*
*
*
*
fimmtudagur, september 30


Öl í krús
Djöfull er maður að verða laglega spenntur fyrir helginni. Sleppti úr heilli helgi síðast en nú er stefnan sett rúllandi fyllerí á morgun. Þá fer einmitt fram bjórhátíð Arminius. Það var hrikalega gaman í fyrra, og nú er markið víst sett enn hærra. Og ekki er það beint til þess fallið að draga úr tilhlökkuninni að til setndur að halda stofnfund Ölkrúsarfjélagsins Stimma Gísla. Sem er einmitt skírt í höfuðið á snillingnum sjálfum, honum Stimma Gísla. Mér hefur einmitt hlottnast sá heiður að vera boðið að gerast stofnfélagi ásamt fimm öðrum, sem ég er ekki viss um hverjir séu. En við getum víst ekki verið fleiri, þar sem ekki eru nema sex krúsir í boði. Verður því vafa laust afar spennandi að sjá hverjir mæta þarna til leiks auk mín og Borgþórs. En ég geri fastlega ráð fyrir að hann verði einn af þessum fimm, því að hann boðaði til þessa fundar, auk þess sem fundurinn fer fram að heimili hans.






þriðjudagur, september 28


Allt að fara í vaskinn
Hvað myndi Eiki segja ef hann vissi af þessu?






mánudagur, september 27


Við Skjáinn á Sunnudegi
Það var ekkert lítið sem maður fagnaði á sínum tíma þegar maður frétti af því á sínum tíma að Skjár 1 væri kominn með sýningarréttinn á Ensku deildinni. Maður sá fram á að geta eytt enn fleiri tímum við imbann að glápa á Skjá 1 meðan maður væri hérna í borginni. Í gær var einmitt verið að sýna leik Portsmouth og Everton, og var maður búinn að koma sér vel fyrir þegar leiknum lauk og hélt maður gæti flatmagað yfir dagskránni hjá þeim á Skjá 1 þar til maður þyrfti að fara að spá í kvöldmat eða eitthvað. En svo var nú aldeilis ekki. Það sem fylgdi þarna á eftir voru þættir eins og Innlit/útlit, Fólk með Sirrý og Judging Amy. Hvað eru þessir menn að spá eiginlega, að vera komnir með aragrúa af karlmönnum við skjáinn að fylgjast með boltanum, og skella svo þessu á til að passa upp á það að halda alveg örugglega ekki áhorfinu. Því þó að ég hafi nú ekki gert hávísindalega rannsókn á því, þá er ég allveg með það á tæru að þeir sem hafa hvað mestann áhuga á boltanum er ekkert sérstaklega gefið um þætti sem þessa.






föstudagur, september 24


Verslunarferð í morgunsárið
Það var frí hjá mér í fyrsta tímanum í morgun, svo ég þurfti ekki að mæta fyrr enn 11:10. Þegar ég kom mér fram úr rúminu rak ég augun í bækling frá Bónus sem lá á forstofugólfinu ásamt Fréttablaðinu. Þegar ég fór að fletta þessum Bónusbækling þar sem ég sat og gætti mér á morgunverðinum, kom það í ljós að í honum væri verið að auglýsa tilboð í Bónus í Spönginni (sem er hérna rétt hjá mér) í tilefni af því að verið væri að opna verslunina aftur eftir breytingar. Það voru nokkur tilboð þarna sem mér leist all vel á, en ég hugsaði með mér að það yrði sennilega svo mikið að gera þarna í dag að ég myndi tæplega nenna að fara þarna eftir skólann. Eftir að hafa velt mér upp úr þessu um tíma rak ég augun í það að verslunin ætti að opna kl. 10, svo ég tók þá ákvörðun að drífa mig bara áður en ég færi í skólann. Ég brunaði þarna niður úr, hentist inn og fleygði því í körfu sem ég hafði í hyggju að kaupa og dreif mig svo að kössunum. Þar sem ég var orðinn tæpur á tíma að komast í skólann stóð ég þarna um stund eins og bjálfi að leita að kassanum sem minnst væri að gera á (eða sætasta stelpan að vinna á). Hver heldur þú þá að hafi komið upp að mér og bent mér á kassa sem væri í þann veginn að losna, lesandi góður, annar en sjálfur Jóhannes í Bónus. Og best af öllu, þá var bara þessi fína físa að afgreiða þar. Verð að muna eftir því að taka í hendina á Jóhannesi og þakka honum fyrir næst þegar ég hitti hann.






fimmtudagur, september 23


Hasar í Grafarvoginum
Það var nú meir en lítið sem gekk á hér í Rimahverfinu í dag. Kolbeinn kallaði mig til liðs við sig að þefa með honum útum gluggann á hebeginu hans, þ.s. hann taldi sig hafa fundið brunalykt. Eftir að hafa borið saman bækur okkar um þennan óþef komumst við að þeirri niðurstöðu að þetta lyktaði einna helst eins og brunninn matur, kannski of ristað brauð, svo við vorum ekki að velta okkur neitt frekar upp úr þessu að sinni. Ég settist aftur niður hérna við tölvuna og Kolbeinn dreif sig í sturtu. Eftir að ég hafði setið við tölvuna um stund heyrði ég að brunaboðinn í íbúðinni við hliðina væri farinn að pípa í ofboði. Skömmu eftir það varð ég var við einhvern skarkala hér fyrir utan. Ákvað ég því að rölta í útidyrnar að kynna mér hvað væri þarna í gangi. Þá blöstu við mér lögreglubíll, slökkvuliðsbíll og sjúkrabíll sem í var verið að bera mann á börum. Þá ákvað ég nú að berja að dyrum á baðherberginu og láta Kolbein vit af því að það logaði einhvers staðar í húsinu. Vakti það eðlilega nokkur viðbrögð hjá honum þar sem hann stóð undir sturtunni. Þá rölti ég mér út til hinna íbúa hússins sem voru búnir að koma sér fyrir á bílastæðinu að fylgjast með slökkvuliðsmanni að slökkva í einhverju sem líktist einna helst dýnu. Þegar ég var tiltölulega nýbúinn að koma mér þar fyrir þá kom Kolbeinn í gluggann og læddist yfir hann skelfingar svipur þegar hann sá mannsöfnuðinn á bílastæðinu og rauk beint út til okkar. Eftir að hafa staðið þarna í smá tíma og virt fyrir okkur aðgerðir slökkvuliðsins ákváðum við það að þetta væri nú það lítilvæglegt að ekki tæki því að hanga þarna öllu lengur og röltum okkur inn þar sem ég tók enn á ný til við netvafrið mitt.






miðvikudagur, september 22


Af sveit og borg
Eins og flestum sem hafa einhevrtíman villst inn á þessa síðu mína áður ætti að vera ljóst, þá er ég fluttur út í Grafarvog. Því þarf ég að eyða töluvert meiri tíma í bíl þessadagana en síðasta vetur. Það munar töluvert um það að fara frá því að vera u.þ.b. 3 mín að koma sér í skólann kl. 08 á morgnanna í það að vera um 30 mín að því. Enda er það farið að segja til sín, og er ég farinn að vera tölvuert pirraðari og óþolinmóðari í umferðinni en ég var í fyrra. Og þ.a.l. farinn að keyra á glæfralegri hátt, sem ég má nú tæplega við enda seinnt hrósað fyrir sérstaka ökuhæfni. En svona er þetta víst bara þegar maður flytur eitthvert út í sveit. Þurfti einmitt um daginn að fara út í Iðntæknistofnun sem er staðsett einhverju aðeins lengra frá miðborginni en íbúðin sem ég er í. Og get ég svo svarið það að ég var bara hreinlega kominn út í sveit. Þarna voru grasigróin engi til beggja handa sem teygðu sig svo langt sem augað eygði. Ég er alveg viss um það að ég hafi séð vísundahjörð á hlaupum í fjarska þegar ég stóð þarna.






sunnudagur, september 19


Mátur mótmæla
Var að horfa á fréttirnar á RÚV áðan svona með öðru auganu meðan ég vara að ráfa eitthvað hérna á netinu. Sá þá frétt um það að krakkar úr grunnskólum borgarinnar væru með mótmælastöðu fyrir utan einhverja stofnanabygginguna í Borgartúni til að mótmæla yfirvofandi kennaraverkfalli. Við Kolbeinn vorum nú sammála um það að aldrei hefði það einu sinni hvarflað að okkur að mótmæla verkfalli kennara meðan við vorum í Barnaskólanum. Frekar að við hefðum farið að mótmæl þegar færi að hilla undir lok verkfallsins. En hinsvegar eftir að hafa séð umfjölunnina um þessi mótmæli þarna á RÚV fór ég að skilja þetta betur. Ekki síst eftir að ég sá mótmælaspjödin sem krakkarnir voru að veifa þarna. Á þau höfðu krakkarni ritað ýmsa frasa, þar á meðal þennan: Mennt er mátur. Af þessu að dæma þá hafa þessir krakkar greinilega ekki efni á að missa marga daga úr grunnskólagöngu sinni. Því vil ég nýta tækifærið og lýsa yfir stuðningi mínum við málstað grunnskólakrakkanna, og minna þig minn dyggi lesandi á að Mennt er mátur...






föstudagur, september 17


Sindri sepkingslegur vexti að vanda
Var að spjalla við Sindra Frey Ragnarsson á MSN áðan, og tal okkar barst að þáttunum The L-word sem sýndir eru á Skjá 1. Sá fyrsta þáttinn einmitt endursýndan í gærkvöldi. Hin fínasta skemmtun bara, töluvert skárra en Queer as folk allanvega. Þá kom Sindri einmitt með helvíti skemmtilega athugasemd, sem ég hló dátt að hér í tölvuverinu hjá Háskólanum og tókst með því að gera mig að fífli. Ég var fljótur til að fá leyfi hjá honum að skella henni hérna inn á bloggið mitt svo þú, lesandi góður, fengir tækifæri til að njóta hennar með okkur. Svo hélt þetta spjall okkar áfram og leiddist út í aðra hluti eins og mig og Cher. Þar til kominn var tími á mig að fara að drífa mig í fyrirlestur í örtölvu- og mælitækni. Flýtti ég mér þá að slökkva á öllu sem ég var með opið á tölvunni og „logga mig út“ úr tölvunni, og fattaði það ekki fyrr enn ég var sestur niður í sal 4 í Háskólabíó að ég væri búinn að steingleyma þessari speki hans Sindra.
Svo Sindri ef þú vilt deila þessu með okkur, þá endilega settu þetta í kommentið hér að neðan. Ef ekki, þá bara bíttu í þig...






fimmtudagur, september 16


Þjóðhátíðarkvöld VKB og Animu
Vildi bara minna á Þjóðhátíðarkvöld Bræðrafélagsins Vinir Ketils Bónda og Animu, félags Sálfræðinema. Það verður haldið á skemmtistaðnum Pravda annað kvöld, og hefjast herlegheitin stundvíslega kl. 20:00. Þar mun margt vera gert til að hafa ofan af fyrir gestum. En auk þess sem vel valin Þjóðhátíðarlög verða leikin af hljómplötu og nokkrir af færari gítarspilurum Eyjanna halda uppi stuði, mun fara fram fyrsta opinbera Íslandsmeistaramótið í hormottuvexti og hæfileikakeppni stúdenta þ.s. valinn verður hæfileikaríkasti stúdentinn og hæfileikaríkastan skorin. Og hvet ég þig, lesandi góður, endregið til að mæta.
Því þar sem VKB og ódýr bjór koma saman getur ekki annað en myndast stemmning.







Myndin loxins komin upp
Jæja þá er myndin sem til er búið að standa að setja í toppinn á síðunni í rúma viku loxins komin á sinn stað. Eftir síðasta póst mitt þá sá Andri Hugo aumar á mér og bauð fram hjálp sína, og reddaði þessu svo fyrir mig á „nó tæm“. Takk Andri!






miðvikudagur, september 15


Af atburðum líðandi stundar
Helvítis, verð að fara gera eitthvað í þessari mynd þarna í toppinn. Hjálp einhver!!!
En gáfnaljósið ég þurfti náttúrulega að gleyma tölvunninn minni heima í Eyjum. Og er ég því netlaus þessa stundina í Mosarimanum, þ.s. Kolli er sokkinn svo djúpt í CM að það er ekki vegur að ég fái að komast á netið í tölvunni hjá honum. En það stendur svo sem til bóta, því faðir minn er á leiðinna í borgina, sennilega bara í þessum töluðum orðum, með tölvuna mína með sér. Ef hann hefur þá ekki gleymt henni. Sjaldan fellur nú eikin langt frá eplinu eða eitthvað (en vaxa epli á eikartrjám??) Og nei, hann er ekki að koma hingað til að taka þátt í fyrsta opinbera Íslandmótinu í hormottuvexti.
Lenti í svolitlu þó nokkuð fyndnu í gær. Við sátum þrír ég, Boggi og Hannes við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrabrautar að telja bíla, þegar einhver álkulegur gamall karl með ís í brauðformi rölltu sér upp að glugganum á bílnum mínum sem var opinn upp á gátt og spurði mig til vegar. Það hefði svo sem verið í lagi ef ekki hefði verið fyrir það að hann spurði til vegar á einhverri skandinavísku (sennilega dönsku hljómar allt orðið eins fyrir mér). Það kom agalegt fát á mig, en með einhverru móti þá tókst mér að koma honum í skilning um hvernig hann ætti að komast í Borgartün. Og þeir hlógu mikið að því peyjarnir að ég skildi segja Borgartún með dönskum hreim.
Og boðskapur þessarar sögu er, aldrei segja útlendingum til vegar. Þú gerir þig bara að fífli við það...






sunnudagur, september 12


Bíllinn minn
Ég skil ekki menn sem leggja það fyrir sig að starfa sem bifvélavirkjar. Það er fátt sem mér leiðist jafn mikið og að þurfa að gera við eitthvað í þessari Volgswagen druslu minni. Fór loxins í það í dag að gera eitthvað í pústinu á bílnum mínum. Það er nú heldur ekki til að auka skemmtanagildi þessara viðgerða að ég kemst hvergi í gryfju svo ég þarf að sinna þessu öllu liggjandi á bakinu með það sem ég er að vinna við í um 5 cm fjarlægð frá andlitinu á mér. Þetta var svo sem ekkert merkilegt sem ég þurfti að gera, bara aðskipta út þremur boltum. En það er aldrei neitt jafn einfalt og að það hljómar þegar kemur að bílum. Þetta var náttúruega allt ryðgað til andskotans svo það var ekki vegur að losa þetta. Svo það endaði með að ég náði mér í járnsagarblað til að hjakkast í gegnum boltana, og uppskar með því þessa líka myndarlegu blöðru á vísifingur vinstrihandar. Þá þurfi ég að berja þessa bolta fjanda úr, sem var enginn hægðarleikur (ojj) í þessu litla rými mínu. Svo leit maður náttúrulega líka út eins og einhver halanegri (hvar bú þeir eiginlega, minnist þess ekki að hafa nokkurn tíman séð negra með hala) þegar ég skreið undan bílnum eftir að hafa barið allat ryð og alla drullu undan undirvagninum á bílnum og yfir andlitið á mér.
Já, svei mér þá ef ég kenni ekki bara í brjóst um þessa ræfils bifvélavirkja...






föstudagur, september 10


Þunt hljóðið í táningsstúlkunni
Jæja, þá er maður kominn á Eyjuna björtu á ný. Kom áðan með gubbudallinum, var reyndar minna gubbað þetta skiptið en ég átti von á, hálf fullt skip og annar ugginn bilaður svo skipið skoppaði eins og korktappi (endilega biðjið táningsstúlkuna um að sýna það með leikrænum tilburðum hvernig það virkar). En samt alveg þolandi að vera þarna um borð, fólk ekkert að æla yfir mann eða neitt, þó ég hafi verið orðinn smeikur um það á tímabili táningsstúlkann léti vaða. Já hann var einmitt samferða mér, náði í hann heim til sín í Álftamýrina um 10:40. En sökum þynku hafðist það ekki af að koma honum útúr dyrunum fyrr en eftir 11. Já táningsstúlkan var á alveg rúllandi fylleríi í gær ásamt Hafsteini Daníel ökumanni lillabláa ógnvaldssins og Daða "físufangara" Guðjónssyni. Lox þegar það hafðist að drösla táningsstúlkunni út í bíl þá var heimtað að fá að éta eitthvað áður en haldið yrði af stað. Ég féllst á það. En ekki munaði miklu að ég kæmi til með að sjá eftir því. Því ekki munaði nema, eins og táningsstúlkan myndi orða það, pjölluhári á býflugu að við misstum af skipinu. En samt blessaðist þetta nú allt saman, og hingað er ég kominn að segja þér þessa líka skemmtilegu sögu.






fimmtudagur, september 9


Helvítis andskotans djöfulsins drasl
Var að reyna að breyta „lúkkinu“ á síðnunni og setja inn aðra mynd í toppinn. Var búinn að fá upplýsingar hjá Slingernum um hvernig að ég ætti að nota svæðið mitt hjá Háskólanum undir myndir á síðuna. Búinn að finna þessa fínu mynd og allt saman. En fékk þetta djöfulsins drasl ekki til að virka. Og var svo í ofan á lag svo vitlaus að ég gleymdi að geyma kóðann fyrir gömlu myndina sem fylgdi þessu skin-i. Svo ég sit uppi með tóman ramma þarna þangað til ég finn eitthvað útúr þessu.







Misgóð er mannanna heilsan
Allir að fara á Anchorman, fyndansta mynd síðan... jaaa síðan sneitt brauð held ég bara. Will Farrel er snillingur, ekki frá því að hann toppi jafn vel Jim Carey. En ég ætlaðu nú ekki að fara að tala um það, heldur það að ég er farinn að hafa alvarlegar áhyggjur af geðheilsu hans Borgþórs. Eins og tíðum lesanda þessarar síðu ætti að vera ljóst, þá erum við búnir að vera stunda umferðartalningu núna að undanfarið. Og tók Borgþór þá ákvörðun að mér óforspurðum að skrá okkur aftur í þetta á þriðjudaginn næsta. Sem væri svo sem kannski í lagi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að hann skráði okkur á gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar.
Talandi um geðveiki, þá hugsa ég að samferðarmenn mínir í umferðinni áðan hafi talið mig eitthvað vanheilan á geði. Svo eru nefnilega mál með vexti, að það er búin að vera einhver flugu fjandi fastur inni í bíl hjá mér frá því í gærmorgun ,að við Boggi vorum við bílatalningu. Áðan er ég var að aka eftir Sæbrautinni þá ákvað þessi fjandans fluga að fljúga beint í andlitið á mér, eins og Sigurður myndi orða það þá flaug í mig augað. En þá greip ég einmitt til þess ráðs að fara að berja frá mér, og sat ég þarna að reyna að slá til flugunnar bölvandi og ragnadi (hvað er eiginlega að ragna??). Ég hef ábyggilega litið út fyrir að vera að sveifla höndunum eitthvað útí loftið á meðan að ég talaði við sjálfan mig.






þriðjudagur, september 7


Grafarvognum komið í samband við umheiminn
Ég var farinn á fætur fyrir kl 06 í morgun. Þú spyrð þig eflaust, minni dyggi lesandi, hvað hafi eiginlega rekið mig til þess. En svo eru nú mál með vexti að Borgþór sá auglýsingu þess efnis fyrir helgi að það vantaði mannskap til að telja bíla fyrir eitthvert verkefni í Háskólanum. Og þar sem í boði voru peningar fyrir þetta þá datt honum strax í hug að hafa samband við mig og athuga hvort ég hefði áhuga á að taka þátt í þessu með honum. Það varð svo úr að við ákváðum að skella okkur í þetta ásamt Hannesi, í morgun frá 07 - 10 og núna síðdegis frá 15:30 - 18:30. Svo stendur til að fara í þetta aftur í fyrramálið á sama tíma, en á einhverjum öðrum gatnamótum sem er víst ekki pláss á fyrir Hannes líka, svo þetta verðum bara ég og Boggi. En það þýðir að ég þarf aftur á ról um sex leytið í fyrramálið. Svo það væri kannski vit ef maður færi að drullast í háttinn. Svo bara nóttin...
Og hey já, við Kolbeinn erum komnir með netsamabnd hingað út í Grafarvoginn svo ég ætti að geta farið að vera með tíðari póst. Þar sem einn lesanda síðunnar (Hannes Kr. Eiríksson) hefur kvartað sáran undan því hvað ég er óduglegur við að pósta hérna síðunni. En mín vegna má hann svo sem fara í rassgat...






sunnudagur, september 5


Fýluferð
Mikið afskaplega getur maður verið gáfaður á köflum. Ætlaði að nýta þennan sunnudag í að koma fartölvunni minni aftur í samband við þráðlausanetið hérna í Háskólanum og fara að dunda mér við að ná í einhver lög og svona. Fyrst það eru svona fáir hérna þá ætti maður að ná betra „signali“. Þarf nefnilega að setja þetta dras,l aftur upp því Andri Hugo tók tölvuna fyrir mig um daginn og hreinsaði hana (formattaði). En gáfumennið ég afrekaði að skilja helvítis geisladiskinn sem fylgdi netkortinu eftir úti í Grafavogi. Svo nú verð ég að keyra aftur þangað út eftir og sjá til hvort ég nenni að koma hingað aftur.






laugardagur, september 4


Leigubíll er rán
Helvíti er dýrt að taka leigubíl út í Grafarvog. Nennti ekki að reyna að hafa uppi á Kolla í nótt til að við gætum „splittað“ leigubílnum á okkur, svo það lenti á mér að borag rúmar 2200 kr einn. Held ég geri þetta ekki aftur í bráð, verð bara að fá að gista hjá einhverjum sem býr nær miðborginni.
Helvítis þynka maður, til hvers er maður alltaf að þessari fjandans drykkju. Heldur alltaf að maður sé að fara að missa af einhverju ef maður dettur ekki í það. Var reyndar alveg helvíti fínt í gær. Duttum í'ða á stúdentagörðunum í íbúðinni hjá kveifinni Borgþóri og frænku hans henni Láru Dögg. Ekki stærsta íbúð sem ég hef dottið í'ða í og hún var tæplega að rúma okkur sex sem vorum þarna. Fórum í snilldar drykkjuleik með spilum, með einhverjum reglum sem hin frænkan hún Íris Dögg kann. Helvítis snilld sem ég mæli með að þú minni kæri lesandi prófir einhvertíman við tækifæri.
Jæja nenni þessu ekki lengur ætla að drullar mér heim að halda áfram að vera þunnur og vorkenna mér. Svo er það bara bíó á eftir með sætavísu ársins, Hannesi Kristni Eiríkssyni viðskipta- og iðnaðarmálaráðherra og sérlegur tengiliður Vina Ketils Bónda við íslenskt atvinnulíf, og helda að kveifin Borgþór fái að fljóta líka með.






fimmtudagur, september 2


Ábendingar kveifar
Var eiginlega búinn að ákveða að skella mér á Selfoss á SUS þing og fylleríið sem því fylgir. Var einmitt búinn að plata Bogga til að fara með mér. En svo gugnaði hann á því, og er að reyna að bera það eitthvað fyrir sig að íbúðin sem hann er að flytja í á studentagörðunum sé svo skítug að hann þurfi að vera í fimm daga að þrífa hana. Hann bara þorir ekki. En jæja fyrst hann fer ekki þá er ég sennilega ákveðinn í því að fara ekki heldur, þ.s. það er ekkert alltof mikið af liði að fara sem ég þekki almennilega. Svo þarf maður nú líka aðeins að fara að halda fastar um budduna.
Var núna rétt áðan að henda inn svolitlu helvíti sniðugu sem kveifinn hann Borgþór benti mér á, eXTReMe Tracker. Svo nú get ég haft mikið betri yfirsýn yfir umferðina á síðuna mína. Sem er alveg hreint gífurleg, um hálft þúsund manns búin að koma hingað inn síðan að teljarinn á síðunni núllaði sig fyrir tæpum mánuði. Eða kannski öllu heldur ég og einhverjir tveir eða þrír vinir mínir búnir að koma hingað 499 sinnum og ein öldruð kona í vesturbænum sem kann ekkert á internetið, og endaði bara hér inni því ég er með svo flott url.







In Iceland, Kids Go Out at Night To Pick Up Chicks
Þessi skemmtilega fyrirsögn, sem ég birti hér án fengis leyfis frá nokkrum, var einmitt forsíðu fyrirsögn hjá Wall Street Journal nú fyrir skemmstu. En svo eru mál með vexti að blaðakona Wall Street Journal, Ellen E. Shultz að nafni, kom til Eyja um miðjan ágúst að kynna sér pysjuveiðar (ef veiðar skyldi kalla). Henni fannst gaman að fá tækifæri til að fjalla um eitthvað jákvætt, í stað endalausra frétta af stríði og stór hneigslum, og tók hún það sérstaklega fram hversu gaman henni þætti að sjá krakka gera eitthvað annað en að hanga yfir tölvuleikjum.
Þú getur, minni dyggilesandi, lesið frekar um þetta í þessari grein á Eyjafréttum.is.






Ég

er fæddur í Eyjum 1981

hef búið í Eyjum nær alla ævi

bý núna í Reykjavík

vinn sem möppudýr í smiðju í Garðabæ

er flokksbundinn Sjálfstæðismaður

veit ekki hvað ég get sagt fleira um sjálfan mig

býð þig hjartanlega velkominn á síðuna

e-Póstur

msn




Lesist á eigin ábyrgð

Blogg-óði maðurinn
Blogg-óða konan
Blogg-óði faðirinn
Þessi flúði land
Passið ykkur á þessum
Síra
Sýra
njé-2
Þessi kom á Þjóðhátíð
Oft gaman að þessum
Þessi er rokk-fróður
Þessi hefur áhuga á listum
Þessi kann að segja sögur
Þessi fær aldrei notið steríós
Þessi stuðlar að fjölgun mannkyns
Þessi ætlar að laga í mér lifrina
Þessi fór til Spáns
Þessi á dýptarmæli
Þessi fílar Bubba óhóflega mikið
Þessi styður Newcastle United
Þessi er mikið fyrir murtuna
Þessi stúderar í Danaveldi
Þessi er í Breskum leikskóla
Þessi kann á rússneskar bongótrommur
Þessi fann Jesúm
Þessi biður að heilsa
Þessi stjórnar bæ
Þessi kann að jóðla
Þessi valdi Hellisey
Foster's Blog
Foster's Net
VKB's Blog

Þetta skoða ég

Fréttir
Mogginn
Vísir
eyjar.net
Háskólinn
VKB
Dalurinn
Ægisdyr
Eyjabloggarar
B2.is
Google
Heimabankinn
Dagskráin
Árgangur '81
Leikjanet
Uncyclopedia
Encyclopedia
KÉSHÁM (NBA)
Öll tónlist
Eyverjar
IMDb
TV.com
YouTube
Reykjavík FM

Gamalt og mis gott

mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008
september 2008
október 2008
nóvember 2008
desember 2008
janúar 2009

Þakkir fá

blogskins
Main Site
Powered by TagBoard Message Board

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

eXTReMe Tracker