![]() |
|||
|
sunnudagur, febrúar 27
Innlit/útlit Jæja, þá er komið að því. Vala Matt að fara að gægjast inn til VKB-meðlims í fyrsta skipti. Það kemur þó kannski svolítið á óvart hver varð fyrir valinu. En það er engin annar en lífskúnstnerinn sjálfur, Sindri Freyr Ragnarsson. En hann hallar höfði sínu þessa dagana hjá frænku sinni, hinni snoppufríðu Ragnheiði Guðna. Og þykir Völu Matt ástæða til þess að fá að líta á heimili hennar. En það að fá að skygnast í leiðinni inn til eins af stofnendum VKB hefur ábyggilega átt stóran þátt í því að heimili Ragnheiðar hafi heillað Völu svona mikið. Nú bíður maður í fyrsta skipti spenntur eftir því að sjá Innlit/útlit. Að vita hvort ekki verði litið við í herberginu hans Sindra.
fimmtudagur, febrúar 24
Allt er nú til Hvað ætlaru að gera í þessu ??
þriðjudagur, febrúar 22
Kötturinn Jæja, þá er víst kominn tími á að skipta út Ketti vikunnar. Lagið sem varð fyrir valinu þessa vikuna er lag sem Hermann Sigurgeirsson var gjarn á að glamra á gítar hér áður fyrr. Og hef ég í gegnum tíðina gert misjafnlega misheppnaðar tilraunir til þess að syngja með. En eins og flestum sem hafa einhvertíman verið þeirrar ólukku aðnjótandi að verða vitni að mér að gera tilraun til þess að syngja, ætti að vera ljóst, þá ferst mér það ekkert sérstaklega vel úr hendi. Og á ég auk þess frekar erfitt yfirleitt með að muna texta. Ekki hvað síst vegna þess að ég syng helst ekki nema vel ölvaður. Samt gott lag.
Málunum reddað Þá ætti vonandi að vera komin varanleg lausn á netleysin. Sem er gott. Annað sem hægt er að segja frá? Jú ég var á gestalist á Gaukinn á föstudaginn, á Ensími og Hoffman og eitthvað. En Þórir var svo sniðugur að segja mér það ekki fyrr enn á laugardaginn. Fór þá bara á Jet Black Joe á laugardaginn í staðinn, reyndar ekki á gestalista. Svo er líka kannski rétt að minnast á það að meðlegjandinn minn, hann Kjötbeinn Matsveinn, miskildi eitthvað tilganginn með konudeginum. Hann hélt að hann ætti að vera kona, og keypti gardínur. Svo sá ég þetta líka í Fréttunum á Stöð 2 áðan, og bara varð að deila þessu með ykkur. Ef þið hlæið ekki að þessi þá eru þið húmorslaus með öllu. Mæli sérstaklega með að færa bendilinn yfir linkinn sem heitir snerting efst til hægri á síðunni, og lesa það sem stendur í svona "hvað-sem-það-heitir" kassanum sem birtist þá.
föstudagur, febrúar 18
Ástand í Mosarimanum Ég er búinn að eiga í slæmu tilfelli af netleysi þessa vikuna. Mosarima-dúóið (þ.e. ég og Kolli) sagði upp nettengingunni hjá OgVodafone fyrir síðustu helgi, sem var ein af höfuð ástæðunum fyrir því að ég skellti mér til Eyja þá. En við gengum svo frá samkomulagi við Háskólann um að veita okkur netaðgang. Þegar það var komið í gagnið þá gátum við komist allra okkar ferða á netinu, nema um síður vistaðar á Íslandi, aðrar en síður á vegum Háskólans. En það entist þó ekki nema tvo daga, mánudag og þriðjudag. Því Ogvodafonevoru svo almennilegir að klippa á ADSL línuna inn til okkar, þ.s. við höfðu sagt upp samningnum við þá. Því þurftum við að ganga frá því að fá nýja línu inn í húsið. Þá snérumvið okkur að Símanum, þar sem þeir eru öllu röskari að slíkum hlutum en Ogvodafone. Og á ég von á því að það verði búið að leysa úr þessu fyrir okkur fljótlega eftir helgi. Ég er uppi í Háskóla núna, að vafra um netið. Taka léttann blogg hring og lesa aðeins yfir Haltu Kjafti! og svona. Verst að maður kemst ekki á MSN núna. Þeir hjá Microsoft eru svo almennilegir að skipta reglulega um útgjáfu af MSN hjá sér. Svo maður neyðist til þess að bíða þess að einhver með admin aðgang hérna í tövuverunum í VR aumki sér yfir okkur óbreyttu netnotendurna og sæki nýju útgáfuna af MSN svo maður geti notað þetta. Nú hefur maður engan til þess að tala við. Kannski að maður ætti að hringja í einhvern. Nei ætli það ... þá verður sennilega bara reynt að draga mann á fyllerí ...
þriðjudagur, febrúar 15
Dagurinn í gær Valentínusardagurinn var í gær, eins og fór væntanlega ekki fram hjá nokkrum manni sem komst í tæri við einhvern fjölmiðil í gær. Hvenær ætli Íslendingar fari að halda upp á þakkargjörðardaginn? Ég fékk náttúrulega órafjölda nafnlausar sms-a frá leynilegum aðdáendum í tilefnidagsins. Reyndar ekki, en Hannes sendi mér nokkur klúrin skilaboð. Þá er komið að því að skipta út kettinum og fá nýjan kött vikunnar. En eins og ég hef nokkrum sinnum vælt yfir hérna þá neyðist ég til þess að hlusta á Bylgjuna í vinnunni á hverjum degi. Þeir virðast vera rosalega hrifnir af því að spila annars góð lög í fluttningi einhverra ógeðis tón-"listar"-manna. Þar á meðal er Cat Stevens lag vikunnar, Father and son, í fluttningi einhvers viðbjóðis boybands.
sunnudagur, febrúar 13
Táknmálsfréttir Ég hef mikið velt því fyrir mér, afhverju má ekki hafa eitthvað stef eða eitthvað undir þegar verið er að segja (veit ekki alveg hvort þetta sé rétt orðaval) táknmálsfréttir. Myndi heyrnalausum finnast það einhver móðgun við sig ? Þessir táknmáls-þulir (enn ekki viss með orðavalið) lesa líka altaf textann. Eða "mæma" það allavega með vörunum svo þeir sem kunna varalestur geti fylgst þannig með. Væri það eitthvað svo skelfilegt þá ef þeir myndu bara lesa upphátt textan sem þeir eru að flytja?
fimmtudagur, febrúar 10
Allt læst Ég tók ákvörðun um það í gærkvöldi að ég ætla að skella mér til Eyja um helgina. Sá fram á það að ég yrði að taka því róleg alla helgina, aðalega af peningaástæðum. Svo ég sá fyrir að liggja bara heima í leti allan tímann. En þá varð mér hugsað til þess að við félagarnir í Mosarimanum erum búnir að segja upp ADSL-inu. Þá vissi ég ekkert hvað ég ætti að gera af mér heima heila helgi. Svo ég ákvað bara að skella mér heim til Eyja og hanga bara í leti þar frekar. Langaði samt á tónleikana á Gauknum á laugardaginn. Viggó bauðst meir að segja til þess að setja mig á gestalista og alles. En það kostar víst allt peninga, þótt maður fari frítt inn. Peninga sem ég ekki á ... Svo til að bæta gráu ofan á svart í mínum auramálum, þá þurfti ég að eyða 3500 kr í að láta opna fyrir mig bílinn í morgun. Já! Mér tókst að læsa lyklana inni í bílnum. Með helvítis drusluna í gangi meir að segja. Þessar VW Golf druslur eru nefnilega þannig að samlæsingin er stillt við báðar framhurðarnar. En titturinn sem maður togar upp til að taka úr lás var frosinn fastur niðri bílstjóramegin. Hafði það af að opna farþegameginn, en tók eftir því að bílinn læsti sér aftur, vegna þess að titturinn bílstjórameginn var frosinn fastur niðri, og samlæsingi ákvað því að hafa allann bílinn læstann. Gat ekki með nokkru móti haggað tittinum. En jæja fjandi hafi það, hugsaði ég, ég klifra bara yfir í bílstjórasætið. Teygði mig yfir, tók bílinn úr grír og startaði honum. Kippti svo með mér sköfunni og hófst handa við að skafa bílinn. Þegar ég var u.þ.b að vera búinn að því. Þá fattaði ég að ég hafði lokað helvítis hurðinni á eftir mér. Og þar með læst bílnum. Hringdi á ´´i einhverja neyðarþjónustu. Þurfti að bíða eftir gaurnum til að opna þetta í svona 20 mínútur. Hann var ekki lengi að opna fyrir mig. Djöfull er auðvelt að brjótast inn í bíla. Þurfti samt að vekja Kolla ræfilinn til að geta komist inn úr kuldanum til að bíða. Var auðvitað með húslykilinn á sömu kippu og bíllykilinn. En Kolli fyrir gaf mér það svo sem.
þriðjudagur, febrúar 8
Í átaki Já, nú er maður sko kominn í aðhald. Búinn að skera niður sykurneysluna um heilann helvítis helling. Farinn að drekka Coke light í stað venjulegs Coke. Þetta aðhald mun standa þar til að Coke light verður dýrara en venjulegt Coke í Bónus. Hinsvegar var hann Boggi svo almennilegur að benda á þetta. Þegar maður ætlaði að fara að státa sig af að auka neyslu gervisykurs á kostnað venjulegs. Ég hafði svo sem lengi vitað að aspartame væri ekki sérstaklega hollt, en samt var ekki laust við að mér hálf brigði við að les það sem stendur í næst neðsta "paragraph-inu". Jæja þá er komið að því að koma með nýjann Kött vikunnar. Ég þykist vita það lesandi góður að þú sért búinn að bíða óþreyjufullur eftir því. Lagið sem varð fyrir valinu þessa vikuna, er lag sem Leó Snær benti mér á einhver tíman. Ábyggilega við öldrykkju, þó ég muni það ekki alveg. Og kannski þess vegna sem ég man það ekki. Ég hafði ekki veitt þessu lagi neina sérstaka athygli fram að því að Leó benti mér á það, en það hefur síðan orðið eitt af uppáhalds Cat Stevens lögunum mínum.
sunnudagur, febrúar 6
Hættur Ég er hættur að drekka. Allavega þangað til að maður hefur efni á því. Er kominn með leið á þessum móral sem sækir alltaf á mann eftir hverja helgi. Verst að það er svo gaman að vera fullur.
föstudagur, febrúar 4
Suða og X-fm Gafst í fyrsta skipti í morgun tækifæri til þess að hlusta eitthvað aðeins á morgunþáttinn á X-fm. Náði rúmum hálftíma af þættinum. En það koma svo sem ekki til af góði. Svo eru nefnilega mál með vexti að yfirmaðurinn minn í vinnunni, mætir alltaf einhverjum 20 - 30 mínútum yfir átta í vinnuna. En það er hinsvegar kall sem sér um mest alla suðuna sem er alltaf mættur eitthvað sæmilega fyrir átta, sem er með lykla svo maður kemst alltaf inn. En í morgun vildi ekki betur til en svo að hann var veikur. Svo ég þurfti að dúsa úti í bíl í einhvern hálftíma og bíða eftir yfirmanninum. En mér leiddist samt alls ekki á meðan, því þeir félagarnir á X-fm, Andri og Búi, sögðu mér nokkrar skemmtilegar sögur á meðan ég beið. Virtist vera alveg þræl skemmtilegur þáttur. Væri vel til í að skipta á Bylgjunni og X-fm þarna í vinnunni. En hlustun á Bylgjun virðist vera heilagt fyrirbæri fyrir iðnaðarmenn. Svo ég hugsa að hugmyndir um það myndu falla í frekar grýttan jarðveg. En það var meira skemmtilegt sem kom af því að kallinn skyldi vera veikur. Því þar sem aðal suðumanninn vantaði, þá var hóað í suðumann númer 2 og hann fenginn í verkið (það er ég sko). Og er ég búinn að vera að sjóða saman handrið í allandag. Sem mér þótti hin mesta skemmtun. Svo skildist mér líka að það ætti að senda mig eitthvert út í Garðarbæ á mánudaginn að sjóða festingar fyrir þakskyggni. Það gæti verið ágætt líka.
fimmtudagur, febrúar 3
Hittari 2004
What'>http://www.blogthings.com/2004hitquiz.html">What 2004 Hit Song Are You?
Já þarf maður ekki að linka á svona drasl einhvertíman líka. Virðist alavega vera þannig að annar hver bloggari sem maður les rausið hjá linki reglulega á eitthver svon quiz-dæmi. Er reyndar alvegljómandi sáttur við að vera kenndur við þetta lag. Drullufínt lag. Tók einmitt eftir því að það er verið að nota stefið úr þessu í einhverri nýlegri íslenskri auglýsingu. Spron eða eitthvað, man það ekki alveg. Var einmitt mikið búinn að vera að spá í því hvort þeir borguðu fyrir þetta. Eða hvort þeir breyttu þessu eitthvað nóg til þess að komast hjá því.
miðvikudagur, febrúar 2
Í Reykjavíkurborg Ég er farinn að fá það á tilfinninguna að það sé með að rata í Reykjavík, eins og sagt er með almenna vitneskju. Að eftir því sem maður fer að rata meira hérna í höfuðborginni og kynnast fleiri hverfum. Þá fer maður að átta sig á því hvað maður ratar í raun lítið. Fór í vinnunni í dag eitthvert sem ég hef aldrei farið áður. Vorum að setja upp hringstiga í íbúðarhúsi einhverstaða nærri Elliðará (að mér skildist). Keyrðum einmitt veg sem heiti Vantsendahvarf á leiðinni þangað. Ætla ég að vona að ég eigi aldrei eftir að búa þar. Gæti ábyggilega aldrei komið þessu nafni út úr mér óbrengluðu í leigubíl á leið heim eftir kenndirí. Annars líkar mér bara þræl vel í vinnunni. Eiginlega of vel. Allavega mun betur en í skólanum. Ekki laust við að maður vilji bara hætta þessu skólabrölti og vinna bara allandagin í staðinn. En það er nú sennilega frekar skammsýn hugsun.
þriðjudagur, febrúar 1
Kötturinn Þá hafa átt sér stað breytingar á síðunni. Búinn að henda út Myndinni (sem var nú bara sett þarna því mér datt ekkert skárra í hug), og kominn með í staðin lið sem ég kýs að kalla Köttur vikunnar. Nei, ég ætla ekki að fara að birta myndir af köttum. Heldur ætla ég að linka á lög með lagasmiðnum Cat Stevens (aka Yusuf Islam) . Ég gaf sjálfum mér nefnilega best of plötuna með honum í jólgjöf, því ég var farinn að sakna svo plötunnar sem ég gleymdi einhverju sinni í partýi hjá Hafþóri hinum smáa. Og sem hann hefur síðan tekið ástfóstri á. Fyrsta lagið sem ég linka á var mér mjög hugleikið, ekki síst þegar líða fór að jólaprófunum. En svo tók maður sig bara sjálfur á og hafði það af að koma sér í gegnum þetta. En, mér verður aftur hugsað til þessa lags núna þegar áhuginn á, og metnaðurinn við, námið þessa önnina virðist engan vegin ætla að standast það sem maður lofaði sjálfum sér í upphafi annar (ef þú skilur ekki spáðu þá aðeins í textanum á þessu). Ef stelpan sem ég beit á Ellefunni á föstudagskvöldið er að lesa þetta. Þá, fyrirgefðu. Og þarna ... hver ertu? |
Ég er fæddur í Eyjum 1981
Lesist á eigin ábyrgð Blogg-óði maðurinn
Þetta skoða ég Fréttir
Gamalt og mis gott mars 2004 Þakkir fá blogskins | ||