*
*
*
*
laugardagur, nóvember 27


Kuldinn getur verið vinur manns
Ég er langt frá því eitthvað hrifinn af kulda, þvert á móti þá finnst mér þetta leiðinda fyrirbæri. Ekki síst þegar maður lendir í því að það springur hjá manni í 10° frosti. En hins vegar rifjaðist upp fyrir mér áðan einn kostur sem þessi árstími hefur í för með sér. Maður þarf ekki að vera að hafa fyrir því að setja bjórinn inn í ískáp. Ég get bara skilið hann eftir út í bíl, maður fer líka hvort eð er eiginlega alltaf á bílnum ef maður er eitthvað að fara að sturta í sig.
Verst samt að þurfa að ná í bílinn í þynkunni daginn eftir ...






föstudagur, nóvember 26


Í morðhugleiðingum
Já, ég er ekkert í neitt sérstaklega góðu skapi þessa stundina. Mig langar alveg skelfilega til þess að myrða einhvern, verst að ég veit ekki hvern. Dagurinn byrjaði svo sem ágætlega. Gekk óvenju vel að vakna, hafði góðan tíma til að blaða í gegnum Fréttablaðið og fá mér að borða og svona. Fékk svo meir að segja mjög gott stæði, nánast beint fyrir utan dyrnar á Tæknigarði. Er svo eftir að ég kláraði tíma og svona þetta sem hvað mest lá á í heimanámi, búinn að vera aðalega bara að vafra um á netinu í tölvuverinu í VRII og að tjá mig á Haltu Kjafti!, sem er komið á fljúgandi siglingu (sigla himin fley??). Fattaði svo um kl 15:45 að ég ætti enn eftir að borga í Herjólf, en ég er að fara með skipinu á eftir. Maður á víst að borga í hádeginu daginn fyrir brottför. Þá fór ég á heimasíðu Landflutninga, og komst að því að afgreiðslan væri bara opin til kl 16:00 á föstudögum. Svo ég dreif mig út, rauk upp í bíl og hélt af stað rakleitt niður í Skútuvog. Ég var kominn fyrir utna Landflutninga um kl 16:00:03. Og viti menn, allt lokað og læst. Ég var nú frekar pirraður yfir þessu, en svo sem engum nema mér sjálfum um að kenna. Hins vegar fór það mun ver í mig sem ég sá þegar ég snéri aftur að bílnum. Það var stærðarinnar dæld á frambrettinu bílstjórameginn hjá mér. Hafði greinilega verið ekið á mig fyrir utan Tæknigarð, en ég ekki tekið eftir því í öllu fátinu þegar ég ætlaði að reyna að redda þessum Herjólfs-miðum.
Það er ansi lítið sem ég get gert, bíllinn ekki í Ksakó eða neitt. Hringdi í lögregluna, þar var mér sagt að eina sem hægt væri að gera í stöðunni, væri bara að gera skýrslu um þetta og vona að einhver gefi sig fram. Sem ég sé nú ekki alveg gerast. Verð bara að kíkja í skýrslutöku hjá þeim eftir helgi þegar ég kem aftur í borgina. En ég hugsaði svo með mér að það sakaði ekki að kíkja inn í Tæknigarð, og athuga hvort einhver hefði tilkynnt um ákeyrslu. Það var ekki, frekar en ég átti vona á. Og nú sit ég hér í tölvuverinu í Tæknigarði að reyna að fá eitthvað af þeirri útrás sem ég þarf svo skelfilega á að halda með því að berja lyklana á borðinu.
Það er ekki alveg að nægja ....






fimmtudagur, nóvember 25


Gott útsýnið í Háskólanum
Það er gaman í tölvuverinu upp í Háskóla á svona dögum. Tölvuverið fylltist allt í einu af einhverjum gellum sem eru að vinna eitthvað verkefni saman.
Bara ef þetta væri alltaf svona ...






mánudagur, nóvember 22


Helvítis andskotans djöfullsins
framhald
Þessu dekkja-ævintýri var hreint ekki lokið þar sem ég endaði frásögn mína síðast. Þó svo að mig hafi nú ekki órað fyrir því sem átti eftir að fylgja. En ég hafði það af að plata Hannes til að skutlast með mig að reyna að verða mér úti um dekk. Ég er enn á sumardekkjunum, og er eimitt á leiðinni hem til Eyja um næstu helgi og ætla að láta henda nagladekkjunum undir fyrir mig þá. Því ætlaði ég bara að kaupa mér eitthvað ódýrt notað sumardekk til að til að hafa undir fram ð því. Hannes ætlaði að skutla mér í Vöku til að athuga með notað dekk þar. En vildi horfa fyrst á leikinn áður en við færum af stað. Það fór því þannig aðvitað að það var búið að loka Vöku, sem og öllum öðrum dekkjasölum sem við fundum. Þegar við fórum lox afstað. Því eftir nokkurt skraf, þá hafði ég það af að sannfæra Hannes um að lána mér varadekkið sitt, og ætlaði ég svo bara í Vöku á mánudaginn (í dag) og redda mér nýju dekki.
En viti menn. Það sprakk hjá Hannesi þetta sama kvöld, og hann varadekkjalaus. Það reddaðist svo að Hannesi var skutlað heim til sín í Garðarbæinn. Daginn eftir (í gær) ákvað ég svo að endurgjalda Hannesi greiðann, að skutlast með hann í bílinn sinn. Auk þess að lána honum aumingjann minn, enda var það afturdekk sem sprakk hjá honum. Þegar Hannes hófst svo handa við að ná sprungna dekkinu undan, var Sigurður Björn búinn að bætast í hópinn á bíl afa síns. Og fékk hann að verð vitni að því þegar Hannes braut felgulykillin sinn. En hvorki lykillinn úr bílnum mínum né bíl afa hans Sigga passaði. Þá var ekkert annað að gera enn að leita að verslun sem gæti selt okkur passandi lykil á þetta. En þar sem þetta var á sunnudegi, þá voru flestar slíkar verslanir lokðar. Við fundum lox opna Húsasmiðju, þar verzlaði Hannes 19 mm topp. En þeir áttu hinsvegar ekkert átaksskaft til að selja okkur. Þá fórum við í Byko, þeir áttu átakskaft handa okkur. En hinsvegar kostaði það einhvern fimmþúsnud kall svo ekki tímdum við því. Þá var haft uppi á Kolla, og samið við hann um að fá átakskaftið hans lánað. Það þýddi að við þurftum að aka út í Grafarvog og aftur til baka, rétt um hálftíma langur snúningur það. En þá var því reddað.
Þess má svo til gamans geta að Vaka átti ekki passandi notað dekk handa mér ...






sunnudagur, nóvember 21


Moral message
This is your brain. This is your brain on alcohol.






föstudagur, nóvember 19


Helvítis andskotans djöfullsins
Djöfull er þetta týpískt! Þegar ég var að keyra heim úr skólanum í dag, þá fannst mér bíllinn leita helst til mikið til hægri. En maður neitaði náttúrulega að trúa því að eitthvað væri að. En þegar ég fór að nálgast Snorrabrautina fór mér nú ekki alveg að standa á sama svo ég ákvað að tékka nú á því hvað væri að. En ekki stekkur maður út úr bílnum á miðri Hringbrautinni og fer að skoða ástandið á honum þar. Svo ég ákvað að koma mér bara á Þorfinnsgötuna, þá gæti ég líka skroppið inn til Grettis og fengið heitt kakó til að ylja mér. En svo passlega í því sem ég renndi upp að húsinu hjá honum, þá rann það upp fyrir mér að hann væri heima í Eyjum þessa dagana.
Þegar ég svo sté svo út úr druslunni, þá var hægra framhjólið gjörsamlega loftlaust. En jæja, þá hringdi ég bara í Kolla því ég vissi líka sem var að ég kæmist ekkert áfram í þessari færð á helvítis hjólbörudekkinu sem mér var úthlutað sem varadekki með VW-druslunni minni, og þyrfti því að fá hann til að skutla mér með dekkið. Ég ákvað nú að reyna að flýta aðeins fyrir og losa sprungna dekkið undan og koma aumingjanum undir (ekki ætlaði ég að skilja Golfinn eftir á tjakknum). En viti menn, helvítis skotthlerinn var frosinn fastur. Og sama hvernig ég þjösnaðit á honum, þá vildi hann ekki opnast. Því neyddist ég bara til þess að bíða eftir kolla, og reyna að nota vara dekkið hans. Svo þegar hann skilaði sér, þá þurfti maður að leggjast á hnén í 10° gaddin að reyna að skafa undan tjakknum svo hann rynni ekki til. Þegar það svo lox hafðist og maður var að farast úr kulda, búinn að ná sprungna dekkinu af og svona. Þá kom á daginn að varadekið hans Kolla passaði ekki, og eins og áður sagði, þá var ég ekki að þora að skilja Golfinn eftir á tjakknum.
Þá var það eina í stöðunni að reyna að komast í helvítis aumingjann (hjólburudekkið sem ég kalla svo) úr aftursætinu. En ég var ekki að teysta þessum ræfils tjakki hans Kolla meðan ég væri að brölta í bílnum. Svo ég þurfti að koma sprungna dekkinu aftur undir og slaka bílnum niður. Því næst tróða ég mér aftur í bílinn og náði einhvern veginn að krafsast í gegnum það að ná aumingjanum undan öllu draslinu sem ég er með í skottinu. Þegar allt var svo „reddí“, var stríði rétt hálfnað. Þú getur rétt ímyndað þér hvernig það er að fá afgreiðslu á dekkjaverkstæði á þessum tíma árs ...
Eftri langa bið á hjóberðaverkstæði, var mér tjáð það að dekkið væri ónýtt. Þegar ég fór svo til að endurheimta felguna, og spurði hvort þeir gætu ekki losað mig við dekkið. Þá sögðu þeir mér að þeir vildu ekkert með það hafa, að það kostaði 300 kall að henda því og eitthvað. Svo ég þurfti að rölta þaðan út með felgu og ónýtt dekk undir hendinni. Þá renndi Kolli bara út í Sorpu, og við hentum dekkinu í einhvern gám, og viti menn án þess að greiða neitt. Og nú sit ég uppi með það að þurfa að plata einhvern með mér í það á laugardegi að verzla dekk.
Var líka rétt í þessu að fatta að, Kolli fór eitthvað áðan, en með felguna í skottinu. Vona að hann sé ekki dottinn í það og skilji bílinn eftir einhverstaðar úti í bæ. Væri alveg til þess að kóróna daginn ...






miðvikudagur, nóvember 17


Snilld
Rakst á þetta út frá myndinni sem Andri linkaði á. Hélt ég myndi láta lífið úr hlátri ...






þriðjudagur, nóvember 16


Helvítis snjór
Það er ekki heitt í helvíti. Ónei, það er kalt og það er allt fullt af snjó.
Það tók mig heilann helvítis klukkutíma að komast heim í Grafarvoginn úr Háskólanum í kvöld. Keyrði á 10 km hraða alla Hringbrautina.







Sófar og þynka
Humm, jæja. Þynnkan er runnin af manni að mestu. Var samt frekar ræfilslegur í skólanum í dag. Úff slæmt þegar maður er farinn að taka út tveggja daga þynku eftir eitt kenndirí. Ætli það sé ekki bara aldurinn. En þetta var samt alveg þrusu fínt djamm. Ætla samt ekkert að vera að fjölyrða neitt um það, þú getur lesið um það hjá Bogga. Rosalega skemmtilegt líka, að þegar ég kom frá Keflavík og langaði helst til að skríða bara upp í rúm og velta mér upp úr eigin þynku og ræfildómi. Þá var Valli, faðir Kolbeins sambýlings míns og sem sagt leigusalinn minn, hérna. En hann var að færa okkur þetta fína sófasett. Maður varð náttúrulega að reyna að virðast svolítið mannalegur og spjalla og svona. Held ég hafi staðið mig bara prýðilega í því, þó mér væri nú mikið hugsað til rúmsins. En nú er stofan allanvega ekki enn alveg jafn asnalega tómleg og tekur fleiri en 2 -3 í sæti. Spurning um að fara að halda innfluttnings partý. Er ekki alveg að verða kominn tími á það ??






mánudagur, nóvember 15


Ég nenni þessu ekki
Ég nenni ekki að blogga núna. Ég er þunnur og ég er þreyttur. Held ég fari bara að sofa ...
Ástæða þynku minnar og þreytu






föstudagur, nóvember 12


Haltu Kjafti! farið að segja til sín?
Ég var farinn að hafa miklar áhyggjur af því að það kæmi enginn hingað inn lengur því kommentkerfið hjá mér er búið að vera svo gott sem dautt upp á síðkastið. En samt var teljarinn búinn að vera að tikka vel upp alltaf. Svo ég var ekki alveg að skilja hvað væri í gangi. En svo tók ég eftir því að það er búið að vera frekar rólegt yfir kommentkerfinu hjá bæði Bogga og Andra líka núna undanfarið. Hinsvegar eru umræðurnar á Haltu Kjafti! búnar að vera á fljúgandi siglingu að undanförnu. Því var ég að velta því fyrir mér hvort að tilkoma Haltu Kjafti! hafi orðið til þess að þeir sem áður hafi verið að tjá sig á þessum kommentkerfum, við sem aðrir, fái útrás fyrir tjáninga þörf sína á þráðum þess.







Týpískt
Fór í Bónus að verzla áðan. Sem væri svo sem ekki í frásögu færandi nema fyrir það að ég ákvað að kippa með mér smá pepperóníi. Hef yfirleitt keypt svona enda afskurðinn sem hægt var að fá frá Ali. Hentaði fínt að saxa hann niður í einhverja pastarétti og þess háttar, og ekki sakaði að kílóverðið var helmingi minna en af niðursneiddu pepperóníi. En þegar ég fór að skoða pakkninguna fannst mér verðið eitthvað skuggalega mikið. Og þegar ég fór að bera það saman við venjulegt niðursneitt Ali pepperóní þá sá ég að kílóverðið var komið upp í það nákvæmlega sama. Náttúrulega bara fáránlegt, þeir hafa hent þessu á sínum tíma inn í verslanirnar á hálfvirði vegna þess að annars hefði þetta ábyggilega bara endað á haugunum. En svo þegar þeir hafa séð að það væri einhver markaður fyrir þessu, þá er náttúrulega hækkað verðið um leið. Og ekkert smá, heldur er það bara tvöfaldað.
Vá hvað þetta er tilgangslaust blogg, en jæja hvað ætlaru svo sem að gera í því ?






miðvikudagur, nóvember 10


Birgitta allra barna
Ég rakst á þessa og þessa síðu á vafri mínu um veraldarvefinn. Langaði til að láta einhver orð falla um það hvað mér finndist þetta fyndið eða fáránlegt eða eitthvað. En fannst það svo ekki hægt að vera að setja eitthvað út það þótt einhverjar táningsstúlkur séu að setja upp síður tileinkaðar „ædolunum“ sínum. Fyrst það eru einhverjir sem telja að það sé markaður fyrir þetta, þá hlítur að vera eitthvað meira um svona síður á netinu. Nú bíður maður þess bara spenntur að táningsstúlka allra táningsstúlkna, Siggi Björn, verði kominn með nógu mikla kunnáttu til að opna síðuna sína.






þriðjudagur, nóvember 9


Svarið
Held það sé kominn tími á að ég birti svarið við spurningunni sem ég spurði hér neðar á síðunni. En hún var: „Hvað eiga Tryggvi Már Sæmundsson, Kevin Costner, Demi Moore og Osama Bin Laden sameiginlegt?
Þau eiga það sameiginlegt að halda öll með Arsenal. Og vísa ég í þetta og þetta máli mínu til stuðnings. Með hvaða öðru liði ætti svo sem ómenni eins og Bin Laden annars að halda?







Íþróttir
Besta forvörnin?






mánudagur, nóvember 8


Hella
Er ekki kominn tími á smá ferðablog? Jú, það hélt ég. En svo er nú það, að ég fór á Hellu á laugardaginn, og var það á margan hátt hin merkasta för. Hún hófst að morgni laugardagins á því að ég og Skapti Örn mættum heim til Árna Johnsen og hoppuðum upp í jeppa hjá honum.
En förinni var heitið, eins og áður sagði, á Hellu þar sem fram átti að fara aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðiðsflokksins í Suðurkjördæmi. Þegar við vorum komnir einhvers staðar nærri Selfossi sjáum við hvar afar álkulegur maður stóð við vegkantinn í beljandi rigningu að reyna að húkka sér far. Árni sá aumar á manninum og stansaði. Þá kom í ljós að þarna var á ferðinni Ítali sem starfar víst á Sólheimum og var á leið á Vík. En hann var á allan hátt hinn samkynhneigðasti, bæði í fasi og orði. Hann fékk að sitja í með okkur á Hellu, og naut þess að hlíða með okkur á færeyska þjóðlagatónlist flutta af Tey av kamarinum.
Að fundi loknum var svo afhjúpaður minnisvarði um Ingólf heitinn Jónson. Það var ansi margt um manninn við þessa afhjúpun en vegna þess hversu hart að ringdi, þá komu flestir á bílum og hættu sér jafnvel ekki út úr þeim. Afar lítil skynsemi réði því hvernig fólk lagði, sem varð til þess að mikil umferðarteppa myndaðist að afhjúpuninni lokinni. Því Greip Árni til sinna ráða og fór að stjórna umferðinni þarna eins og hann hefði aldrei gert annað um ævina. Okkur sem biðum hans í bílnum þótti þetta mjög fyndið og hlógum við dátt, enn kallinum tóks allanvega að leysa úr umferðarhnútnum. Þegar Elli bóndi á Skarði, formaður ungra Sjálfstæðismanna á Hellu, sem var þarna með okkur Skapta í bílnum spurði Árna hvort hann væri í framboði, þá svarði kalli: "Nei, ég er í eftirspurn". Sem dró nú ekki úr hlátri okkar.
Eftir að hafa gættu okkur á dýrindis veitingum, jafnt á föstu formi sem fljótandi, þá lagt af stað aftur í borgina. Á undan okkur var bíll sem í voru nokkrir ungliðar sem höfðu verið á fundinum. Þegar aðeins var liði á ferðina, þá hringdi síminn hjá Skapta, sem snéri sér að Árna og sagði honum að ef hann færi nær bílnum sem var á undann okkur, þá fengi hann að sjá berann kvennmanns rass. Það þurfti ekki að segja honum það tvisvar. Hann gaf í og skellti háu ljósunum á. Þá reisti ung dama, sem var í bílnum á undan okkur, sig við og sýndi okkur á sér berann sitjandann í gegnum aftrurúðu bílsins. En hún hafði víst gætt sér eitthvað á veitingunum líka (ekki síst þeim fljótandi).

Merkilega gott útsýnið þarna milli Hellu og Selfosss ...






fimmtudagur, nóvember 4


Hin gullna sauðkind og breytingar á fortíðinni
Þetta er, að mínum dómi, mjög gott framtak. Rakst á þetta áðan þegar ég fór inn á heimasíðuna hjá Skonrokk til að hlust á þá eðaltón sem þeir bjóða uppá meðan ég deildi hugsunum mínum og skoðunum með þér, lesndi góður. Hvet ég alla sem vetlingi geta valdið og mús smellt, að taka þátt í þessari könnun.
Breytt í gær því sem er að finna á gamla URL-inu mínu, helgiforseti.blogspot.com svo það vísi mönnum hingað inn. Og minni ég alla þá sem kunna enn að vera með link á gamla URL-ið á að breyta því. En Boggi ræfillinn, hann fattaði ekki nógu snemma að ná völdum á gamla URL-inu sínu. Svo hann situr núna uppi með þetta þar.






miðvikudagur, nóvember 3


Mér er spurn
Ætla að varpa fram annari spurningu hérna. Ætla að reyna að hafa hana aðeins erfiðari en síðast, og reikna með því að einhver sem ég veit hver er svari núna. En samt ekki Hannes. Þú mátt ekki svara, ég er búinn að spyrja þig að þessu áður, og segja þér svarið. En spurningin er:
Hvað eiga Tryggvi Már Sæmundsson, Kevin Costner, Demi Moore og Osama Bin Laden sameiginlegt?






þriðjudagur, nóvember 2


Stuð í Eyjum
Það er búið að vera nóg að gera hjá mér í dag. Er staddur heima í Eyjum, þurfti að stoppa hér lengur en ég ætlaði mér. Kom á föstudagskvöld, og er búinn að dvelja hér í góðu yfirlæti yfir helgina. Ætlaði mér að ræða við rannsóknarlögregluna hér í Eyjum vegna kærunnar á hendur okkur VKB-mönnum fyrir áfengisauglýsingu í því eðalhefti Þroskahefti. En rannsóknarlögreglumaðurinn (djöfull er þetta lant orð) var í fríi í gær svo ég þurfti að bíða þangað til í dag að hitta hann. Auk þess sem ég er búinn að vera í eintómu fokki með umsóknina mína um námslán fyrir þetta skólaár. Hringdi í LÍN á föstudaginn til að athuga með gang mál varðandi umsóknina, því ég ætlaði að fara að væla út yfirdrátt hjá Sparisjóðnum, þá var mér sagt að sú sem svaraði gæti ekki sagt til um það. En hún tók niður nafn mitt og kennitölu og sagði að haft yrði samband við mig í síðastalagi á mánudaginn (í gær). Þegar biðlund mín var á þrotum í gær, og ég ákvað að hringja, klukkan að ganga fjögur (NB. þau eru með upið frá 09-16)þá komst ég að því að umsóknin mín hefði eitthvað klikkað. Þá var mér bent á að senda þeim e-mail, svo þau hefðu eitthvað í höndunum til að vinna út frá, sem og ég gerði. Þá var hringt í mig í morgun og rætt við mig, og mér sagt að ég þyrfti að sækja um að nýju í gegnum netið. Þegar ég reyndi það þá kom einhver tilkynning um það að kerfið hjá þeim lægi niðri fram að hádegi vegna breytinga. Ég átti svo fund við lögregluna klukkan eitt, prófaði aftur rétt fyrir þann tíma og fékk sömu skilaboð. Svo þegar ég skilaði mér heim eftir það, og fór í að reyna aftur, þá fékk ég einhverja aðra villumeldingu. Svo ég hringdi í LÍN, og lox þegar ég fékk samband við einhvern þar sem nennti að tala við mig eftir að hafa verið hent á milli nokkurra. Þá sagðist hann ætla að tala við tölvudeildina og að þetta yrði sennilega komið í lag á innan við klukkutíma. Þá var klukkan orðin tæplega þrjú, og ég þurfti að komast í Sparisjóðinn fyrir lokun, klukkan fjögur. Svo ég beið eins lengi og að ég treysti mér til, reyndi þá aftur, og enn sama villu meldinginn. Dreif mig í Sparisjóðinn, ræddi þar við skrifstofustjórann (minnir endilega að hún sé titluð það) sagði henni hvernig lægi í málunum og hafði það af að plata útúr henni smá yfirdrátt.
Var að reyna að sækja um aftur núna rétt í þessu, og fékk enn sömu villumeldinguna. Djöfull er þetta óþolandi.






mánudagur, nóvember 1


Opinberun Helga
Ég játa það, þegar að það kemur að bandarískum stjórnmálum þá er ég Demókrati. Ég er vaxinn upp úr því að finnast orð eins og krati og vinstri maður vera blótsyrði. Þegar það kemur að íslenskum stjórnmálum, þá gæti ég janvel talist hægri-krati á köflum. Mér er samt frekar illa við að skilgreina mig eitthvað, finnst nóg að segja að ég sé Sjálfstæðismaður. Hef reyndar alla tíð fallið frekar illa að skilgreiningum.
Maður kemst ekki hjá því að fylgjast með þessari kosningabaráttu þeirra þarna í USA, eða BNA eins og íslenskir fjölmiðlar eru farinir að skrifa nú orðið. Ég verð að viðurkennan það að þó ég teljist nú sæmilega hægra megin við miðju hér á Fróni, þá finnst mér Bush vera alltof langt til hægri. Hef reyndar aldrei skilið þessa áráttu vinstrimanna hér í Evrópu að vera að reyna að tengja sig eitthvað við Demókratana í USA/BNA. Margir, ef ekki vel flestir, flokksmenn Demókrata myndu teljast mjög hægrisinnaðir innan Sjálfstæðisflokksins. Þessir íslensku jafnaðarmenn ættu frekar að vera að klína sér á Ralph Nader, heldur en að vera reyna að tengja sig Clinton hjónunum á einhvern hátt. Eins og þeir reyndu svo mikið þegar þau hjónakornin sáust hér á landi síðsumars. Clinton finnst mér reyndar einn merkasti pólitíkus síðasta áratugar. Bush aftur á móti finnst mér afar ómerkilegur pólitíkus, og hafa gert töluvert meira ógagn en gang á því kjörtímabili sem senn er á enda.
Það er þannig í henni Ameríkunni, að forsetar mega aðeins sitja tvö kjörtímabil. Því halda þeir gjarna aftur af sér á því fyrr og geyma þær aðgerðir sem þeir kunna að vilja hrinda í framkvæmd, og fallið gæti í grýttan jarðveg meðal kjósendum, þangað til á síðar kjörtímabilinu. Þegar þeir þurfa ekki að hafa áhyggjur af endurkjöri. Í ljósi þess sem Bush hefur nú þegar látið eftir sér að gera, á þessu sínu fyrsta (og vonandi síðasta) kjörtímabili, þá vil ég nú helst bara ekki hugsa til þess hvað honum gæti dottið til hugar að fara að gera á sínu síðara kjörtímabili.
Reikna reyndar fastlega með því að Bush sigri í þessum kosningum. Stríðsforsetar ná víst alltaf endurkjöri segja spekingarnir ...
En þrátt fyrir það segi ég fullum hálsi GO KERRY.






Ég

er fæddur í Eyjum 1981

hef búið í Eyjum nær alla ævi

bý núna í Reykjavík

vinn sem möppudýr í smiðju í Garðabæ

er flokksbundinn Sjálfstæðismaður

veit ekki hvað ég get sagt fleira um sjálfan mig

býð þig hjartanlega velkominn á síðuna

e-Póstur

msn




Lesist á eigin ábyrgð

Blogg-óði maðurinn
Blogg-óða konan
Blogg-óði faðirinn
Þessi flúði land
Passið ykkur á þessum
Síra
Sýra
njé-2
Þessi kom á Þjóðhátíð
Oft gaman að þessum
Þessi er rokk-fróður
Þessi hefur áhuga á listum
Þessi kann að segja sögur
Þessi fær aldrei notið steríós
Þessi stuðlar að fjölgun mannkyns
Þessi ætlar að laga í mér lifrina
Þessi fór til Spáns
Þessi á dýptarmæli
Þessi fílar Bubba óhóflega mikið
Þessi styður Newcastle United
Þessi er mikið fyrir murtuna
Þessi stúderar í Danaveldi
Þessi er í Breskum leikskóla
Þessi kann á rússneskar bongótrommur
Þessi fann Jesúm
Þessi biður að heilsa
Þessi stjórnar bæ
Þessi kann að jóðla
Þessi valdi Hellisey
Foster's Blog
Foster's Net
VKB's Blog

Þetta skoða ég

Fréttir
Mogginn
Vísir
eyjar.net
Háskólinn
VKB
Dalurinn
Ægisdyr
Eyjabloggarar
B2.is
Google
Heimabankinn
Dagskráin
Árgangur '81
Leikjanet
Uncyclopedia
Encyclopedia
KÉSHÁM (NBA)
Öll tónlist
Eyverjar
IMDb
TV.com
YouTube
Reykjavík FM

Gamalt og mis gott

mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008
september 2008
október 2008
nóvember 2008
desember 2008
janúar 2009

Þakkir fá

blogskins
Main Site
Powered by TagBoard Message Board

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

eXTReMe Tracker