*
*
*
*
fimmtudagur, mars 31


Vikulegi Kötturinn dauður
Ég er hættur að nenna þessu Cat Stevens veseni mínu. Og ætla því að hætta þessu. En ég ætla að gefa þeim sem á því hafa áhuga, tækifæri á að nálgast lögin sem hafa fengið að vera Köttur vikunnar hjá mér eitthvað áfram. Svo myndin og það þarna fær að hanga inni eitthvað áfram. En til að bæta upp fyrir missi Kattarins, þá ætla ég að skella inn svona könnun. Maður má náttúrulega ekki vera minni maður en hinn meðal bloggari, og verður því að hafa svona könnun. Ætla að reyna að uppfæra þetta vikulega, eða hálfsmánaðarega, eða bara þegar ég nenni, eða jafn vel aldrei. Veit samt varla hvað ég á að spyrja um í þessu. Ætla því að leyfa ykkur að taka þátt í þeirri ákvarðanatöku.






þriðjudagur, mars 29


Fyndið
Mér finnst þetta fyndið. Hvað finnst þér?






mánudagur, mars 28


Votir páskar
Þessir páskar voru votir. Það er svo sem ekkert nýtt. En þeir voru mun votari en ég ætlaði mér. Það er heldur ekkert nýtt. Ætlaði mér bara að drekka á föstudaginn, í afmælinu hjá Bogga og Láru. En það endaði með því að maður drakk þrjú kvöld á þessum fimm frídögum. Hef nú einhvertíman verið öflugri í þessu, en ætli það sé ekki merki um að maður sé að eldast að, taka ekki betur á því. Eða kannski bara að maður hafi bara ekki haft samvisku í meiri drykkju en sem þessu nam. Ætlaði nú að nýta fríið eitthvað til þess að reyna að læra. Hafði meir að segja með mér skólatöskuna. En hún lá bara óhreyfð á gólfinu allan tímann. Það er svo sem ekkert nýtt.






þriðjudagur, mars 22


Byssur
Það var framin enn ein skotárásin á bandarískum skóla í dag. Er reyndar ekki búinn að ná heilum fréttatíma í dag. En það á samt ábyggilega ekki eftir að líða á löngu áður enn að farið verður að kenna ofbeldisfullum myndum og tölvuleikjum um þetta. Ef það er ekki þegar byrjað. En það er nú örugglega hægt að nálgast þessar sömu myndir og þessa sömu leiki í öllum hinum vestræna heimi. Og ef þessar myndir og þessir leikir eru orsök þessara skotárása, afhverju eru þá ekki samskonar árásir framdar úti um allan hinn vestræna heim.
Orsök þessara skotárása tel ég nefnilega mikið frekar vera að finna í því hvernig Kaninn umgengst skotvopn. Í Bandaríkjunum líta menn nefnilega á byssur sem sjálfsvarnartæki og finnst það því í hlutarins eðli að beina þeim að öðrum mönnum. Ólíkt nánast öllum öðrum vestrænum þjóðum, og sennilega flest öllum þjóðum. Sem álíta byssur tæki til veiða, hættulegt tæki sem umgangast eigi af varúð. Og myndu því fæstir beina þeim að öðrum mönnum.






sunnudagur, mars 20


Myndir
Það er búið að setja inn nokkrar myndir á síðuna sem sett var upp fyrir árgansmótið sem á að vera hjá árgangi '81 í sumar. Það er mjög gaman að blaða í gegnum þessar myndir. Mikið af skemmtilegum myndum, eins og þessari hér til hliðar. Sem var, ef mig misminnir ekki, tekin í nemendaaðstöðunni í Barnaskólanum á Nótt í Bannó þegar ég var í 8. bekk. Svo rakst ég líka á þessa mynd af mér með sítt hár. Ekki til mikið af myndum af mér þegar ég var síðhærður. Sem er ekkert nema gott.







Afmæli
Ég ætlaði mér að hafa þessa helgi þriðju edrú helgina mína í röð. En það var náttúrulega eyðilagt fyrir manni. Þórir hóaði nefnilga í "surprise-afmælisveislu" fyrir Viggó í gær. Svaka teiti alveg. Phil útbjó köku sem var í laginu eins og gítar. Og við földum okkur allir inn í herbergi þegar hann kom heim eftir að Sandra hafði verið að hafa ofan af fyrir honum úti í bæ í einhvern tíma. Það var ekkert lítið sem Víkingi brá þegar við stukkum fram með einhverja flautu-fjanda og flautuðum sem mest við máttum framan í drenginn. Þetta endaði náttúrulega allt í allsherjar kennderíi. Endaði með að þvælast niður í bæ með nýja gítarleikaranum í Hoffman og vini hans. Gafst þó upp á því þegar þeir stóðu utan við Dillon að reyna að komast inn eftir lokun. Þá ákvað ég nú að rölta mér bara niður í bæ, ég hlyti að finna einhvern sem ég þekkti. Það gekk náttúrulega ekki eftir, svo ég endaði bara á Nonnabita (fyrsta skiptið sem ég nenni því á fylleríi) og kom mér svo heim. Var ágætt að eiga hálfan Nonnabát í morgun mat í þynnkunni, sem var þó furðu lítil. Gott í þessum landa greinilega.






föstudagur, mars 18


Alþingi
Drakk minn fyrsta áfenga dropa í 20 daga í gær. Skapti Örn stóð fyrir ferð í nafni Samtaka ungra Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi (SUSS) í Alþingi. Gaui Hjöll, Kjartan Ólafsson og Birgir Ármansson tóku okkur á túr um Alþingishúsið. Að því loknu var haldið yfir Austurvöll og sesst inn á skrifstofu þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Þar beið okkar ógrinni af bjór og Sigurður Kári. Þórir lenti í hávaðarifrildum við Sigurð um Reykjavíkurflugvöll. Það var ekki laust við að ég finndi til með Sigurði Kára, enda hef ég oft lent í því að þrasa við Þóri. Eftir að bjór nr. 2 hafði runnið inn fyrir varir mínar var ekki aftur snúið. Enda engin ástæða til, þ.s. eftir að bjórinn á skrifstofunni var búinn. Fengum við heimboð frá Árna Johnsen. Þar beið okkar enn meiri bjór og tjútt fram á nótt. Ég var ekki að skríða heim fyrr en rúmlega þrjú. Sem var ekki sniðugt, því ég átti vinnu í morgun. En ... Þetta var bara svo fjandi gaman að það var ekki hægt að sleppa þessu. Það er upplifun útaf fyrir sig að koma heim til Árna, það er með ólíkindum hvað kallinn er búinn að sánka að sér í gegnum tíðina. Er meðal annars með höfuð af vísundi uppi á vegg hjá sér auk rostungshöfuðs og ísbjarnafelds á svefnherbergisgólfinu. Partýið var enn í fúll sving þegar ég kvaddi. Veit svo sem ekki hvað það stóðlengi, en það var ekkert fararsnið á djammþyrstustu gestunum.






miðvikudagur, mars 16


'81
Já þá er komið að því, maður er víst orðinn það gamall að maður er á leiðinni á ágansmót. Mótið verður haldið í júní, og ekki laust við að maður sé farinn að hlakka þó nokkuð til þess. Það var nú strax síðasta vetur sem maður var farinn að láti sig hlakka til þess. Man sérstaklega eftir því þegar við sátum einhverjir 6 peyjar að mig minnir úr '81 heima hjá Þóri síðasta vetur, og við vorum að tala um þetta. Þetta á án nokkurs vafa eftir að vera laglega fín skemmtun. Það er náttúrulega búið að setja upp heimasíðu í tilefni af þessu. En hana er einmitt hægt að skoða hér. Auk þess sem ég er búinn að bæta henni í linka listann minn hérna til hliðar.







Peace Train
Köttur þessarar viku, er lag sem fékk þó nokkra spilun ekki alls fyrir löngu. Þegar Cat Stevens, aka Yusuf Islam, var neitað um að fá að ferðast til Bandaríkjanna vegna hryðjuverkaógnar. Bara vegna nafnsins. Þá þótti mönnum rétt að spila lagið hans, Peace Train. Maður hafði reyndar áður heyrt sögur af allt niður í 6 mánaða gömulum börnum sem hefði verið synjað um leyfi til þess að ferðast til Bandaríkjanna vegna nafns síns.






mánudagur, mars 14


Malt og appelsín
Hvað er þetta með þessa páska-malt og appelsín-auglýsingu frá Egils. Ég meina, þetta var voða sætt og sniðugt þegar littla stelpan var að syngja einhver jólalög og baka piparkökur, eða hvað sem hún var að vesenast, fyrir jólin. En andskotinn hafi það, það er ekki til neitt páskalag.
Þetta er bara asnalegt.






laugardagur, mars 12


Fréttir
Fór í Herjólf í gærkvöldi. Ákvað að skella mér til Eyja um helgina í smá afslöppun. Það var enginn um borð sem ég þekkti. Hafði því engan til að spjalla við. En eftir nokkra leit, þá fann ég Fréttablað. Það entist mér ca. hálfa ferðina, aður en ég var búinn að lesa svo gott sem hvern einasta staf í blaðinu. En það stakk mig svolítið við lestur blaðsins í gær, að stuldur á smurstimpli af Esso stöð, fékk nærri því tvöfaltmeiri umfjöllun en sjálfsmorðsárás sem var framin við útför í Írak, þar sem fórust 23 menn að mig minnir. Auk þess sem umfölluninni um stimpilránið fylgdi nokkuð stór mynd. Éghefði nú haldið að hryðjuverkaárás á útför þætti fréttnæmari en þetta.
Hvaða kvarða ætli þessi blöð noti til að meta vægi frétta ??






fimmtudagur, mars 10


Merkur áfangi
Það er rétt ár liðið frá því að Borgþór ýtti mér af stað út í þessa blogg-vitleysu. Mikið barmaði ég mér yfir því að ég myndi án efa aldrei koma til með að nenna þessari vitleysu. En ég er greinilega gefnari fyrir vitleysu en ég taldi mig vera, eða einfaldlega vitlausari. Allavega er ég búinn að endast í þessu í heilt ár. Af því tilefni skellti ég mér á uppistandið með Eddie Izzard í gærkvöldi. Eða kannski ekki beint af því tilefni. Meira svona bara vegna þess að ég vildi fá tækifæri til þess að sjá hann "læv". Það var vægt til orða tekið snilld. Tær snilld.
Varð samt til þess að ég missti af Americas next top model. En ég get horft á það endursýnt í kvöld. Sem ég mun ábyggilega gera.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeir sem vilja færa mér gjafir af þessu tilefni er bent á afmælið mitt eftir tæpan mánuð.






þriðjudagur, mars 8


Kötturinn og Siggi
Já já, enn einn kötturinn. Ætlar þessu aldrei að linna hugsið þið eflaust. Jú jú, ábyggilega, veit ekki hversu lengi ég nenni þessu. Svo eru nú ekki til nema takmarkaður fjöldi laga með þessum snilling. Ekki öll þess verð að vera birt hér heldur svo sem.
En já, snúum okkur að máli málanna. Köttur þessarar viku. Þar sem Sigurður var eitthvað að væla á kommentkefinu við síðasta pósti mínu, um að honum væi ekki sýnd sú athygli sem honum þótti hann eiga skilið. Hef ég hugsað mér að tileinka honum þetta póst. Athugasemd hans á komment kerfinu við enn eldra pósti hjá mér var einmitt uppsprettan að vali mínu á ketti vikunar að þessu sinni. Hann var að tala um einhverja kellingu sem tæki eitthvert laga Cat Stevens á afspyrnu hörmulegan hátt. Er ég nokkuð vissum að þar hafi hann átt við það þegar Sheryl Crowe "coverar" The first cut is the deepest. Það "cover" er einmitt argasti viðbjóður. Alls ólíkt upprunalegu útgáfunni. Sem er einmitt köttur vikunar að þessu sinni.
En hér fyrir neðan er hann að væla yfir því að fá ekki að sjá fleiri myndir ú skólaferðalagi FÍV 2001. Svo ég henti inn einnri mynd til viðbótar (þessari hér að ofan).
Smellið ef þið viljið fá að sjá stærri útgáfu sömu myndar.






laugardagur, mars 5


Life in a sock
Enn eru það myndir. Einar sendi mér ekki bara myndina hér fyrir neðan. Hann sendi mér líka pakka með um 200 myndum úr skólaferðalagi FÍV 2001. Þar er um auðugan garð að gresja í skemmtilegum myndum. En myndin sem þið sjáið hér til hliðar er nú samt eiginlega toppurinn af þeim. Bara hreinlega varð að deila þessu með ykkur. Hló dátt þegar ég sá þessa mynd fyrst, þegar ég var að renna í gegnum myndirnar sem Einar sendi mér.
Ef þið viljið fá að sjá stækkaða útgáfu af þessari mynd. Þá er um að gera að smella á hana. Og það er aldrei að vita nema ég hendi hér inn fleiri myndum úr þessu fína ferðalagi seinna.






fimmtudagur, mars 3


Brosað breitt
Mér áskotnaðist þessi mynd sem þú sérð hér til hliðar í gærkvöldi. Einar Hlöðver var svo almennilegur að senda mér hana yfir MSN. Takk Einar. Þessi mynd er merkileg fyrir margra hluta sakir. Ekki bara það að útvarpskempan þáverandi og núverandi sjónvarpskempa, Pétur Jóhann, hafi þarna gripið tækifærið og stillt sér upp á mynd með mér. Heldur er þetta ein af fáum myndum sem hafa náðst af mér brosandi. Ég virðist hafa tekið út brosa-asnalega tímabil í myndatökum, áður en ég komst á þetta horfa-út-í-loftið tímabil sem ég er búinn að vera á núna um þó nokkurt skeið. Svo er ég líka þarna að starfa við eina 16 ára ballið sem ég vann á, á mínum annars frækna ferli sem dyravörður.
Smellið á myndina til að fá að sjá hana í fullri stærð, ef þið þess óskið.






miðvikudagur, mars 2


Nýr Köttur
Eins og einhver hefur kannski tekið eftir, þá hef ég hingað til haft það að venju að skipta út Ketti vikunnar á þriðjudögum. En í gær þegar ég hugðist sinna einmitt þeim erindum. Þá neitaði netið mér um inngöngu, sama hvað ég reyndi. Því verðið þið bara að afsaka það þótt það hafi senkað um sólahring eða svo. En nú er ég aftur kominn á öldur netsins á ný.
Köttur vikunnar að þessu sinni er lag sem ég uppgötvaði bara núna nýlega. Ég eignaðis fyrst disk með Cat Stevens fyrir rúmum fjórum árum, þegar ég var á ferð um Glasgow ásamt bróður mínum. Hafði þá heyrt nokkur lög með þessu snilling sem mér leist vel á, og vildi kynna mér hann betur svo mér fannst tilvalið að skella mér á best of disk með honum. Gleymdi svo þeim diski einhvertíman eftir partý heima hjá Hafþóri smáa, þar týndist hann um tíma. Uns Haffi fann hann, fór aðeins að hlusta á hann, og ´tók vitaskuld ástfóstri við honum. Og sá ég ekki fram á að fá þennan disk nokkurtíman aftur í hendurnar. Svo ég ákvað að gefa mér samskonar disk með Cat Stevens í jólagjöf, sem var nákvæmlega eins og sá sem ég hafði keypt í Glasgow á sínum tíma. En þegar ég fór að hlusta á þann disk. Þá fór ég að spá meir og meir í þessu umrædda lagi. Það hafði greinilega eitthvað farið fram hjá mér í fyrra skiptið, en nú eftir að ég tók eftir því, er það komið ofarlega á listan yfir uppáhalds Kettina mína.
Og já lagið heitir Into White.






Ég

er fæddur í Eyjum 1981

hef búið í Eyjum nær alla ævi

bý núna í Reykjavík

vinn sem möppudýr í smiðju í Garðabæ

er flokksbundinn Sjálfstæðismaður

veit ekki hvað ég get sagt fleira um sjálfan mig

býð þig hjartanlega velkominn á síðuna

e-Póstur

msn




Lesist á eigin ábyrgð

Blogg-óði maðurinn
Blogg-óða konan
Blogg-óði faðirinn
Þessi flúði land
Passið ykkur á þessum
Síra
Sýra
njé-2
Þessi kom á Þjóðhátíð
Oft gaman að þessum
Þessi er rokk-fróður
Þessi hefur áhuga á listum
Þessi kann að segja sögur
Þessi fær aldrei notið steríós
Þessi stuðlar að fjölgun mannkyns
Þessi ætlar að laga í mér lifrina
Þessi fór til Spáns
Þessi á dýptarmæli
Þessi fílar Bubba óhóflega mikið
Þessi styður Newcastle United
Þessi er mikið fyrir murtuna
Þessi stúderar í Danaveldi
Þessi er í Breskum leikskóla
Þessi kann á rússneskar bongótrommur
Þessi fann Jesúm
Þessi biður að heilsa
Þessi stjórnar bæ
Þessi kann að jóðla
Þessi valdi Hellisey
Foster's Blog
Foster's Net
VKB's Blog

Þetta skoða ég

Fréttir
Mogginn
Vísir
eyjar.net
Háskólinn
VKB
Dalurinn
Ægisdyr
Eyjabloggarar
B2.is
Google
Heimabankinn
Dagskráin
Árgangur '81
Leikjanet
Uncyclopedia
Encyclopedia
KÉSHÁM (NBA)
Öll tónlist
Eyverjar
IMDb
TV.com
YouTube
Reykjavík FM

Gamalt og mis gott

mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008
september 2008
október 2008
nóvember 2008
desember 2008
janúar 2009

Þakkir fá

blogskins
Main Site
Powered by TagBoard Message Board

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

eXTReMe Tracker