![]() |
|
|
fimmtudagur, júní 30
Könnun Kominn tími á að skipta út könnuninni. Finnst þér ekki? Sú síðasta var búin að vera í gangi hjá mér í jaaa, veit ekki. Alltof langan tíma. Helsta ástæð þess hve lengi hún var í gangi hjá mér er sennilega að mér datt ekkert í hug til þess að setja í staðin. Lox ákvað ég svo bara að setja inn pælingu sem ég heyrði Jay Leno velta upp eitthvert kvöldið. Endilega kíkið hér til hliðar og takið þátt í þessari gífurlega skemmtilegu könnun. En úrslit þeirra síðustu voru á þann veg að á síðuna mína komu tveir Addar, enginn Palli, ein Bergþór, sjö Jósafatillíusar og 24 sem hétu einhverju öðru nafni. Kannski að maður hefði átt að gefa upp fleiri möguleika ...
sunnudagur, júní 26
Live 8 Ég hafði vonast til, og eiginlega gegnið að því vísu, að RÚV myndi sýna frá þessum tónleikum. Þykir það nú bara rétt sjálfsagt að þeir geri það. Í það minnsta þá hef ég mun meiri áhuga á að sjá þessa tónleika heldur enn brúðkaup innan dönsku konungsfjölskyldunnar eða eitthvað álíka. Hugsa að það séu þó nokkrir á sama máli og ég um það. Því voru það mér gífurleg vonbrigði þegar ég frétti það um helgina að nýja unglingastöðin sem 365 eru að setja á laggirnar í Reykjavík hefði keypt réttinn að þessu. Átti alls ekki von á því, þar sem ég vissi ekki betur en að þetta ætti að vera eitthvað none-profit dæmi, ekki einu sinni seldir miðar á þetta, var bara eitthvað sms happadrætti um þá. Varð meir að segja uppi fótur og fit þegar fréttist af því að miðarnir væru farnir að ganga kaupum og sölum á netinu í gegnum e-bay, og aðstandendur tónleikana fengu e-bay menn til að taka fyrir þau viðskipti. Því þykir mér það skrítið að þessir tónleikar, sem ekki eiga að skila hagnaði, heldur að snúast um hugarfarsbreytingu hjá almenningi. Skulu vera seldir sjónvarpstöð á Íslandi með jafnlitla útbreiðslu og þessi Sirkus-stöð hefur.
fimmtudagur, júní 23
Hér og nú Hvað er svo sem hægt að segja um svona rusl-blaðamennsku. Margt, vont! Verst þykir mér þó að þessi blöð eru úr þannig pappír að það er ekki hægt að skeina sér með þessu.
sunnudagur, júní 19
81 Þá er langri og mjög svo skemmtilegri helgi lokið. Þykir eiginlega verst að hugsa til þess að maður skuli þurfa að bíða í heil 5 ár eftir næsta árgangsmóti. Sjaldan skemmt mér jafn vel, enda finn ég líka vel fyrir því í dag. Þynka er ekki nógu sterkt orð til þess að lýsa því hvernig mér líður. Þakka bara fyrir það að hafa ekki tekið þriggja daga mareningu eins og stóð fyrst til hjá manni. En vegna anna í vinnunni, þá komst maður ekki á kennderí á fimmtudaginn. Varð að vinna á 17. júní. Vann til miðnættis á fimmtudaginn, og svo frá 7:30 til 12:30 á föstudaginn, 17. júní. Svo beint á fyllerí sem lauk ekki fyrr en einhver tíman í nótt. Varð líka svo sem vel var við svefnskortinn. Var alveg hreint ofurölvi á föstudaginn. En hafði svo vit á að koma mér heim snemma í nótt. Held allavega að það hafi verið snemma, það var í það minnsta áður en að Lundanum lokaði. Langaði ekki til þess að enda svona aftur. Vil svo bara enda á því að þakka Stórvini mínu, Sindra Frey, fyrir að hafa sýnt þessar myndir af mér á árgangsmótinu og Hjödísi Haffafrænku fyrir að setja þetta á netið.
miðvikudagur, júní 15
Sávægir sem vitið hefur meira Sökum ýtrekaðara áskorana og mikils þrýstings, þá sé ég mér ekki fært að komast hjá því að koma hér með smá tilkynningu. Guðmundur Kristján Eyjólfsson, betur þekktur sem Gvendur Ameríku míla, hefur á ný hætt sér út í heim hinna bloggandi og er hægt að lesa nokkra nýja pósta frá honum á síðunni hans.
þriðjudagur, júní 14
Blíða Í tilefni af veðurblíðunni sem við fengum að njóta í gær ákvað Hannes að taka mig með sér í smá rúnt á tuðrunni hjá björgunarsveitinni. Hann bauð reyndar Tryggva ræflinum með líka, en hann komst ekki þar sem hann þurfti á fund hjá Þjóðhátíðarnefnd, ræfillinn. Hann missti nú heldur betur af miklu. Veðrið svoleiðis lék við okkur og var maður hreinlega að farast úr hita á löngum köflum. Við gripum tækifærið á kíktu aðeins á fegurstu eyjuna í Vestmannaeyjaklassanum, og þótt mun víðar væri leitað. Renndum inn á poll við Brandinn, en vorum síðan svo gagnteknir af fegurðinni að við hreinlega stóðumst ekki mátið að kíkja aðeins upp í eynna, svo var okkur báðum líka orðið frekar mál að míga. Ég smellti nokkrum myndum af með símanum bæði niðri á polli og þar sem við stóðum á steðjanum. Svo náði ég þessari mynd sem er hérna til hliðar þegar við vorum að sigla í burtu. Þetta er nýja skjámyndin í símanum mínum. Ef þið viljið skoða meira af myndunum sem ég tók smellið þá hér.
sunnudagur, júní 12
Enn af Tóta Ég henti hérna inn smá sögu af vinnufélaga mínum, Þórarni Magnússyni, um daginn. Það vakti mikla lukku hjá lesanda síðunnar. Svo ég ætla að endurtaka leikinn, og skella inn annari skemmtilegri pælingu frá honum. Ísfélag Vestmannaeyja festi kaup á skipi fyrir nokkru sem þá hét Júpiter. Skipi smíðað 1957, sem átti bara að nýta sem birgðarskip eina vertíð, og selja svo í brotajárn til Danmerkur. Svo ákváðu þeir að fara að gera þetta skip út. Þá þurfti náttúrulega að merkja skipið Ísfélaginu, og því var ákveðið að setja skyldi upp skeifurnar, merki Ísfélagsins á skorsteinshús þess. Þetta var vitanlega mikið ábyrgðar hlutverk, því var ákveðið að ég skyldi sjá um það. Eftir að ég var búinn að útbúa festingar á merkið og gera það tilbúið, þá vantaði mig aðstoð við að sjóða það upp. Var mér þá úthlutað Tóta til þess. Hann veðraðist allur upp við það, og sagði meðal annars að þetta yrði eitthvað sem ég gæti í framtíðinni bent börnum mínum og barnabörnum á að ég hefði gert. En ég á nú ekki von á því að verða kominn með mörg barnabörn áður en að þessu skipi verður lagt. Minni á að þetta skip var byggt 1957 ... Svo hérna að lokum, sumir eiga meira bágt en aðrir. En fyndið samt.
laugardagur, júní 11
Frábærlegt Horfði á úrslitakeppnina í NBA í gærkvöldi. Aðeins svona að fá smá nostalgíu frá því maður var smá peyi, og körfuboltinn var manns helsta áhugamál. Ekki það að ég hafi nokkurn tíman getað eitthvað í körfubolta frekar en öðrum íþróttum. Það var ágætis stemmning, en maður fann svo sem fyrir því að áhuginn á þessu væri heldur farinn að dvína. Svo er þetta heldur ekki svipur hjá sjón þegar vantar þá Einar Bolla og Valtý Björn í stól lýsendanna. Var reyndar svo sem ágætlega gaman að þeim sem voru að lýsa í gær. En þeir komust þó aldrei á það bullstig sem Einar var oftast kominn á þegar var farið að líða svona á úrslitakeppnina. En þó bulluðu þeir mjög mikið, og notuðu til dæmis eitt "orðskrípi" sem ég gat látið fara alveg einstaklega í taugarnar á mér í hvert skipti sem þeir létu það út úr sér. En það er frábærlegt. Frábærlegt er ekki orð! Annað hvort er eitthvað frábært eða ekki, það er aldrei frábærlegt. Þetta fer alveg roslaega í taugarnar á mér. Þetta "orðskrípi" er bara ný farið að heyrast, en maður heyrir þetta orðið hjá meir en helmingi íþróttafréttamanna. Þeir, verandi sá rolluskari sem þeir eru, fóru náttúrulega að jarma þetta upp eftir hverjum öðrum um leið og einhver missti þetta út úr sér. Hvað varð eiginlega um orð eins og glæsilegt?
þriðjudagur, júní 7
Að koma eða fara Ekki frá því að ég finni enn eitthvað fyrir þynkunni eftir helgina. Eruþetta ekki ellimörk? Svo er ég líka á leiðinni á árgangsmót eftir rúma viku. Úfff maður er að verða gamall. Var allavega ekki til stórræðanna á sunnudaginn. Hugsa samt að þetta sé aðalega þreyta. Var náttúrulega mikið hjá manni að gera fyrir helgi að undirbúa aðalfundinn og svo var vinna hjá mér frameftir kvöldi á föstudaginn og fram að fundi á laugardeginum.Allt á fulli í vinnunni. Er reyndar farið að róast yfir þessu núna eftir Sjómannadag og útlit fyrir hangs og leiðindi á næstunni. Því tók maður því með fegins hendi í dag þegar maður fékk að fylgjast með þyrlu í sjúkraflugi athafna sig á Eyðinu. Lenti þar sennilega út af þokunni. Virtist samt sem betur fer ekki vera neitt há alvarlegt, þar sem þetta var allt rólegt og afslappað að sjá hjá þeim. Við starfsmenn Lyftunnar veltum þessu svolítið fyrir okkur í dag, og þegar menn skiluðu sér aftur eftir hádegishlé, þá fóru þeir að spyrja hvorn annanhvort þeir hefðu frétt eitthvað um hver þetta hefði verið. En enginn hafði heyrt neitt, þá fóru menn mikið að spá og spekulera. Í miðjum þeim umræðum, þá spurðu svo Tóti hvort menn héldu að þyrlan hefði verið að fara með sjúkling eða koma. Ég náðu mynd af þessu með símanum sem þið sjáið hér til hliðar. Smellið á myndina til ef þið viljið sjá hana stærri. Engin svaka gæði, en þó þolanleg miðað við aðstæður.
miðvikudagur, júní 1
Maður með mönnum Þá hef ég lox gerst svo frægur að skrif mín hafi verið birt í hina merka vikuriti okkar Eyjamanna Fréttum. En þeir birtu megnið af þarsíðasta pósti mínu undir lið sem þeir kalla Bloggandi Eyjamenn. Þetta er vitanlega mikill heiður, og mun verða mér hvatning í að reyna að rífa mig upp úr þessu blogg-leti sem hefur hrjáð mann frá því að skóla lauk. Veit nú samt ekki hvernig það á eftir að ganga. En hvað sem því líður, þá er 1. júní í dag. Afhverju er ég að velta mér upp úr því, kynnuð þið að spyrja. Jú, það þýðir að það er ekki nema réttur mánuður í að lundaveiðitímabilið hefjist. Það er ekki laust við að það hafi verið kominn smávægilegur úteyja fiðringur í mann í blíðunni sem er búinn að vera undanfarið. Þótt austan garrinn sem var í dag hafi nú eitthvað verið að reyna að draga úr því hjá manni. Er eiginlega búinn að lofa sjálfum mér því að stoppa út í eyju í að minnsta kosti viku þetta árið. Komst ekki nema einhverja fjóra daga í fyrra, og það var allt of stutt. Það er bara vonandi að það verði einhver veiði af viti þetta árið. |
Ég er fæddur í Eyjum 1981
Lesist á eigin ábyrgð Blogg-óði maðurinn
Þetta skoða ég Fréttir
Gamalt og mis gott mars 2004 Þakkir fá blogskins |