*
*
*
*
mánudagur, desember 27


Veikindi
Þetta eru ekki búin að vera bestu jól sem ég hef upplifað. Þetta byrjaði svo sem allt vel, með litlu jólum VKB á Mánabar að kvöldi Þorláksmessu. Þrusu mæting og hörku stuð. En hinsvegar vaknaði ég upp um 6 á aðfangadagsmorgun að farast í maganum, og er búinn að vera að eiga við leiðinda magakveisu að stíða öll jólin, sem var þó verst á aðfangadag. Ég er ekki frá því að eg hafi verið með einhvern hita þá líka. Var allavega voðalega máttlítill og ræfilslegur. Þetta er búið að vera skelfilegt, maður er ekkert búinn að njóta þess að borða jólamatinn eða neitt.
Ég hélt ég væri u.þ.b. að ná að rífa mig upp úr þessu í gær, og var mjög ánægður með það þ.s. hin árlega afmælisveisla þeirra Hjalta Einrassonar og Andra HÆ Ólafssonar var í gærkvöldi. En þegar það fór að líða á kvöldið, þá fór að gæta aukins óróleika í maganum á mér. Það endaði þó með því að ég ákvað að drífa mig bara og láta reyna á það hvort maður myndi ekki ná að halda sér sómasamlegum. Þetta gekk svo sem ágætlega framan af og ég var ekkert það slæmur þegar haldið var á ballið, að ég ákvað bara að skella mér með. Hins vegar þegar fór að líða á ballið, þá varð ég stöðugt þjáðari í maganum, svo ég ákvað að drífa mig bara heim einhvertíman fljótlega upp úr þrjú. Skellti í mig einum Alkaseltser fyrir svefninn. Það náði að stilla magann á mér nokkuð vel, svo ég náði góðum svefni og er búinn að vera sæmilegur í maganum í dag. Ætla rétt að vona að þetta sé að verða komið í lag.






miðvikudagur, desember 22


Kominn til Eyja
Jæja, þá er maður búinn í prófum, og kominn heim til Eyja og alles. Búinn að fá útúr einu prófi. Náði, ekkert með fljúgandi litum eða neitt. Léttasta fagið líka sem ég var í þessa önnina, hefði orðið mjög fúll ef ég hefði fallið í þessu. En get svo sem ekkert kvartað þótt ég hafi fengið frekar lága einkunn. Maður verður víst eð sína einhvern lit í náminu til að standa sig betur. Það eru víst gerðar aðeins meiri kröfur til manns í verkfræði en í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Veit ekkert hvernig mér gekk í síðasta prófinu, kemst svo sem ekkert að því fyrr enn ég fæ út úr því.
Fór með nokkrum ú verkfræðinni á Eldsmiðjuna strax eftir próf, í pizzu og bjór. Smakkaði meðal annars pizzu með kjúkkling, sólþurkuðum tómötum og hnetum og eitthvað. Kom alveg furðulega vel út. Svo þurfti maður að snúast og redda hlutum, eins og fötunum úr hreinsun og jólgjöfum frá ættingjum í borginni sem ég átti að ferja heim og svona og versla eitthvað. Pakkaði svo bara niður og kom mér í bælið tímanlega, eitthvað um 10. Enda ekki búið að vera alltof mikið um svefn hjá manni undanfarna daga. Svaf t.d. bara í um 2 og 1/2 tíma í fyrri nótt, fyrir prófið. Síðan Herjólfur í morgun, og hér er ég kominn tilbúinn til að fara fagna fæðingu frelsarans.






laugardagur, desember 18


Sumir eru ódýrari en aðrir
Eins og flestum sem þekkja mig eitthvað ætti að vera ljóst, þá er ég alveg voðalega mikið gefinn fyrir aulafyndni. Og er það búið að gleðja mitt littla hjart mjög mikið undanfarna daga að sjá mann hérna á göngum VR-II sem ég eins og snýttur úr nösunum á Jeff Daniels í Dumb and dumber. Það er búin að vera töluverð umræða um þetta meðal þeirra sem ég umgengst einna helst hérna. Því vakti það ekki síður lukku þegar sást að einhver hefði tekið sig til og hengt upp mynd af Daniels úr umræddi kvikmynd og ritað undir hana eitthvað á þann veg að þessi maður væri eftirlýstir fyrir ýmis misspaugileg atriði. En hinsvegar fannst mér þó það sem ég sá áðan toppa þetta allt. Svo eru nefnilega mál með vexti að við lyftuna hérna í húsinu er neyðar bjalla á sæmilega áberandi stað. Og hefur eitthvert gáfnaljósið séð ástæðu til þessa að setja merki fyrir neðan sem á stendur Neyðarkall frá lyftu. Þá hefur einhver fimmaura-smiðurinn tekið sig til og hengt upp miða með eftirfarandi skilaboðum fyrir neðan.


Afhverju ekki neyðarkona

Femenistafélag Háskóla Íslands






föstudagur, desember 17


Próf og øl
Fór í mitt annað, og jafnframt næstsíðasta, próf þessa önnina í gær. Gekk bara ágætlega held ég, yrði allavega fyrir voðalegum vonbrigðum ef ég félli í þessu. Svo er próf hjá mér á þriðjudaginn. Þannig að það bíður manns bara lærdómur yfirhelgina, ekkert kenndirí þessa helgi. Þess vegna greip maður tækifærið í gær og fékk sér smá øl. Skellti mér á X-mas tónleikana og smá pöbbarölt eftir það. Tónleikarnir voru hinir fínustu alveg. Hoffmenn voru fínir þrátt fyrir áberandi ölvun hjá ónenfdum sembýlingum sem spila skemmtara og gítar. Þeir voru í Vestmanneyskum þrettánda-búningum, sem virtist vekja þó nokkra lukku hjá meiginn þorra áhorfenda. Þó mér skildist að þetta hefði eitthvað farið fyrir brjóstið á einum af fulltrúum X-ins. Sem átti hugsanlega þátt í því að þeir voru ekki látnir skrifa á gítarinn sem "allir" sem spiluðu á tónleikunum árituðu og á víst að gefa einhver tíman á næstu dögum á X-inu. En þrátt fyrir fína frammistöðu Hoffmanna, verð ég að segja að mér fannst Mugison eiginlega stela senunni. Stóð sig hreint snilldarlega, og langar mig nú mikið á tónleika með þessum manni.
Sjáum til hvað nýtt ár ber í skauti sér ...






sunnudagur, desember 12


Það er víst leikur að læra segja þeir ...
Er ekki rétt að reyna að henda einhverju hérna inn meðan að maður gefur sér tíma til að líta aðeins upp úr bókunum til annars en að nærast eða sofa. Skelfilega verð ég feginn þegar þessari törn líkur, verst að það skuli ekki ver fyrr enn korter í jól. En þá mun maður líka nota tækifærið og skvetta ærlega úr klaufunum yfir hátíðarnar. Ég á sennilega bara eftir að skríða dýpra ofan í bækurnar á næstu dögum. Skelfilegt að vera að reyna að læra svo gott sem heila önn á nokkrum dögum fyrir próf. Þetta er ekki jafn auðvelt og það var í FÍV.
Maður er orðinn það sokkinn ofan í þessar skruddur að maður sér ekki orðið nokkurn mun á milli daga. Hefði sennilega ekkert fundið fyrir því að það væri sunnudagur í dag, nema fyrir það að ég kom að læstum dyrum hér í VR-II í morgun þegar ég ætlaði að mæta kl 9. Þeir opna víst ekki fyrr enn 10 á sunnudagsmorgnum. Hvernig átti ég að vita það? Aldrei hefur mér áður dottið í hug að mæta í skólann að morgni sunnudags. Hélt ég yrði aldrei svona duglegur í námi. Kannski að manns innri nörd sé bara loxins að fá almennilega útrás ...






föstudagur, desember 10


Próf
Jæja, þá er fyrsti prófi þessarar annar lokið. Mér gekk svo sem bærilega, og myndin nú ekkert bregða þótt ég næði því. En eins og venjulega, þá finnst mér alltaf best að vera hæfilega svartsýnn. Mér finnst það betra því þá verður maður í það minnsta ekki fyrir vonbrigðum með útkomuna. Ég var líka búinn að læra eins og geðsjúklingur undir þetta próf, svona á minn mælikvarða allavega. Sem sést svo sem á þessari síðu minni. Ekki búinn að gefa mér tíma til að pósta neinu hérna síðan á mánudagskvöldið. Var svo sem ekki vanþörf á því að taka sig svolítið á í þessu, enda hafði ég verið í framhaldskólagírnum alla þessa önn þegar það kom að lærdómnum. Svo er bara önnur álíka törn fram undan. En ég hef samt 6 daga í næsta próf, svo ég ætla gefa mér einhverja 1 - 2 daga í rólegheit. Samt kannski ekki gott að slaka of mikið á, svo maður detti nú ekki úr þessum Háskólaprófsgír (voðalegar vélalíkingar eru þetta hjá mér, er svo sem kannski í lagi fyrst maður er nú í vélaverkfræði). Fyrst á dagskrá er nú samt að leggja sig, enda lítið búið að vera um svefn undanfarnar nætur. Svaf til að mynda ekki nema rúma þrjá tíma í nótt. Maður verður nú samt að passa sig að hafa þennan blund ekki of langan, svo maður fari nú ekki að snú sólahringnum við áður en maður fer að læra aftur undir próf.






mánudagur, desember 6


Fleiri kveðjur frá fornritíð
Gaf mér smá tíma til að skoða gestabókina hjá Branaskólnum sem ég vitnaði í hér að neðan, og rakst þá á ýmislegt sem fékk mig til að flissa. Og þar sem mér finnst hálf asnalegt hlægja með sjálfum mér þá ákvað ég að deila einhverju af því skemmtilegasta og skrítnasta með ykkur. Megið þið hafa gaman af:

Sunnudagurinn 06. Apríl 1997, kl. 17:00
Guðlaugur Rúnarsson Hásteinsvegur 24
njótið lífsins

Fimmtudagurinn 17. Apríl 1997, kl. 05:06
Juan M Perez-Wheeler // 4361Wheeler NT1115, Houston, TX, 77004 // jperezwh@bayou.uh.edu
I am your friend juanito and I am terribly amazed about your country and feel very unconfortable that I am dying to live, study and/or work there but information is very hard to get. Please contact me if interested about me. I have great admiration for your country.

Mánudagurinn 05. MaÌ 1997, kl. 22:01
Arve Åheim, Hauane, N-6740 Selje
Kvifor har de så store skular på Island?

Sunnudagurinn 26. Janúar 1997, kl. 15:16
Logi Gunnarsson Krabbastíg 4 600 Akureyri gunnarn@ismennt.is
ég heiti LOGI og er í Barnaskóla Akureyr ar. Það eru eingar tölvur í skólanum mínum en vonandi koma þær. bless LOGI

Gaman að því! Finnst ykkur ekki ??







Kveðjur frá fornritíð
Var enn að fikta í þessu Extreme tracking dóti og var að skoða semsagt svona hvað hefði komið upp þegar þessar leitir sem ég vitna í hér að neðan voru gerðar. Klikkaði á hvað hefði komið upp þegar leitað var að Kolbeinn Ólafsson. Þá rambaði ég inn á gestabókina hjá Branaskólanum í Vestmannaeyjum frá því '97. En þar hafði Kolbeinn einmit skilið eftir eftirfarandi skilaboð:

Sunnudagurinn 20. Apríl 1997, kl. 21:53
Kolbeinn Ólafsson Hólagata 31
cool skÛli

Gaman að svona úthugsuðum og djúpum kveðjum í þessum gestabókum.






föstudagur, desember 3


Extreme tracking er sniðugt tæki
Það virðist allt í einu vera orðin einhver sprenging í því að fólk rati inn á síðuna mína af leitarsíðum. Aðaleg hefur fólk þvælst inn á síðuna mína í leit að gefins kettlingum. En því miður þá get ég ekki útvegað því fólki kettlinga. Því það er búið að lóga öllum kettlingunum sem læðan gaut í sumar og ekki fannst heimili fyrir. Einnig hefur fólk rambað inn á síðuna mína þegar það hefur verið að leita að upplýsingum um fólk sem ég þekki, og hafa verið í fjölmiðlunum. Eins og Selma Ragnarsdóttir og nú síðast Guðjón Hjörleifsson. Einhver kom á síðuna mína þegar hann var að leita að Jón Ásgeir porsche eftir að ég hafði verið með vangaveltur um bílaeigna Jóns Ásgeirs. Einnig En ekki skil ég samt hver hefur verið að leita að Kolbeinn Ólafsson. Kannski að Kolli eigi sér leynilegan aðdáanda, hver veit. Merkilegar þykir mér þó að fólk hafi rambað inn á síðuna mína eftir að hafa leitað að íslenskir sófar og hvað þýðir álkulegur. Svo hefur einhver rambað hérna inn í leit að blautbols eitthvað. Spurning hvort ef maður hendir inn einhverju eins og brjóst og rass og svoleiðis hvort maður fari þá að fá fleiri heimsóknir.






fimmtudagur, desember 2


Jólainnkaup
Fór áðan með Hannesi á hádegishlaðborðið á Troccadero. Alger snilld, mæli endregið með þessu. Við átum báðir svoleiðis gjörsamlega yfir okkur að það tók okkur þó nokkurn tíman að drullast til að stíga úr sætum og koma okkur af stað. Þá tók við góður rúntur um borgina, sem endaði í Kringlunni. Þar reyndum við að rölta úr okkur mestu sedduna. Þegar eitthvað var farið að sjá til sólar í þeim efnum þá tókum við þá snilldar ákvörðun að kíkja á kaffihús þarna og fó okkur øl. Verð nú að viðurkenna það að einhvertíman hefur maður nú verið fljótari að renna niður einum øllara. Þegar búið var að koma þessum bjór einhvernveginn ofan í sig, leið manni eins og manninum í veitingahúsa atriðinu í Meaning of life þeirra Monty Python manna. Þá var tekið á það ráð að rölta enn meira um þessa Kringlu, og sjattnaði þetta á aðeins á meðan. Það rölt skilaði manni inn í Skífuna, þar sem maður eins og venjulega virti fyrir sér helling af drasli sem mann langar í en hefur ekki efni á. En eitt var það sem ég hreinlega varð að kaupa. Fyrst það fer að líða að jólum, verður maður víst að kaupa einhverjar jólagjafir. Og ákvað ég því að drýfa í að kaupa eina slíka. Sem ég ættla að gefa ... mér.
Já þetta hljómar svolítið eigingjarnt kannski. En sko, þetta verður eiginlega svona tvöföld jólagjöf. Keypti nefnilega Best of disk með Cat Stevens með DVD og læti. En ég á einmitt annan alveg eins disk, án DVD-sins þó, sem ég gleymdi einhvertíman fyrir óralöngu í fagnaði heima hjá Hafþóri hinum smáa. Haffi fann þennan disk fyrir einhverju síðan heima hjá sér, og er mikið búinn að hlusta á hann. En ég er alltaf búinn að gleyma að rukka hann um diskinn, þótt ég sé búinn að sakna hans alveg gífurlega. Því ákvað ég að gefa mér þennan í jólagjöf, þá get ég bara gefið Haffa gamla minn í jólagjöf í staðinn.






miðvikudagur, desember 1


Jólaskraut
Ég vona að þér hafi ekki brugðið um of, lesandi góður, þótt ég hafi sett jólaskraut á síðuna mína. En maður getur víst ekki verið jólaskrautslaus frekar en Boggi og Haltu Kjafti! Og þar sem ég var orðinn afar pirraður á þessu Tag Board rusli þá ákvað ég að setja bara inn jólaskraut í stað þess.
Njótið vel ...






Ég

er fæddur í Eyjum 1981

hef búið í Eyjum nær alla ævi

bý núna í Reykjavík

vinn sem möppudýr í smiðju í Garðabæ

er flokksbundinn Sjálfstæðismaður

veit ekki hvað ég get sagt fleira um sjálfan mig

býð þig hjartanlega velkominn á síðuna

e-Póstur

msn




Lesist á eigin ábyrgð

Blogg-óði maðurinn
Blogg-óða konan
Blogg-óði faðirinn
Þessi flúði land
Passið ykkur á þessum
Síra
Sýra
njé-2
Þessi kom á Þjóðhátíð
Oft gaman að þessum
Þessi er rokk-fróður
Þessi hefur áhuga á listum
Þessi kann að segja sögur
Þessi fær aldrei notið steríós
Þessi stuðlar að fjölgun mannkyns
Þessi ætlar að laga í mér lifrina
Þessi fór til Spáns
Þessi á dýptarmæli
Þessi fílar Bubba óhóflega mikið
Þessi styður Newcastle United
Þessi er mikið fyrir murtuna
Þessi stúderar í Danaveldi
Þessi er í Breskum leikskóla
Þessi kann á rússneskar bongótrommur
Þessi fann Jesúm
Þessi biður að heilsa
Þessi stjórnar bæ
Þessi kann að jóðla
Þessi valdi Hellisey
Foster's Blog
Foster's Net
VKB's Blog

Þetta skoða ég

Fréttir
Mogginn
Vísir
eyjar.net
Háskólinn
VKB
Dalurinn
Ægisdyr
Eyjabloggarar
B2.is
Google
Heimabankinn
Dagskráin
Árgangur '81
Leikjanet
Uncyclopedia
Encyclopedia
KÉSHÁM (NBA)
Öll tónlist
Eyverjar
IMDb
TV.com
YouTube
Reykjavík FM

Gamalt og mis gott

mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008
september 2008
október 2008
nóvember 2008
desember 2008
janúar 2009

Þakkir fá

blogskins
Main Site
Powered by TagBoard Message Board

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

eXTReMe Tracker