*
*
*
*
sunnudagur, janúar 30


Pirrandi
Þegar maður er þunnur, þá langar mann alltaf í eitthvað sem maður á ekki til.
Ohhh ég er svnagur, nenni samt ekki að borða ...






fimmtudagur, janúar 27


PARTY
Langar til þess að blogga eitthvað, en nenni því eiginlega ekki. Er búinn að sitja fastur í tölvunni alltof lengi. Það er allt að verða vitlaust á Haltu Kjafti!, var bara að lesa og pósta þar í einhver, jaaaa veit ekki alveg hvað langan tíma, en alltof langan tíma áðan. En já ok það einmit, heyrðu lesandi. Við sambýlingarnir í Mosarimanum erum að fara að halda innflutningspartý annað kvöld (föstudag) og þér er boðið að mæta. OK.






þriðjudagur, janúar 25


Fjölgun
En fjölgar í hópi hinna bloggandi. Lára Dögg er búin að smitast af Bogga, og er komin með sína eigin bloggsíðu. Það var svo sem ekki við öðru að búast en að blogg-veiran myndi leka þarna á milli herbergja. Mér þykir þetta þó ekki mikil mótspyrna hjá Láru. Ég entist þó fram í mars áður en ég fór að blogga, þótt við Boggi byggjum undir sama þaki síðasta vetur. Það hefur kannski munað um það að herbergin okkar voru ekki á sömu hæð.
Ég er skrítin maður. Eða svo virðist allavega vera, því ég er sá eini af mínum félögum sem er hrifinn af súrmat. Lét það einmitt eftir mér að kaupa fötu af súrmat í Bónus í gær. Samt var nú hvorki súrmatur í matinn hjá mér í gærkvöldi, né í kvöld. Í gær kláraði ég restina af kjúllanum frá því á sunnudaginn. Svo át ég pulsur í kvöld sem ég þurfti að drífa í að eta áður en þær kæmust á stimpil. En maður er nú farinn að hlakka það til þess að fá sér súrmat að það líða varla margir dagar áður en að þessa verður neytt.






mánudagur, janúar 24


Handónýtur
Ég eldaði kjúkling í gær. Það heppnaðist alveg lygilega vel fyrir utan það kannski að ég var full viljugur að krydda hann. Skar fuglinn í tvennt fyrir eldun. Hnífurinn rann til hjá mér við það og hjó skarð í vinstri hendina á mér. Hann var greinilega beittur, enda skildi hann eftir djúpst sár. Það fyrsta sem ég hugsaði, þegar ég skar mig, var "Helvítis! Ætli salmonella geti smitast með blóði". En ég er ekki enn kominn með skitu, svo ég virðist ætla að sleppa við það. Svo nældi ég mér í myndarlega brunablöðru á löngutöng hægri handar í vinnunni í dag. Var að halda stykki sem var verið að sjóða fast og fékk þá gjalldropa á puttann. Ég gat náttúrulega ekki sleppt, svo ég varð að bíða meðan stykkið var punktað fast. Verð að fara að stinga á þetta. Verst samt að vera ekki með myndavél, þetta er einhver stærsta blaðra sem ég hef séð. Alltaf gaman að geta montað sig af sárum.






laugardagur, janúar 22


SAW
Fór í bíó í gær. Við fórum ég, Siggi, Hannes og Þórir að sjá SAW. Var búinn að heyra mikla og góða hluti um þessa mynd. Sennilega of mikla og of góða. Því hún stóðst engan veginn væntingar mínar. Hugmyndin að baki myndinn er svo sem að vissu leiti þræl sniðug, og aðal "twist-ið" í söguþræðinum gæti hafa virkað ef það væru kynntar fleiri en svona 5 - 7 persónur til sögunnar. Það er ekkert sérstaklega erfitt að beita fyrir sig útilokunaraðferðinni og átta sig þannig á því hver að "vondikallinn" eigi að vera. En svo er það leikurinn. Þessi mynd er hrikalega illa leikin á köflum. Hann Cary Elwes, sá sem lék aðalhlutverkið í Men in tights, leikur eitt aðalhlutverkanna, og hann stendur engan veginn undir því. Þetta var svo skelfilegt undir lokin á myndinn, þegar persónan hans átti að vera í einhverju voðalegu uppnámi. Að við Þórir vorum hreinlega að farast úr hlátir. Það var bara pínlegt að horfa upp á þetta hjá honum. Allt í lagi afþreying samt.






miðvikudagur, janúar 19


Enn af útvarpi
Hvað er þetta eiginlega með iðnaðarmenn og Bylgjuna. Það virðist vera náttúrulögmál að iðnaðarmenn sem orðnir eru 35 ára eða eldri verði að hafa stillt á Bylgjuna á öllum útvörpum sem þeir komast í. Bylgjan er ekki beinlínis mín uppáhaldstöð, en neyðist ég nú að hlusta á hana á hverjum degi í vinnunni. Það bætir þetta reyndar aðeins að hafa fréttir á klukkutíma fresti, það er töluvert skárra en venjulega dagskrá Bylgjunnar.
Ég var að vinna í verki í gær fyrir mann sem ég hef einu sinni hitt, heilsað og stillt mér upp fyrir myndartöku með. En sú mynd birtist einmitt í sorpritinu Séð og heyrt á sínum tíma. Við litla kátínu mína, og húðskammiði ég manninn sem stóð fyrir því að senda þessa mynd á Séð og heyrt. Og nú er spurningin, hver er þessi umræddi maður? Svör sendist í komment kerfið hér að neðan.
Er líka búinn að fá út úr síðasta prófinu frá því fyrir jól. Náði því! Og náði þar með öllum prófunum sem ég fór í þessa önnina. Fór reyndar ekki í nema 3 próf. En það verður samt að viðurkennast að þetta getur ekki talist annað en jákvæð þróun. Við skulum vona að hún haldi áfram.






mánudagur, janúar 17


Kominn með vinnu
Jæja, þá er það víst komið á hreint. Á að mæta í fyrramálið kl 08:00 í járnsmiðjuna Járnverk. Þetta er töluverður léttir að vera búinn að ganga frá þessu, er alveg rétt um það bil að klára síðustu aurana mína. Hélt reyndar að ég fengi ekki þessa vinnu, enda þegar ég talaði við kallinn þarna á fimmtudaginn í síðustu viku, þá sagði hann að ef ég heyrði ekkert frá honum aftur sama dag, þá ætti ég að taka það sem svo að hann væri búinn að ráða einhvern annan. Og ég heyrði svo ekkert í honum fyrr enn að hann hringdi í mig í morgun, og spurði hvort ég hefði enn áhuga á þessu starfi. En það skiptir svo sem ekki öllu máli, fyrst þetta reddaðist á annað borð.






sunnudagur, janúar 16


Á síðustu stundi
Hún hefst vel þessi önn hjá mér. Ég sem var búinn að lofa sjálfum ér að taka mig á í lærdóminum. En ég á einmitt að skila heimadæmum í tveimur fögum á morgun, öðru fyrir kl. 13:00 og hinu fyrir 16:00. Er rétt farinn að líta á þetta núna þó svo að ég sé búinn að vita af þessu alla vikuna. Þetta á nú ekkert að vera neitt mál svo sem, fyrstu heimadæmin eru yfirleitt enginn vandi. En maður þarf samt víst að byrja á þessu einhvertíman ef maður ætlar sér á annaðborð að gera þetta. Verð bara að drífa mig í það núna.
Var að horfa á þrælskemmtilega heimildarmynd á RÚV áðan, How do you like Iceland? Veit ekki hver á heiðurinn af henni, en ég hafði mjög gaman af henni. Var verið að tala við hina ýmsustu útlendinga sem eytt höfðu einhverjum tíma á Íslandi um álit þeirra á landi og þjóð. Maður hefur alltaf gaman að fá innsýn í hvernig manns daglegalíf kemur fyrir augu utanaðkomandi aðila. Það var náttúrulega ekki hægt að læra meðan að það var í sjónvarpinu. Ekki heldur núna meðan maður bloggar. En nú kemst maður tæplega hjá því öllu lengur að byrja á þessu.






fimmtudagur, janúar 13


Dead air
Þá er útvarp á Íslandi dottið aftur um einhver 5 - 10 ár. Þetta er fáránlegt. Það getur ekki annað verið en að það sé grundvöllur fyrir rekstri stöðva eins og til dæmis Skonrokk. Miðað við kannanir sem voru gerðar á stuttu æviskeiði Skonrokks þá var veruleg hlustun á stöðina. Enda með frábæra tónlist og flotta þætti. Svo eru þeir reyndar búnir að færa íþróttaþáttin í sjónvarp. Ekki alveg viss um að hann virki jafnvel þar og í útvarpinu.
Ég er sannfærður um það að þeir sem sáu um reksturinn á þessu hafi átt sökina á hvernig að komið var. Hefði verið meira vit að hreinsa til þar, en að bara slökkva á þessu fyrirvaralaust.
Þó ég sé nú lítt gefinn fyrir samsæriskenningar þá get ég ekki annað en velt mér aðeins upp úr því að Norðurljós gleyptu X-ið á sínum tíma, og sameinuðu það svo Radio og lögðu það svo niður núna, þegar það er engin samkeppni. Þeir stofnuðu Skonrokk þegar Radíó Reykjavík var búið að ganga um tíma, til að hafa stöð á móti þeim í þessu klassíska rokkinu. Nú er Radíó Reykjavík, af einhverjum sökum ókunnum mér, búið að fá á sig lögbann. Þá er engin samkeppni við Skonrokk, og Skonrokk er lagt niður. Svo er það Fm, en það er einmitt Kiss fm sem er nánast sama fyrir bæri, og í samkeppni við Fm. Fm fær að lifa. Svo er það Bylgja, má náttúrulega ekki sökkva flaggskipinu, en það er líka svo sem þarna útvarpstöðin MIX sem er að mér skilst keimlík að miklu leiti auk þess það er nú hægt að líta sem svo á að Bylgjan sé í samkeppni við Rás 2. En á meðan að það eru lagðar niður þrjár stöðvar. Þá stofnar þeir nýja, "talk-radio" stöð til höfuðs Útvarps Sögu. Og vitið til þegar þeir verða búnir að keyra Útvarp Sögu út af markaðnum, þá leggja þeir þá stöð ábyggilega niður líka.






miðvikudagur, janúar 12


I'm walking on sunshine
Ég er alveg afskaplega ánægður þessa stundina. Var að fá út úr einu prófi, og af orðum mínum hér að framan ættu flestir að geta séð að ég náði. Já ég náði efnafræðinni, þrátt fyrir vægast sagt slælega framistöðu í náminu yfir önnina. Mætti reyndar ekki nema í hálfan fyrirlestur og engan dæmatíma. Ekki vegur að þeir fengju mig til þess að mæta í dæmatíma á laugardagsmorgnum. Var líka skíthræddur um að hafa fallið í þessu, ætlaði líka varla að þora að tékka á einkunninni þegar ég sá að ég væri búinn að fá út úr þessu. En djöfull var ég ánægður þegar að ég sá að ég hefði náð þessu. Þótt það væri ekki nema með 5,5. Sjaldan sem ég hef verið ánægður með 5,5 í einkunn. Á núna bara eftir að fá út úr einu prófi, og er ég nú frekar á því að ég hafi náð því en fallið. En það gæti líka svo sem verið að bjartsýni mín litist eilítið af því að ég hafi verið að ná efnafræðinni.
Hef samt svolitlar áhyggjur af því að kallinn sem ég var að sækja um vinnu hjá er ekki enn farinn að hafa samband. En mér skildist að hann ætlaði að hafa samband í dag. Það er samt ekki nóg til að skyggja á gleði mína í augnablikinu. Fátt sem ber svo mikinn skugga að það gæti það.






þriðjudagur, janúar 11


Lesinn
Jæja, það er þá búið að sýna sig að það eru allavega 5 menn sem lesa þessa síðu. En engin kona. Það kemur svo sem ekkert á óvart. Hvers vegna ætti ég svo sem að njóta meiri kvennhylli í netheimum en öðrum heimum ...
Framkvæmdi góð skipti í gær, þegar ég fór með Best of Creed sem ég fékk í jólagjöf í Skífuna og skipti honum fyrir Remasters með Led Zepplin. Var reyndar frekar erfið ákvörðun hvað ég ætti að fá mér, en Zepplin varð ofan á, og ég sé sko ekkert eftir því. Þetta á eftir að hljóma í eyrum mínum meðan ég sit undir stýri núna næstu daga.
Svo er ég líka að fara að fá Cat Stevens diskinn minn sendan með pósti. Ekki bara hann svo sem, gleymdi líka rakvélinni í Eyjum (eins og þeir sem hitta mig taka kannski eftir), sem og bæði vinnupeysu og vinnuskóm. En ég var aðeins að garfast í atvinnumálum í gær, og er að vonast til þess að geta gegnið frá því á morgun.






mánudagur, janúar 10


Les þetta einhver?
Af hverju kommentar enginn?






sunnudagur, janúar 9


Reykjavík
Já, þá er maður aftur kominn í borgina. Skólinn að byrja á morgun og læti. Þarf að fara á fullt í það að reyna að redda mér vinnu. Verð að fara að afla mér einhverra tekna. Er að verða kominn í algjör skíta mál peningalega vegna þess að ég og LÍN virðumst ekki vera alveg á sömu skoðin um hvað geti talist lánshæf framistaða í námi. Það er strax farið að gæta niðurskurðar hjá okkur Kolbeini í Mosarimanum, en við ákváðum það í gær að hætta með adsl-ið. Svo maður þarf víst að sækja skólann þessa önnina, í það minnsta til þess að komast á netið. Það er svo sem líka ætlunin að fara að taka sig aðeins á í þeim efnum. Því ekki sýnist mér að ég nái að fá LÍN til þessa að vera sömu skoðunnar og ég um þau afköst í námi sem skili manni láni. Svo ég verð víst að gangast að þeirra kröfum.






föstudagur, janúar 7


Þrettándinn
Nú er þrettándinn liðinn. Sem þýðir víst að jólin séu líka liðin. Því er ég búinn að fjarlægja jólaskrautið af síðunni. Ég var að spá í að setja upp spjalldæmið aftur. En ég get ekki séð betur á síðunni hans Elíasar en að það sé enn eitthvað fokk með þetta Tag Board rusl. Því ákvað ég bara að steja inn mynd í staðinn. Verður svona mynd vikunnar eða mánaðarins, eða bara síðunnar, kemur í ljós bara. Fer bara eftir því hvort og hvenær ég dett niður á mynd sem ég vil setja þarna, eða hvort ég nenni að skipta þessu út. Fannst til valið að setja inn mynd af Brandinum, þar sem mig dreymdi það einmitt í nótt að ég væri kominn í lundaveiði úti í Brandi. Var samt frekar ruglingslegur draumur, því það breyttist stöðugt hvað fólk var þarna úti með mér.







miðvikudagur, janúar 5


Nú árið er liðið
Búinn að sjá það á vappi mínu um netið að margir bloggarar hafa verið að gera upp árið með einhverjum hætti, eins og til dæmis hann Borgþór. En ég hins vegar nenni því ekki, ef þið viljið endilega fræðast eitthvað um hvað hefur á daga mína drifið þetta árið þá bendi ég ykkur bara á að fara í gegnum archives-ið hjá mér. Ekki nenni ég því sjálfur með þessa slöppu tengingu sem ég er með hérna. Byrjaði reyndar ekki að blogga fyrr enn í mars að mig minnir. En annars held ég að heilt yfir hafi þetta bara verið ágætis ár alveg.
Pabba var hleypt út af spítalanum í gær. Þá vr búið að koma í ljós að það var víst meir en lítið sem ég afrekaði þarna þegar ég skellti landganginum á puttann á kallinum. Þegar hjúkkurnar ráku augun í hvernig hann leit út þá heimtuðu þær að hann færi í myndatöku. Þar kom í ljós að hann er víst brotinn, auk þess sem hann var látinn fara aftur upp á spítala í morgun. Þar sem nöglin var fjarlægð. En allar athuganir varðandi hjartað á honum komu bara vel út. Hann hefur sennilega bara verið búinn að yfirkeyra sig í vinnu kallinn. Enda er hann ekkert sami maður og áður en að hann fékk áfallið í sumar.






mánudagur, janúar 3


Hrakfarir
Faðir minn liggur inni á spítala þessa stundina. En hann fékk hjartaáfall í byrjun júní í sumar, og var farinn að kenna einhverra eymsla í gærkvöld. Fór þá upp á spítala og var haldið, allavega yfir nóttina, til frekari rannsókna. Það er búiða að vera full mikið álag á kallinum undanfarið, miðað við að það sé rétt um hálft ár frá því að hann fékk hjartaáfall. Þeir komu báðir inn rétt fyrir jólin, Snorrinn og Guðmundur. Sem þýðir það að það er allt búið að vera á öðrum endanum hjá honum, og hann búinn að vera "á vaktinni" nær allan sólahringinn yfir hátíðarnar. Hann fékk til dæmis hringingu frá hafnarverði á gamlárskvöld þess efnis að landgangurinn á Snorranum væri að fara til fjandans. Hann fékk því mig og bróðir minn til að skjótast með sér niður á bryggju á milli Eyjaskaupsins og áramótaskaupsins hjá RÚV og kippa þessu í liðinn. Þar afrekaði ég það svo að klippa næstum því litlaputta af föður mínum.
Móðir mín var að koma af spítalanum núna rétt í þessu. Hún hafði bæði átt sjálf tíma hjá lækni og kíkti á pabba í leiðinni. Það var engar fregnir að hafa af kallinum, ekkert komið út úr neinum athugunum enn þá. En mér heyrðist það á henni að hún væri heldur svartsýn á að honum yrði hleypt út aftur í kvöld.
En ég hinsvegar afrekaði það áðan meðan að báðir forledrar mínir voru á spítalanum ,og ég einn í húskofanum með köttunum, að læsa mig úti. Ég fór í það skömmu eftir að móðir mín fór upp spítalann að þrífa kattakassann. Svo þegar komið var að því að fara með þetta út í rusl, þá stóð ég í dyrunum smá stund að íhuga. Sá að það var læst. Ætti ég að skilja hurðina eftir opna, nei fjandinn hafi það, það er svo vont veður, og ég er hvort eð er með lyklana í vasanum. En ég ætti samt að fara í einhverja skó. Nei nei, ég þurka bara vel af inniskónum þegar ég kem inn. En viti menn, þegar ég snéri aftur áð útidyrahurðinni, þá var ég bara með bíllyklana og lykla að íbúðinni í Grafarvoginum í vasanum. Þá voru nú góð ráð dýr. En sem betur fer, þá var ég með gemsann í vasanum, og gat hringt í systir mína, sem var sem betur fer með lykil á sér, og rennt til hennar á inniskónum í slagveðursrigningu og beljandi roki, til að nálgast lykil.






laugardagur, janúar 1


Gleðilegt nýtt ár
Maður er ekkert búinn að vera neitt sérstaklega duglegur við bloggið eftir að maður kom heim til Eyja. Er bara búinn að vera voðalege lítið á netinu. Það er frekar þreytandi að vera kominn í svona hæga tengingu, svo er maður líka búinn að hafa nóg að gera með að vorkenna sjálfum sér vegna veikinda. En var orðinn hress í gær til að fara í hina árlegu fjallgöngu okkar VKB manna, til að lýsa upp Helgafellið. Það tókst vægast sagt hörmulega þetta árið. Hún virkaði víst ekki alveg þessi nýja útfærsla okkar á merkinu.
Svo tók maður auðvitað vel á því í drykkjunni líka í gær. Byrjaði reyndar bara í rólegheitum, skálaði við famelíuna á miðnætti í kampavíni og sat svo með kaffi og koníak yfir Cat Stevens DVD. Rölti mér svo heim til Láru Daggar, þar sem ég hitti fyrir, auk Láru, þá Borgþór, Sigurð og Gvend Mílu. Sátum þar í einhvern tíma og sturtuðum vel í okkur og héldum svo upp í Höll með viðkomu hjá Sigurði. Um þetta leiti er minni mitt orðið heldur þokukennt. Skemmti mér alveg bærilega á þessu balli, var meir að segja það ölvaður að ég álpaðist, að best mig minnir, eitthvað út á dansgólf. Held samt að ég hafi ekki verið í einhverjum miklum æfingum þar.
En ég hafði alveg þræl gaman af þessu, er samt stöðugt að verða minni og minni ball-maður með árunum. En maður nú samt engu að síður að spá í því að skella sér aftur í kvöld. Er reyndar ekkert farinn að heyra í peyjunum. Það á enn eftir að koma í ljós í hvað ástandi að þeir séu ...






Ég

er fæddur í Eyjum 1981

hef búið í Eyjum nær alla ævi

bý núna í Reykjavík

vinn sem möppudýr í smiðju í Garðabæ

er flokksbundinn Sjálfstæðismaður

veit ekki hvað ég get sagt fleira um sjálfan mig

býð þig hjartanlega velkominn á síðuna

e-Póstur

msn




Lesist á eigin ábyrgð

Blogg-óði maðurinn
Blogg-óða konan
Blogg-óði faðirinn
Þessi flúði land
Passið ykkur á þessum
Síra
Sýra
njé-2
Þessi kom á Þjóðhátíð
Oft gaman að þessum
Þessi er rokk-fróður
Þessi hefur áhuga á listum
Þessi kann að segja sögur
Þessi fær aldrei notið steríós
Þessi stuðlar að fjölgun mannkyns
Þessi ætlar að laga í mér lifrina
Þessi fór til Spáns
Þessi á dýptarmæli
Þessi fílar Bubba óhóflega mikið
Þessi styður Newcastle United
Þessi er mikið fyrir murtuna
Þessi stúderar í Danaveldi
Þessi er í Breskum leikskóla
Þessi kann á rússneskar bongótrommur
Þessi fann Jesúm
Þessi biður að heilsa
Þessi stjórnar bæ
Þessi kann að jóðla
Þessi valdi Hellisey
Foster's Blog
Foster's Net
VKB's Blog

Þetta skoða ég

Fréttir
Mogginn
Vísir
eyjar.net
Háskólinn
VKB
Dalurinn
Ægisdyr
Eyjabloggarar
B2.is
Google
Heimabankinn
Dagskráin
Árgangur '81
Leikjanet
Uncyclopedia
Encyclopedia
KÉSHÁM (NBA)
Öll tónlist
Eyverjar
IMDb
TV.com
YouTube
Reykjavík FM

Gamalt og mis gott

mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008
september 2008
október 2008
nóvember 2008
desember 2008
janúar 2009

Þakkir fá

blogskins
Main Site
Powered by TagBoard Message Board

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

eXTReMe Tracker