*
*
*
*
miðvikudagur, september 28


10.000
Nei vóóóó maður. Síðan bara að verða komin upp í 10.000 heimsóknir. Verður maður ekki að gera eitthvað í tilefni af því. Heyrðu jú, sá sem verður númer 10.000 fær pulsu. Ef þú ert svo lánsamur að vera númer 10.000 vinsamlegast kvittaðu þá í kommentkerfið.







Heima á ný
Mikið djöfull er ég búinn að vera duglegur undanfarna daga. Hef verið kominn á fætur fyrir kl 8 tvo síðustu morgna, þó ég ætti ekki skóla fyrr en um hádegi, og sestur við lærdóm. Spurning hvort ég geti ekki tappað þessum metnaði á flöskur, gæti örugglega orðið ríkur af því. Nú eru ábyggilega einhverjir farnir að fyllast efasemdum. En ég sver það, ég er ekki að ljúga þessu. Ég er nefnilega búinn að ákveða að skella mér á Lundaball um helgina, og ætla líka að nota tækifærið og útrétta aðeins í Eyjum. Því ætla ég til Eyja með seinni ferðinni á morgun. En þar sem ég þurfti að skila slatta af verkefnum af mér í lok vikunnar. Hef ég neyðst til þess að sýna þennan dugnað. Mér hefur líkað mun betur að vera svona metnaðarfullur en ég átti von á. Svo það er nú alveg spurning hvort það verði ekki bara áframhald á því.
Huuummmmm neeeee ætli það nokkuð ...






þriðjudagur, september 27


Davíð
Þar sem Davíð Oddson lýkur stjórnmálaferli sínum í dag. Þá eiginlega verð ég að nota tækifærið og rifja upp eina góða skrýtlu á meðan það á enn við.
Afhverju er ekki enn búið að gefa út frímerki með mynd af Davíð Oddsyni á?
Því að Sjálfstæðiðsmenn myndu ekki vita hvora hliðina þeir ættu að sleikja.






mánudagur, september 26


Helgi
Þetta var greinilega mjög góð helgi. Allavega er ég ennþá þunnur. Ekkert alveg skelþunnur svo sem. En maður er agalega tuskulegur eitthvað. Held það hafi fáum dulist hvað var að hrjá mig í fyrsta tímanum í morgun. Skánaði þó aðeins þegar ég skaust heim í gatinu sem fylgdi á eftir þeim tíma og skellti í mig einum núðlupakka.
En djöfull skemmti ég mér um helgina. Föstudagurinn var virkilega góður, byrjaði á að kíkja til Hannesar, þar sem ég ætlaði bara að sitja og spjalla. En það entist nú ekki lengi. Fékk hálfa flösku lánaða hjá Sigurði af Captain Morgan. Allt er hey í harðindum. Kíktum í smá teiti til Jónu, þar sem við fræddumst meir en við höfðum áhuga á um græna Mústanga. Og skemmtum okkur alveg ljómandi þótt Mústangar-eigandi hafi ekki náð að sannfæra hana um ágæti Metallica og Rammstein. Síðan hélt hópurinn af stað á Lundann með smá viðkomu sumra á nýjastaðnum hans Þrastar Johnsen. Þar sem Andri Hugo steig á svið og tók nokkur vel valin lög með góða gestasöngvara sér til aðstoðar. Ber þar helst að nefna Hannes Kristinn Eiríkson og Bedda á Glófaxa. Þar á eftir fylgdi stutt stopp á Lundanum áður en haldið var heim til Viktoríu í skemmtilegasta eftirpartý sem ég hef lent í síðustu árin. Standa þar helst upp úr lítrarnir tveir sem Sigurður reddaði af heimabrugguðu rauðvíni, indíána-kyrjur ala Sæþór Á og Andri Apache Hugo, Radiohead-slagarar ala Árni Gunn og Stefanía.
Ég var mjög duglegur að drekka af þessu rauðvíni hans Sigurðar. Sem lýsti sér í slappleika og stirðu geði á laugardeginum. Sem maður svo drakk úr sér í innflutningspartýinu hjá honum Hannesi Kristni Eiríkissyni. Áður en við héldum á tónleikana. Sem ullu engum vonbrigðum. Ensími voru frábærir og Dr. Spock voru tær snilld. Svo þetta var í heildina litið frábær helgi. Enda finnur maður enn fyrir henni í æðum sér. Ekki laust við að mann kvíði fyrir körfunni í kvöld.






föstudagur, september 23


Heim skal haldið
Jæja þá er það ákveðið. Ég er á leiðinni til Eyja á eftir. Búinn að vera að velta þessu fyri mér allt frá því að ég frétti af tónleikunum sem eru á morgun. Var samt varla að nenna því, þar sem það eru allar líkur á því að ég sé á leiðinni aftur heim helgina eftir það. En fyrsta að Hannes Kristinn Eiríkson lífskúnstner með eyru ætlar sér að halda innflutningspartý á morgun líka, þá gat maður ekki annað en slegið til. Svo togar það nú líka mikið í mann að komast aftur á tónleika með Dr. Spock. Fór á tónleika með þeim á föstudeginum fyrir menningarnótt, og var alveg gjörsamlega heillaður. Einhverjir öflugustu tónleikar sem ég hef farið á. Spilar kannski inní að ég var alveg snarölvaður. En ég ætla svo sem ekkert að hafa það neitt öðruvísi á tónleikunum á morgun.






fimmtudagur, september 22


Ganga
Mikið afskaplega var ég feginn í morgun þegar ég hafði það af að koma mér á fætur og út um dyrnar, til að skondra í skólann, að vera laus við að þurfa að keyra. Glotti við tönn þegar ég sá nágranna mína sem voru að skafa af bílum sínum. Eina sem ég nota bílinn eitthvað í af ráði er að fara í Bónus, og ef það væri Bónus verslun í göngufæri við mig. Þá lægi bíllinn minn sennilega hreifingar laus fyrir utan heima hjá mér vikum saman. Mjög ólíkt því í fyrra þegar ég bjó í Grafarvoginum og þurfti að eyða um hálftíma í það að koma mér í skólann kl 8 á morgnana.
Skyldi bílinn einmitt eftir út í Árbæ þar sem ég hafi setið að sumbli á laugardeginnum þangað til í fyrrakvöld. Hann væri sennilega þar ennþá ef ég hefði ekki þurft að fara í Bónus í gær. En nú vantar mann bara góða úlpu fyrir veturinn.






þriðjudagur, september 20


Músík og matur
Ég er alveg að missa mig í að ná í lög þessa dagana. Maður tapar sér alveg þegar maður er með tengingu eins og er hérna á görðunum. Á samt enn mjög langt í land með að ná eins miklu og mig langar í. Alltaf eitthvað að poppa upp í kollinn á manni sem maður bara hreinlega verður að ná í. En ég ætla nú að fara að slaka aðeins á í einhvern tíma allavega. Bæðið það að þeir hjá reiknistofnun gætu eitthvað farið að fetta fingur út í þetta. Svo þyrfti ég eiginlega líka að fara að eyða einhverju af þessum tíma í að læra.
Já svo þyrfti ég líka að fara að drullast til að ná í bílinn út í Árbæ. Fæ pabba kannski til þess að skutla mér á eftir. Við kíkjum ábyggilega eitthvað að fá okkur að éta saman á eftir. Fínt að hafa kallinn hérna til að kaupa ofan í mann mat. Var að fatta það núna áðan að ég er ekki búinn að elda mér neitt, síðan að ég fluttist aftur til Reykjavíkur, sem hefur krafist einhvers meir af mér en að ræsa örbylgjuofninn. Sem er ákveðin synd, vegna þess að mér finnst frekar gaman að elda. Finnst samt ekki nærri því jafn gaman að elda ofan í mig einann, svo það er kannski ágætt. Ég er nú heldur ekki beint með merkilega eldunaraðstöðu hérna í kitrunni minni. Svo er líka ágætt að fá að éta á kostnað annara. En það fer víst að taka endi. Skyldist það á kallinum að Snorrinn væri á leið á sjó sennilega einhvertíman fyrir helgi. Svo þá ætti hann af fara að komast aftur heim til Eyja.






sunnudagur, september 18


Bolti, bjór og sitthvað fleira
Ég veit að það kann að koma ykkur mínum dyggu lesendum á óvart en ég er þunnur í dag. Ekkert neitt að farast úr þynku eða neitt, en vel slappur. Maður varð náttúrulega að fagna því að ÍBV skyldi tapa 1-0 fyrir Fylki í gær. Já ég fór á fótboltaleik, ekki seinna vænna svo sem. Fyrsti leikurinn sem ég fer á með ÍBV þetta árið, og það er í síðustu umferðinni. Fór með þeim Sigurði og Friðbergi, og fyrst við vorum komnir út í Árbæ, þá fórum við til Grettis og drukkum okkur fulla þar (ó já nú man ég bíllinn minn er ennþá þar). Lýst ekki á að gera mikið af því, það var algjör tremmi að fá leigubíl þegar að við ætluðum niður í bæ.
Við Kolli fórum svo á Ellefu þegar farið var að líða á nóttina og hittum þar á Ástþór. Settumst niður yfir einum köldum og ræddum heimsmálin þangað til að byrjað var að smala niður af efri hæðinni. Þá var ég orðinn frekar lúinn, og kom mér bara heim. Gaman að hitta svona á Ástþór og fá tækifæri til þess að kveðja hann áður en að hann flytur aftur út til Lundúna að stúder leiklist.


Svo var ég víst líka klukkaður aftur. Jóna var svo almennilega að gera það. Svo hér koma 5 tilganslausar staðreyndir í viðbót:

1. Ég er mikill aðdáandi pasta, og ef það væri ekki til þá væri ég sennilega búinn að svelta í hel eftir að ég fluttist af hótel mömmu. Eða væri kannski nokkrum kílóum léttari, sem ég mætti nú alveg við.
2. Ég var með axlasítt þegar ég var 16 ára gamall.
3. Ég drakk mig fyrst fullan 14 ára.
4. Ég er búinn að drekka reglulega frá því ég var um 15 - 16 ára gamall.
5. Ég kann ekki ennþá að drekka.

En í þetta skiptið ætla ég ekki að klukka neinn. Vil ekki taka áhættuna á að þetta komi aftur í rassgatið á mér. Er ekki nógu frjór til að geta verið að koma með svona staðreyndir dag eftir dag.






laugardagur, september 17


Í sambandi
Þá er ég loxins kominn með þessa nettengingu í lag hérna á görðunum. Og djöfullsins snilld er þetta. Hraðinn á þessu er fáránlegur á köflum. Verst að maður skuli ekki hafa meira hugmyndaflug um hvað mann langi til þess að ná í. Stóð þó við nokkuð sem ég er búinn að vera að lofa mér í nokkuð langan tíma. Sigurður Bongó hefur lengi mært hljómsveitina Smashing Pumkins. Og mér hefur svo sem líkað ágætlega við það sem maður hefur verið að heyra með þeim á öldum ljósvakans í gegnum tíðina. En ég hef aldrei gefið mér tíma til þess að hlusta almennilega á þá. En ég lét einmitt verða af því núna áðan. Náði í allan Siamese Dream diskinn á svona ca. 10 mínútum. Er búinn að vera að leyfa honum að malla núna aðeins á meðan að ég hef verið að væflast hér í netheimum. Og líkar bara alveg bærilega.






föstudagur, september 16


Klukk ..?
Jæja, Boggi var að henda einhverju bulli á mig. Eitthvað sem á víst að vera "aðal æðið í bloggheiminum í dag". Að klukka einhvern. Það þýðir víst að ég neyðist til að telja upp fimm ómerkilegar staðreyndir um sjálfan mig og klukka svo fimm aðra. Ok here goes:

1. Ég lenti í því þegar ég var 4 ára að annað augnlokið á mér var hoggið í sundur af rólu. Má en sjá örið ef vel er leitað.
2. Ég safnaði lyklakippum þegar ég var lítill. Það gekk ekki vel held ég hafi eignast um 10 kippur í það heila.
3. Ég veiddi minn fyrsta lunda þegar ég var 11 ára.
4. Ég hef aldrei komið í Kolaportið.
5. Mér finnst súrmatur góður.

Ég ætla svo að klukka: Sindra, Hannes, Gumma, Elías Inga og Haffa. Vesgú.






miðvikudagur, september 14


Elli Mónó ??
Rakst á þessa mynd þegar ég var að leita á Google að myndinni sem ég setti við bloggið hérna að neðan. Var að velta því fyrir mér hvort þetta væri mynd af Elíasi Inga þegar hann missti sig í bratwürstinu í Þjóðverjalandi.







Nýtt tæki
Það er alltaf gaman þegar maður eignast nýtt tæki. Er endanlega búinn að gefast upp á að reyna að koma gamla laptop-ræflinum mínum á netið á görðunum, svo ég keypti mér nýja tölvu í gær. Engan svaka grip, hef heldur ekkert efni á því, bara einhverja sem ég fann á fínu tilboði í Elko. Ýmislegt skemmtilegt sem fylgir því að kaupa eitthvað frá Elko. Lyklaborðið sem fylgdi var sett upp fyrir norsku, en það fyldi þó með apparat til að skipta út lyklum og lyklar og leiðbeiningar til að breyta því fyrir dönsku, sænsku og finnsku. En ekki íslensku. Svo ég greip þá bara á það ráð að sjá um það sjálfur, og skrifaði inn með tipex-i það sem þurfti að breyta til að íslenska lyklaborðið. Versta við það þó, er að nú lítur lyklaborðið út eins og að 5 ára frændi minn hafi komist í það og krassað á það allt.
En meira varð mér þó um það fyrst þegar ég kveikti á henni, þá var mér nefnilega bara boðið upp á að steja Windows-ið upp á norsku, dönsku, sænsku eða finnsku. Ekki á ensku. Ég klóraði mér mikið í hausnum yfir því hver af þessum kost væri skásstur þegar ég svo loxins fattaði að prófa að setja Windows diskinn sem fylgdi með tölvunni í og keira hana upp með honum. Þá fékk ég lox að setja Windows-ið upp á ensku. Hef ekki en fengið tölvuna til að tengjast netinu á görðunum, þurfti einmitt að labba upp í skóla til að geta komist á netið núna. En fyrst maður er kominn með nýtt tæki í hendurnar, þá verður maður að nota það. Er því búinn að eyða óhóflega miklum tíma í að leggja kapal í dag.






mánudagur, september 12


For dummies
þetta? Er kókópöffs-kynslóðin að verða svo gegnsýrð af súkkulaði og sykri að við ráðum ekki orðið við að lesa bækur. Ætli þetta verði næst gefið út í myndasögum..?
Ekki það að ég hafi lesið þessar bækur svo sem ...






sunnudagur, september 11


Ódýrt og gott
Jæja já. Hvað gerði maður svo um helgina ?? Jú ætli maður hafi ekki fengið sér í glas, aldrei þessu vant. Byrjaði á því á föstudaginn að við Boggi skelltum okkur á sjávarútvegssýninguna. Þar hittum við fyrir Hafþór hinn smáa og rölltum við þrír þarna um og virtum fyrir okkur öll þau stórmerku tæki og tól sem verið var að kynna þarna. Reyndum að þefa uppi hvar við kæmum höndum yfir ókeypis áfnegi, og sötruðum þannig nokkra bjóra. Þar til við hittum hinn mikla snilling Guðjón Hjörleifsson. En hann bennti okkur á að fara í básinn hjá Shell, því Eiki Þorsteins væri þar. Leið og Eiríkur sá okkur nálgast kom hann hlaupandi á móti okkur að bjóða okkur bjór. Sem var gott. Og lofuðum við Borgþór hvorum öðrum að mæta aftur daginn eftir, og taka þá mun betur á því.
Eftir sýninguna kíktum við aðeins á Einar Örn og sátum þar smá tím, þar til Boggi dró okkur með sér í Vökupartý. Þar var einnig verið að bjóða upp á fríar veigar, svo ef hún hefði getað, þá hefðu buddan mín brosað eyrna á milli. Þar drukkum við okkur snarölvaða, og vorum hundleiðinlegir eins og venjulega. Tókum svo smá rölt í bænum, og kíktum á nokkra staði. Þangað til að þreytan náði í rassgatið á manni og maður drattaðist heim hálfræfilslegur.
En heldur lítið varð um stóru áætlanirnar fyrir laugardaginn, þar sem ég átti við afar erfiða timburmenn að etja þegar ég rankaði við mér úr rotinu. Því fór gærdagurinn aðalega í það að vorkenna sjálfum sér, og að gera ekkert.






þriðjudagur, september 6


Íþróttafrík
Maður er hálf fótlama í dag. Hittumst nokkrir í gærkvöldi í íþróttahúsi stúdenta og skelltum okkur þar í körfubolta, en þetta á víst að vera vikulegur viðburður í vetur. Að sprikkla aðeins í þynkunni á mánudögum. Sýndum hörku takta alveg, hrikalegur hraði svona ca. fimm fyrstu sóknirnar. En síðan var eiginlega bara hlaupið í fimmtu hverri sókn. En það leynir sér ekki á því hvað maður ber sig aumlega í dag, að maður hefur ekki hreyft sig innan veggja íþróttahúss síðustu 4 - 5 árin. Og lítið sem ekkert utan þeirra þann tíma heldur. Þá eru glasalyftingarnar vitaskuld ekki teknar með. Svo skyldist mér líka á Borgþóri að það væri hinn fínasti tækjasalur þarna. Kíkti nú ekkert á hann í gær, en það gæti verið athyglisvert að reyna að rifja upp gamala takta þar líka. Sjá hvort eitthvað af eymi enn eftir af handleiðslu Illuga í þeim efnum eftir öll þessi ár.






sunnudagur, september 4


Fyrstu vakt lokið
Nú er maður tiltölulega nývaknaður. Vakti nefnilega langt fram á morgun. Nei nei, ég var ekki á djamminu. Ekki síðustu nótt allavega. Var að vakta Snorra Sturluson (frystitogarann sko, ekki fjölmiðlamanninn). Sem fólst aðalega í því að sitja í borðsalnum og horfa á DVD. Eitthvert stærsta DVD safn sem ég hef séð er þarna um borð. Svo mér leiddist nú ekki. Á víst að vakta hann aftur í nótt. En hugsa að ég leggi mig þó allavega eitthvað þá, en horfi ekki á DVD alla nóttina eins og í nótt. Maður þarf víst að fara að andskotast til þess að mæta eitthvað í þennan skóla. En þó ég hafi ekki verið á fylleríi í gær, þá vara ég snarölvaður drjúgan hluta dags. Vaknaði alveg hreint útúr drukkinn nefnilega. Ætlaði nú að kipp því í liðinn með því að rölta hingað út í skóla og láta renna af mér. En það dugði ekki til, svo ég var í staðinn bara snarölvaður að væflast um á netinu. Sem varð til þess að ég skyldi ýmis skringileg komment eftir á nokkrum bloggsíðum. Eins og hérna. Hef greinilega verið óhóflega drukkinn nóttina áður, því ég man ekkert eftir því að hafa komið mér heim. Hlýt eiginlega að hafa tekið leigubíl. Myndi alveg örugglega ráma eitthvað í það ef ég hefði labbað. Finnst bara merkilegast að hafa rambað á réttan stað fyrst ég er bara rétt fluttur þangað inn.






föstudagur, september 2


Staða mála
Ýmislegt búið að gerast hjá mér. Fékk loxins endurgreitt frá skattinum. Ákvað þá að drífa mig í að nota þessa aura í eitthvað gáfulegt áður en ég eyddi þeim öllum í fyllerí. Fór því af stað í gær og verzlaði mér eitt stykki DVD-spilara og skrifborðstól. Keypti líka eintak af Nýju lífi á DVD til að prófa nýju græjuna, skyldu eign fyrir fólk af mínu bergi brotið. Fékk líka loxins passandi gardínur í gær, en systir mín kom færandi hendi. Verst þó að það gleymdist að verzla meira af svona hljóladæmi í þær. En það sem til var reddaði því samt, sem betur fór, að hægt væri að henda upp gardínum (merkilegt orð gar-dínur hummm) svo grannar mínir gætu ekki lengur legið á glugganum hjá mér á morgnana að fylgjast með mér spóka mig um á boxerunum. En þetta þýðir því miður það að ég þarf að gera mér enn eina ferðina út í Rúmfatalager að verða mér úti um svona hjól. En hvað gerir maður svo sem ekki fyrir lúkkið á pleisinu.
Held ég ætti að fara að byrja í fótbolta, get allavega talað talinu. En spurning hvort maður geti labbað labbinu ...






Ég

er fæddur í Eyjum 1981

hef búið í Eyjum nær alla ævi

bý núna í Reykjavík

vinn sem möppudýr í smiðju í Garðabæ

er flokksbundinn Sjálfstæðismaður

veit ekki hvað ég get sagt fleira um sjálfan mig

býð þig hjartanlega velkominn á síðuna

e-Póstur

msn




Lesist á eigin ábyrgð

Blogg-óði maðurinn
Blogg-óða konan
Blogg-óði faðirinn
Þessi flúði land
Passið ykkur á þessum
Síra
Sýra
njé-2
Þessi kom á Þjóðhátíð
Oft gaman að þessum
Þessi er rokk-fróður
Þessi hefur áhuga á listum
Þessi kann að segja sögur
Þessi fær aldrei notið steríós
Þessi stuðlar að fjölgun mannkyns
Þessi ætlar að laga í mér lifrina
Þessi fór til Spáns
Þessi á dýptarmæli
Þessi fílar Bubba óhóflega mikið
Þessi styður Newcastle United
Þessi er mikið fyrir murtuna
Þessi stúderar í Danaveldi
Þessi er í Breskum leikskóla
Þessi kann á rússneskar bongótrommur
Þessi fann Jesúm
Þessi biður að heilsa
Þessi stjórnar bæ
Þessi kann að jóðla
Þessi valdi Hellisey
Foster's Blog
Foster's Net
VKB's Blog

Þetta skoða ég

Fréttir
Mogginn
Vísir
eyjar.net
Háskólinn
VKB
Dalurinn
Ægisdyr
Eyjabloggarar
B2.is
Google
Heimabankinn
Dagskráin
Árgangur '81
Leikjanet
Uncyclopedia
Encyclopedia
KÉSHÁM (NBA)
Öll tónlist
Eyverjar
IMDb
TV.com
YouTube
Reykjavík FM

Gamalt og mis gott

mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008
september 2008
október 2008
nóvember 2008
desember 2008
janúar 2009

Þakkir fá

blogskins
Main Site
Powered by TagBoard Message Board

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

eXTReMe Tracker