![]() |
|
|
þriðjudagur, júlí 26
Álfar og menn Það hefur mikið verið skraf undanfarna daga um veðrið, eins og vant er þegar líða fer að Þjóðhátíð. Menn mikið að spá í spám og allir virðast hafa skoðun á því hvernig að veðrið komi til með að vera yfir hátíðina. Í því sambandi sagði faðir minn mér frá skemmtilegra hjá trúsem á sér víst mikið langa sögu. Menn kall það álfa-Þjóðhátíð þegar Þjóðhátíðin er öll í júlí eins og hún er þetta árið. Því samkvæmt trúnni, þá halda álfarnir sína Þjóðhátíð síðustu helgina í júlí. Ólíkt okkur mönnunum sem höldum hana öllu jöfnu fyrstu helgina í ágúst. En þegar vill til, eins og nú, að frídagur verslunarmanna er 1. ágúst, og við mennirnir höldum okkar Þjóðhátíð á sama tíma og álfarnir. Þá eru þeir allt annað en sáttir við það, og er það víst ávísun á rigningu og leiðinda veður alla hátíðina. Var trú manna svo mikil á þessu hér áður fyrr, að Ási í Bæ fékk að mér skilst Þjóðhátíðinni seinkað einhver tíman á síðustu öld, þegar svona stóð á.Einnig hefur maður heyrt töluvert talað um aðra, öllu yngri hjátrú. En hún er sú að það sé alltaf gott veður á Týss Þjóðhátíðum, en þær voru alltaf á oddatöluárinu, svo að með réttu ætti að vera Týss Þjóðhátíð nú. Það stóðst allavega 2001, sælla minninga. En þá er það bara spurning hvorir séu í nánara sambandi við veðurguðina, Týrarar eða álfar.
sunnudagur, júlí 24
Viti menn Svartagegnið sem hefur reist hinn ægifagra vita sem lýst hefur mönnum leiðinna inn í dal til fjölda ára leitaði á náðir okkar VKB manna að hjálpa sér við að koma vitanum fyrir þetta árið. Erfitt virðist vera orðið fyrir þá að manna þessa reisn. Enda löngum verið að risvandamál hafi farið að segja til sín þegar menn eru komnir á þann aldur sem þeir svörtu flestir eru. Við skorðumst vitanlega ekki undan því frekar en flestum þeim ótal hjálparbeiðnum sem okkur annars berast, og rumpuðum þessu af í blíðskapar veðri í gær. En við vildum líka með einhverju mótisetja mark okkar á þennan glæsivita. Komum við því í gegn að fá að mála hann bleikan að hluta, enda hafa margir meðlima VKB verið afar hrifnir af þeim lit í gegnum tíðina. Hlýjar og mjúkar minningar sem fylgja þeim lit. Þessa mynd sem ég læt fylgja þessum pósti mínum auk annarar af félagsmálaráðherranum hr. Borgþóri Ágeirssyn við málingar störf er svo að finna á mBlogginu mínu. En þess má til gamans geta að ég lox nennti að setja link á það inn á síðuna mína, og er linkinn að finna hér til hliðar.
miðvikudagur, júlí 20
Myndir, afmæli og húsnæði Boggi er búinn að setja inn myndirnar sem hann tók úti í Brandi á myndasvæðið sitt. Nokkrar þræl fínar myndir þar. Þar á meðal þessi hér til hliðar. Smellið á hana (ég meina myndina Hannes) til þess að sjá hana (ég meina myndina Hannes) stærri. Eða bara farið á myndasvæðið hans Bogga og skoðið allar myndirnar.Fór upp á land í gær, kom aftur til Eyja í dag. Amma var að halda upp á áttræðis afmælið sitt. Hún fékk alveg hörku veður fyrir veisluna sú gamla. Hlýtur að hafa "dílað" við einhvern um það. Ef maður er ekki komin með einhver sambönd eftir 80 ár þá held ég að maður geti bara sleppt þessu. Mjög gaman, og gott að éta. Svo er það bara vinna á morgun og fara að velta sér upp úr því hvað það er stutt í Þjóðhátíð. Sumarið er að verða búið maður, þetta er alveg skelfilegt. Og hey já, ég er búinn að fá inni á Stúdentagörðunum næsta vetur. Svo maður kemst þá aftur í Vesturbæinn. Djöfull verður það gott, að vera laus úr Grafarvoginum.
föstudagur, júlí 15
(Átti aðbirtast hér fyrir fórum dögum, en sökum leiðinda hjá blogger.com og netleysis undanfarna daga dróst það) Kominn í land Jæja, þá er lundaveiðinni lokið í bili. Veit ekki hvað ég geri, en ég er undir miklum þrýstingi að fara aftur út eftir Þjóðhátíð. Þórir kom og var einn dag með okkur úti í Brandi, og hann heillaðist svo mikið af þessu að hann suðar stöðugt í mér að fara aftur og hafa hann þá með. Verður að viðurkennast að það er freistandi. Ekki hvað síst vegna þess að veiðin var voðalega slöpp þessa daga. Ef hún glæðist eitthvað þegar líður á tímabilið, þá er nú hætt við því að mann fari að klægja í fingurna að komast út aftur.Ef þið vissuð það ekki nú þegar, þá er slatti af myndum sem ég tók á símann úti í eyju komnar inn á mBloggið sem ég útbjó mér áður en ég fór út í Brand. Það getið þið skoðað hér, hendi inn link á þetta hér til hliðar fljótlega. Nenni því bara ekki núna.
miðvikudagur, júlí 6
Brandur here I come ![]() Jæja, þá er það lox komið á hreint. Er á leiðinni út í Brand annað kvöld. Ætla að vera eitthvað fram í næstu viku, veit ekki hvað lengi. Kemur í ljós. Aldrei að vita nema að maður taki bara 10 daga þarna úti eða svo. Var allavega alltof stutt úti í fyrra. Ætla að reyna að bæta það upp í ár. Er svo sem ekki orðinn fullkominn í puttanum enn þá. En hann er allur að koma til. Er svolítið aumur enn þá. Ef einhver af þeim lundum sem rata í háfinn hjá mér bíta mig í puttann. Þá veit ég ekki hvað ég geri. Ætli ég drepi þá ekki bara. Eins og alla hina. Nema þann fyrsta auðvitað, hef alltaf sleppt þeim fyrsta á hverju ári frá því að ég byrjaði að veiða lunda 11 ára gamall.Þar sem ég veit að þið, mínir dyggu lesendur, eigið eftir að sakna mín svo mikið. Þá hef ég komið mér upp mBloggi, þar sem ég ætla af og til að senda inn myndir af lífinu úti í Brandi. mBloggið mitt er hérna.
mánudagur, júlí 4
Hrakfarir og aðrar farir Já já, það var Goslokahátíð um helgina. Og maður skemmti sér að vanda konunglega. Fór í reisu á vegum Eyverja út í Ellirey. Það var mjög gaman. Utan þess kannski að mér tókst að slasa mig. Eða öllu heldur tókst Þóri að slasa mig. Klemmdi þumalfingurinn á mér í hurðafalsi. Með þessum afleiðingum. Var í veikinda fríi út af þessu í dag. Lítið sem maður getur gert í vinnu þegar að maður getur ekki beitt fyrir sér þumalfingri hægri handar. Puttinn lítur svo sem ekki svona illa út enn þá. Ég fór nefnilega niður í Lyfti í morgun, tilkynnti mig veikan og fékk lánaðan bor af minnstu gerð. Sem ég notaði svo til þess að bora gat á nöglina og hleypa mesta þrýstingum undan. Sé til í fyrramálið hvort ég hafi eitthvert erindi í vinnu. Vona samt að þetta fari nú að lagast svo maður komist nú í lunda. Það var ekki laust við að maður fengi laglegan fiðring þegar maður sá þessa örfáu lundaræfla sem sátu uppi úti í Ellirey.
föstudagur, júlí 1
Dagurinn í dag Fyrsti júlí. Hvað þýðir það? Jú, lundaveiðitímabilið hafið. Farinn að hugsa mér til hreifings að koma mér út í Eyju. Er jafn vel að spá í að skella mér eftir viku. Á reyndar eftir að ræða það við yfirmennina. Þeir vilja víst eitthvað fá að ráða því hvenær maður fer í frí. Svo er líka Goslokahátíð. Voða gaman. En ég edrú á föstudegi á Goslokahátíð. Hvað kemur til. Á meir að segja áfengi og allt. Kannski er þetta aldurinn, maður er orðinn svo agalega gamall að maður þolir varla orðið tveggja daga fyllerí. Svo á líka að byrja svo snemma á morgun, heljarinnar dagskrá á vegum Eyverja alveg frá hádegi, í tilefniaf 75 ára afmæli. Borgar sig að mæta ferskur í það ef maður ætlar ekki að vera fyrstur til þess að drepast eins og undanfarið. En sennilega er maður bara svo nískur að maður tímir ekki að kaupa áfengi fyrir tvö fyllerí. |
Ég er fæddur í Eyjum 1981
Lesist á eigin ábyrgð Blogg-óði maðurinn
Þetta skoða ég Fréttir
Gamalt og mis gott mars 2004 Þakkir fá blogskins |