![]() |
|
|
þriðjudagur, ágúst 30
Nostalgía Fékk tækifæri til þess að upplifa æsku mína á ný í dag. Var aðeins að þvælast með foreldrum minum hér um höfuðborgarsvæðið. Gerði einmitt mikuð af því að veltast um í aftursætinu á ferðalögum með þeim fyrir um 15 árum. Þá var yfirleitt fleygt einhverju í mig til að blaða í til að stytta mér stundir. Það var einmitt þannig núna, en í stað þess að vera að blaða í Andrésblöðum og litabókum, þá var ég að flétta í gegnum morgunblöð og tímarit. Lífið liggur í hring. Veit ekkert hvað ég meina, en fannst ég þurfa að koma með einhvern botn í þessa sögu.
mánudagur, ágúst 29
Halló Kominn í borgina. Kom reyndar í gær, en það er annað mál. Uppgötvaði það mér til skelfingar þegar ég gekk inn í nýju kitruna mína að það fylgdu henni engar gardínur. En ég var svo lánsamur að föðursystir mín bauð mér í sunnudagsteik til sín í gær, ásamt nokkrum örðum skyldmennum mínum héðna af höfuðborgarsvæðinu. En hún aumkaði sig yfir mér og fann einhverjar gardínu druslur fyrir mig svo ég gæt nú eitthvað byrgt sín inn til mín. Verra er þó að þær eru um 20 cm of stuttar, svo áhugasamir ættu að geta séð mig spóka mig um á boxerunum kölds og morgna. En það hefur svo sem ekki nokkur áhuga á því. Er svo búinn að vera á flandri með föður mínum í dag að reyna að redda einhverju innbúi, þ.á.m. garínum, í kitruna. Afskaplega er leiðinlegt að versla, sérstaklega að varfa um rúmfatalegareinn og íke. Hápunkturinn var eiginlega að fara í húsasmiðjuna, þá gat maður allavega skoðað verkfæri. En jæja, má ekki vera að þessu, skóli í fyrramálið. Nenni samt eiginlega ekki, svo ætli ég sleppi ekki bara að fara. En rétt að fara að rölta sér aftur heim í kitruna svo maður nái nú Dead like me allaveg.
laugardagur, ágúst 27
Fluttningar Jæja, þá er komið að því. Flyt í bæinn á morgun. Fer með dallinum í fyrramálið. Hlakka ágætlega til þess að komast til Reykjavíkur aftur. Ekki hvað síst til þess að flytja úr forledrahúsum. Reyndar losna ég ekki alveg við foreldra mína, mamma er að fara inn á Reykjarlund á mánudaginn og Snorrinn er að fara í slipp í Reykjavík 1. sept held ég, svo pabbi verður í borginn eitthvað fram yfir miðjan mánuð sennilega. Sem er reyndar svo sem ágætt, þá get ég látið hann gefa mér að éta og svona.Það er alltaf eins, á enn eftir að gera allt, græja mig fyrir fluttingana og allt. Maður bíður alltaf með allt fram á síðustu stundu. Hefði nú sennilega gert eitthvað í dag, en ég var upptekkinn við að mála húsið hjá systir minni. Sem er eitthvað það allra leiðinlegasta sem ég geri. Vorkenni fólki sem hefur atvinnu af því að mála. Fyndin saga reyndar sem tengist því. Þegar við peyjarnir fórum til Spánar 2002, þá var Þórir að spjalla við einhverjar íslenskar stelpur þegar ein þeirra spyr hann hvað hann geri. Hann svaraði, ég mála. Þá spurði önnur stelpa, alveg með stjörnurnar í augunum, seluru. Þetta var fyndið. Ég reyndar eyðilagði það að Þórir gæti nýtt sér þennan skamma listamannsferil til að höstla, því ég sprakk úr hlátri um leið og stúlkugreyið lét þetta útúr sér. Jæja, má ekki vera að þessu, þarf að fara að pakka.
miðvikudagur, ágúst 24
Journey Not everybody loves Journey like you. I don't love Journey. Just a small town girl ... Livin’ in a lonely world, she took the midnight train goin’ anywhere
þriðjudagur, ágúst 23
Helgin Þá er hinni ágætustu helgi lokið. Já, ég veit það er kominn þriðjdagur. En ég kom ekki til Eyja fyrr enn með seinni ferðinni í gær, svo mér er eiginlega ekki búið að gefast tími til að blogga neitt fyrr. Þurfti nefnilega aðeins að útrétta í borginni sjáðu til. Ætlaði mér reyndar að gera það á föstudeginum, fór þessa vegna með fyrri ferðinni þá. En asinn var svo mikill að detta í það, að við Boggi vorum orðnir rúllandi fullir þegar hinir peyjarnir skiluðu sér upp úr Herjólfi um 7. Bara gaman það. Fórum á Jack live kvöld á Gauknum um kvöldið. Þar voru að spila 9-11's, Hoffmenn og Dr. Spock. Fannst ekkert mikið til þeirra fyrstu koma. Hoffmennin voru fín utan skoffíns sem rallaði um dansgólfið og lét eins og hann væri eini aðdáandi sveitarinnar. En djöfull voru Dr. Spock magnaðir maður. Þarf að komast á tónleika með þeim einhvertíman aftur. Óttarr kítlaði líka náttúrulega gamalar HAM-taugar í manni. En svo var laglegt antí-klæmex á kvöldinu þegar farið var á ógeðisbúlluna Vegamót.Menningarnóttin sjálf var mögnuð skemmtun líka. Þó svo hún hafi nú ekki nærri því náð þeirri í fyrra. Enda átti maður nú ekki beint von á því. Magnað teiti í nýju íbúðinni hans Víkings. Þar sem Sir Duk með Stevie Wonder gerði allt vitlaust trekk í trekk. Magnaður andskoti þar á ferð. Svo var toppurinn eiginlega þegar við smygluðum okkur inn á eitthvert Geirfuglaball á Tjarnarbakkanum og dönsuðum eins og hálfvitar (eins og maður geri nokkuð annað þessi fáu skipti sem meður er nógu ölvaður til að dansa). Eða reyndar var toppurinn öllu heldur eftir það þegar við settumst á bekkinn fyrir utna og hófum upp raust okkar og sungum ættjarðarsálma gestum og gangandi til mikillar skemmtunar. Það var gaman.
miðvikudagur, ágúst 17
Á döfinni Var alveg á nálum megnið af deginum. Búinn að ákveða að skella mér á menningarnótt um helgan. En það verður fyrsta fylleríið mitt síðan á Þjóðhátíð. Búinn að láta eins og ég sé ekki búinn að detta í það í hálft ár, en ekki hálfan mánuð. Þótt það sé nú öllu nærri lægi. Fer svo líka að líða að því að maður flytjist búferlum í höfuðborgina. Ekki laust við að maður hlakki orðið þó nokkuð til þess. Verður líka gaman að prófa að búa einn, þ.e. að vera ekki að leigja með neinum. Er eiginlega farinn að sakan Reykjavíkur fylleríanna. Þó svo að þau hafi verið farin að missa mesta sjarmann þegar fór að líða fram á vorið. Samt togast það svolítið á í manni, að það er útlit fyrir að það verði nóg að gera í Lyftunni allavega fram að jólum. Og mér finnst alveg fjandi gaman að vinna þar þegar það er nóg að gera. Maður hugsar enn með mikilli hlýju til þess tíma þegar við vorum að gera við Núpinn. Reyndar finnst mér mikið skemmtilegra að vinna en að vera í skóla. Hefur eiginlega aldrei þótt neitt sérstaklega gaman í skóla. Þótt nám hafi átt nokkuð vel við mig í gegnum tíðina. Fyrir utan það kannski þegar ég byrjaði í verkfræði og gerðist tossi á einnri nóttu.
sunnudagur, ágúst 14
Þjóðhátíð 2004 Var að enda við að horfa á tæplega klukkustundar langa vídeómynd frá Þjóðhátíð 2004 sem systir mín kom með. Einhverri samstarfskonu hennar hafði verið réttur diskur með þessari mynd á þar sem hún sat uppi í brekku á nýliðinni Þjóðhátíð af einhverjum mönnum sem hún kunni engin skil á. Henni hefur sennilega ekki litist á blikuna eða eitthvað, allavega lét hún systir minni diskinn í hendur. Hann hafði hún svo með sér hingað í kvöld þegar hún mætti í mat. Við horfðum svo á þetta eftir að hafa troðið okkur út af lunda, kannski svolítið viðeigandi það. En pabbi kom utan úr eyju í gær, og hamfletti og sauð ofan í okkur lunda í dag. Mikið djöfull var það gott. En það er víst ekki það sem ég ætlaði að segja frá hér.Mikið rosalega var ég, hummm, hrærðu er sennilega besta orðið til að lýsa því. Var með rosalegan fiðring að horfa á þetta, vakti mikla gleði að hugsa til hátíðarinnar, en jafnframt hryggði það mig hvað langt er í þá næstu. Eins hugsaði ég til þess með miklum söknuði hversu æðislega gaman var að vera um 10 - 12 ára á Þjóðhátíð. Vildi hálf óska þess að maður gæti fengið að upplifa það aftur. Maður ætti nú að fara að drullast til þess að fara eitthvað niður í dal á daginn á næstu Þjóðhátíð. Upplifa smá nostalgíu. Ég hef ekkert fengið mér í glas þessar tvær helgar sem liðnar eru frá því að hátíðinni lauk. Veit ekki hvort ég var svona mettur af fylleríi eftir Þjóðhátíðina eða hvað. En mikið agalega varð maður ölþyrstur af því að horfa á þessa Þjóðhátíðarmynd. Ætla að skella mér á menningarnótt um næstu helgi. Ef það verður helmingi jafngaman og í fyrra, þá verður það snilld. Mikið djöfull þarf ég að fara að detta í það.
mánudagur, ágúst 8
Að misstíga sig Hver sér eiginlega um þýðingarnar á Skjá 1? Ég hef lengi pirraði mig á því að sérstaklega í þáttum Jay Leno, þá virðist sá sem þýðir þar vera afskaplega latur. Þó ég sé kannski ekki sá alfærasti í ensku, þá hef ég það góðan skilning, að ég les sjaldanst textann nema þegar ég heyri ekki almennilega hvað er sagt. Þá nærri undantekkninga laust hefur sá sem er að þýða þættina ekki heyrt það heldur. Og ekki heldur nennta að leggja sig eftir því að hlusta á þetta aftur, svo það er bara sleppt því úr. En reyndar les ég textann þegar ég er að horfa á Skjá 1 stífar en í annan tíma, því þeir eiga það svo oft til að koma með svo hrapalegar þýðingar villur, að maður getur skemmt sér vel yfir þeim. Versta er þó, að svona lagað tollir ekkert sérstaklega vel í kollinum á mér. Ferkar er hausinn á mér uppfullur af tilganslausum upplýsingum eins og í hvaða fylki Ricard Nixon er fæddur. En eitt man ég þó. Ég var að horfa á Cribs á Skjá 1 um daginn, var þá verið að skoða heimili ógeðissöngkonunnar Missy Elliot. Þá var hún með eitthvað agalegt flipp að henni þótti, og bætti svo við á eftir "I'm trippin'", eins og þeldökkra Ameríkana er siður. En ekki var þýðandinn betur inni í slangri þeirra þeldökku en svo, að hann þýddi þetta sem "Ég er að misstíga mig". Þetta þótti mér voðalega fyndið. Ekki síst fyrir það hvað hún virtist kát yfir því að vera að misstíga sig.
fimmtudagur, ágúst 4
Post-Þjóðhátíð Jæja þá er Þjóðhátíðin búin, var snilld, bara snilld. En það er orðið það langt síðan að henni lauk að það er asnalegt að tala um hana. Svo ég ætla að sleppa því. Hvað á ég þá að tala um? Hvað það er mikið að gera í vinnuni þessa dagana (?), var í vinnu til hálf níu í kvöld. Nei það er leiðinlegt líka. Og svona fyrst maður er á leiðinlegu nótunum, þá fækkaði um einn á heimilinu í dag, þegar pabbi fór með eldri læðuna til dýralæknis og lét lóga henni. Bíddu, hef ég ekki eitthvað skemmtilegt að tala um. Jú heyrðu, ég uppgötvaði það um hátíðina hversu mikill snillingur að Tom Waits er. Sindri mætti hérna með brenndan disk með einskonar "best of" með honum með sér á miðvikudeginum, og var svo almennilegur að gleyma honum hér. Ég skellti honum svo alltaf á þegar ég skreið fram úr og var að koma ofan í mig fyrstu bjórunum til að reyna að passa að það rinni ekki af mér. Hef núna lagt eignarhald á þennan disk. Takk Sindri. Svo eitt að lokum. Nú segi ég það og stend við það: ALDREI AFTUR LOVERBOY ... |
Ég er fæddur í Eyjum 1981
Lesist á eigin ábyrgð Blogg-óði maðurinn
Þetta skoða ég Fréttir
Gamalt og mis gott mars 2004 Þakkir fá blogskins |