf sem maður er að fara í á fimmtudaginn. Hvernig datt mér í hug að skrá mig í sumar próf?? Djöfull er ég ekki að nenna þessu!! Og já maður ætti kannski að fara að tékka á íbúð í bænum fyrir skólann. Er nokkuð einhver þaran úti sem vill bjóða mér gistingu í bænum? Svona ca. frá byrjun september fram í maí??
sunnudagur, ágúst 8
Humm... Það er aldeilis sem þessi síða er búin að vera vinsæl að undanförnu. Teljarinn bara búinn að núlla sig og farinn að telja upp á nýtt.
föstudagur, ágúst 6
Þjóðhátíðarþreyta Jæja jæja, þá er peyjinn bara mættur aftur á veraldarvefinn. Er búinn að vera netsambandslaus síðan að mamma og pabbi fóru upp á land á mánudeginum fyrir Þjóðhátíð, þ.s.pabbi hafði tlövuna sína með sér og mín neitar að tengjast netinu sökum einhverss vírussar að ég tel. En hvað um það, þessi Þjóðhátíð var alveg mögnuð maður. Fór vel af stað, ég var vakinn í tjöldun eitthvað um 10-11 á föstudagsmorgninum, enn á rassgatinu eins ogvenjulega. Það tók okkur rétt svo einhverja fjóra tíma að tjalda, og að því loknu tók við innvígslan og innvígslu partýið (sem var í boði Margeirs Kapteins þetta árið) sem stefnir hraðbyr í að verða einn af stærstu og skemmtilegustu póstum Þjóðhátíðanna. Allanvega var þetta eitthvert allra skemmtilegasta partý sem ég hef upplifað á minni annars partýprýddu ævi. Og ekki klikkaði Loverboy-inn frekar en við var búist og allt bara eins og í draumi held ég. Þó að menni þurfi kannski að skoða þetta með Loverboy-partýið, þ.s. það er rétt um það bil að fara að ganga of langt. En reyndar eftir það sem Gunnar Már afrekaði á föstudaginn, þá efast ég um að nokkur meðlimur félagsins geti gengið of langt... En nú dreymir mig bara einna helst um að fá að sofa, og hlakka mikið til þess. Því maður sýndi þvílíkan dugnað þetta árið og var mættur til vinnu kl. 7:30 á þriðjudagsmorgninum. Við mikla undrun verkstjóra míns. Sá reyndar eiginlega eftir því þegar líða fór á daginn, því þá fór að sækja á mig svo mikil þreyta að ég var nærri búinn að sofna undir stýri þegar ég var að aka heim í hádegismat og strauja yfir eins og einn smákrakka. Ég komst nú reyndar hjá því, en hef samt engu að síður verið skelfilega þreyttur og sljór. En þá er það bara svefn sem bíður þessa helgina. Djöfull á það eftir að vera gott að geta loxins sofið almennilega... |
Ég er fæddur í Eyjum 1981
Lesist á eigin ábyrgð Blogg-óði maðurinn
Þetta skoða ég Fréttir
Gamalt og mis gott mars 2004 Þakkir fá blogskins |