![]() |
|
|
mánudagur, október 31
Borgin Kominn aftur í borgina efti vægast sagt erfiða Herjólfsferð. Átti afar bágt sökum þynku. Var ekki langt frá því að taka smá búlemíu á þetta á löngum kafla, en það slapp þó. Gæti svo sem hafa verið sjóveiki líka, en ég hef ekki orðið sjóveikur í einhver tíu ár eða meira. Svo þetta var sennilega aðalega þynka. Ég er líka meir að segja búinn að vera hálf þunnur í dag, tek nú yfirleitt ekki út tveggja daga þynku, sérstaklega þegar maður drekkur ekki nema eitt kvöld. En samt þess virði, þræl fínt ball alveg, ekkert sérlega fjölmennt, en afar góðmennt.Ég hef ábyggilega verði afar vinsæll hjá nágrönnum mínum núna um helgina. Sá það nefnilega þegar ég skilaði mér heim í gærkvöldi að ég hafði gleymt að slökkva á vekjaraklukkunni, svo hún hefur hringt á hverjum morgni alla helgina kl 7 að morgni. Heillengi sennilega, ég veit ekki hvað hún er lengi að hringja út. Andri er búinn að setja inn myndir af kenndiríinu á laugardaginn, getið klikkað á myndina ef þið viljið skoða þær. Eða bara farið á síðuna hans í gegnum linkana hér til hliða. Vesgú.
föstudagur, október 28
Sólahring á undan áætlun Mikið afskaplega var ég ánægður í gær þegar mér var bent á það að það væru engin skila á heimadæmum í dag. Hafði nefnilega engan tíma haft til þess að gera annað en að sinna þessari verkefnavinnu sem ég þurfti að skila af mér í vikunni. Hefði því þurft að gera þessi dæmi í dag og ekki komist því fyrr en með seinniferðinni með skipinu í dag. Ég greip því tækifærið í gær og skellti mér þá með skipinu. Og var ég enn ánægðari í morgun þegar ég skreið fram úr og sá veðrið. Hefði verið martröð að keyra í höfnina í þessa á slittnu sumardekkjunum mínum. Nú er bara að fara að mana sig upp í það að koma sér út úr húsi til að koma vetrardekkjunum undir. Verður líka gott að fá almennilegar felgur undir bílinn, þá hættir hann kannski að vera eins og hann sé með parkinson.
miðvikudagur, október 26
Heim um helgina Þá er það ákveðið. Ég er að fara til Eyja um helgina. Var nú útlit fyrir að það myndi ekki ganga hjá mér fyrst, því það var upppantað í báðargferðirnar á föstudaginn ogg í seinni ferðina á sunnudaginn þegar ég ætlaði að panta með herjólfi í gær. En ég verð að fara á bílnum, svo ég geti komið vetrardekkjunum undir. Sigurður var hinsvegar svo almennilegur, þegar ég sagði honum frá þessum vandræðum mínum, að bjóða mér plássið sitt í skipinu. Sem er virkilega ánægjulegt, því það er jafnvel útlit fyrir að þetta sé síðasta tækifærið fyrir mig að komast heim fyrir jól. Það er nefnilega allt að verða vitlaust í verkefnavinnu hjá mér, og þarf ég sennilega að nýta allar helgar fram að prófum til þess að vinna í þeim.Svo er nú líka að verða allt of stutt í þessi fjandas próf. En það verður sko ekki hugsað um það um helgina, heldur tekur maður verslunarballið með trompi.
mánudagur, október 24
Uncyclopedia Þetta er mjög skemmtileg síða. Kíkið til dæmis á hvað stendur um Ísland þarna
laugardagur, október 22
Það getur líka verið gaman í Rvk Það vara bara gaman hjá mér í gær. Byrjaði á að fara í vísindaferð í Fjarhitun, sem á mikið hrós skilið fyrir framistöðu sína. Röltum í gegnum fyrirtækið og fengum að spjalla við fólkið sem var enn að vinna, það sýndi okkur hvað það var að vinna að og svona. Mjög athyglisvert og skemmtilegt. Svo á eftir flóði allt í bjór og pizzum og hákarl og brennivíni. Þetta hefði dugað til að fæða heila herdeild, og að gera þá vel hífaða. Svo á eftir var Tour de Skerjó og þar var enn verið að ota að manni ókeypis áfengi. Mikið spjallað og gaman, gerð heiðarleg tilraun til þess að fara í regluspilið sívinsæla. En það gekk eiginlega ekki í þessum fjöld, of margir sem bara hreinlega skildu þetta ekki. En svo komst ég að því afhverju þetta er kallað Tour de Skerjó, því það var röllt um húsið og kíkt inn í íbúðirnar hjá þeim sem voru á svæðinu. Merkilegt hvað stúlkunum sem hafa búð hér sem lengst hefur tekist að gera kitrurnar sínar heimilislegar. En eitt skyggði þó á skemmtunina, þegar við vorum búin að koma við í tveimur íbúðum eða svo, þá kom einhver með þær sorgar fréttir að það væri búið stela öllum bjórnum. Það er náttúrulega afar lákúrulegt og bið ég þig lesandi góður, ef þú sérð einhvern með tæpa tvo kassa af Lager bjór sem, hann getur ekki gefið skýringu á hvernig honum áskotnaðist, að lemja hann á staðnum.En því miður þá náði túrinn um Skerjó ekki til mín. Hefði endilega viljað monta mig af lundanum mínum. En þegar farið var að líða á túrinn, þá var ég orðinn svo þreyttur í hendinni af öllum þessum glasalyftingum að ég brá á það ráð að skríða upp í rúm og leggja mig. En jæja, má ekki vera að þessu. Þarf að fara að drattast upp í skóla að reyna að gera eitthvað í þessu verkefni.
föstudagur, október 21
Lagið Já, á maður ekki að reyna að gera þetta að vikulegum lið hérna. Eða eitthvað nálagt því. Vakti nefnilega alveg stormandi lukku í síðustu viku, minntist enginn á þetta. En jæja, er svo sem ekki beint að þessu til þess að fá eitthvað "feed back". Meira svona bara leið fyrir mig að deila lögum sem ég er annað hvort með á heilanum eða ný búinn að uppgötva. En hvað um það. Lagið þessa vikuna er þetta. Stutt síðan að ég heyrði þetta lag fyrst, allavega þannig að ég tæki eftir því. Þótt það sé orðið rúmlega 10 ára gamalt. Njótið vel.
fimmtudagur, október 20
Könnun Jæja, er ekki alveg kominn tími á nýja könnun. Sú síðasta fékk að hanga uppi ansi lengi. Einhverja mánuði held ég. Í henni spurði ég hvaða einstakling úr þáttunum The Simple Life að þið telduð gáfaðastan. úrslitin komum mér ekkert rosalega á óvart, en þau voru: Paris hlaut 3 atkvæði, eða 6% Nicole hlaut 3 atkvæði, eða 6% Hundurinn hlaut 41 atkvæði, eða 88% Alls greiddu 47 atkvæði votes total Nú er komin upp ný könnun, svo endilega takið þátt.
miðvikudagur, október 19
Maður í manns stað (eða djamm í djamms stað) Karfa hjá okkur í KÉSHÁM í morgun. Spiluðum nær stanslaust í klukkutíma. Gaman að því. Svo þegar ég skilaði mér heim aftur, þá var ég plataður niður í kjallara að telja dósir og flöskur. Ágóðann af því á svo að nota til að halda partý, Tour de Skerjó. Sem er víst árviss, eða annraviss (ekki alveg viss), viðburður hér á Skerjagarði. Verður eflaust gaman af því að hitta eitthvað af því fólki sem maður deilir húsi með. Lét náttúrulega teyma mig út í það að vera að skutlast með þetta í endurvinnsluna og eitthvað. Svo ég var ekki laus aftur fyrr en einhvertíman að verða tvö. Orðinn sársvangur, enda ekkert búinn að éta nema tvær skittnar brauðsneiðar áður en ég fór í körfuna. En í stað þess að drífa mig heim og ráða bót á því. Þá brá ég á að "snildar" ráð að far beint út í Bónus að versla. Ætlaði ekkert að versla nein ósköp, byrjaði á að taka bara körfu. Gafst fljótlega upp á því og varð mér úti um kerru. Endaði svo á því að versla fyrir nærri því 6.000 kr. ALDREI fara svangur að versla lesandi góður!! Ætlar lítið að verða úr rólegheitar helginni sem ég ætlaði mér að njóta núna fyrst ég kæmist ekki heim til Eyja á djammið með öllum. Er nefnilega eiginlega búinn að láta plata mig til þess að skrá mig í vísinda ferð líka. Þetta Skerjagarðspartý byrjar nefnilega ekki fyrr en níu um kvöldið. Svo maður verður nú eitthvað að gera til að drepa tímann fram að því ...
mánudagur, október 17
Skjótt skipast veður í lofti Nú gerast hlutirnir hratt. Þegar ég fór að skoða póstinn í dag eftir að ég skrifaði þetta hérna fyrir neðan. Þá sá ég að það var búið að fresta skilum á tveimur verkefnum hjá mér, Sumar á Sýrlandi verkefninu sem ég sagði ykkur frá á miðvikudaginn og hönnunar verkefni, þangað til seinni partinn í næstu viku. Svo ég var orðinn mjög bjartsýnn á að komast, rauk til og hringdi í Herjólf til að panta. En þá var allt upppantað fyrir bíla með seinniferð á sunnudaginn, sem var ákveðið áfall. En ég ætlaði að reyna að redda því með að senda bílinn á undan mér eða á eftir. Stuttu eftir að ég var búinn að redda því, þá átti ég fund með þeim sem ég er að vinna þetta Sumar á Sýrlandi verkefni með. En þá kom það upp að þau vildu endilega nýta helgina undir það, því það væri svo mikið álag á þeim í skólanum þessa dagana. En ég hafði það nú ekki í mér að fara að mótmæla því svo ég kæmist á ball í Eyjum. Ætli þessi fjandas skóli verði ekki líka einhvertíman að fá að ganga fyrir.Ætlar einhver á Verslunarmannaballið? Er það ekki annars rétt hjá mér að það sé þarnæstu helgi?
Var á landsfundi og langar til Eyja Nú er mig farið að langa á þetta ball. Eki beint samt að langa á ballið, en mig langar til Eyja því það eru allir að fara held ég. Og það fara þá auðvitað allir á þetta ball, svo mig langar líka að fara á þetta ball. Ætli maður sé ekki bara svona einfaldur, mann langar bara til þess að gera eins og allir aðrir er að gera. En það er allt að verða vitlaust í skólanum hjá mér svo ég gæti vel verið fastur yfir því alla helgina. Svo auðvitað, eins sniðugur og maður er, þá varð mér ekkert úr verki alla helgina því ég var á landsfundi Sjálfstæðiðsflokksins. Var reyndar alveg rosalega slöpp mæting hjá Eyverjum þetta árið. En það varð bara að hafa það, þá datt ég bara í það með gráverjum eins og Elliða Vignis, nafna mínum Bragasyni og fleiri góðum mönnum í staðinn. Nú er bara að bretta hendur fram úr örmum, halda tungunni í munninum og hysja brækurnar yfir höfuð og reyna vinna sér inn frí í lærdóminum um helgina.
föstudagur, október 14
Lagið Hvernig er það, eru allir að fara til Eyja á þetta Sálarball um næstu helgi? Ég þyrfti nú eiginlega að fara að koma mér til Eyja til að setja nagladekkin undir hjá mér. En þar sem mér er frekar illa við Sálina, þá ætlaði ég að þrjóskast við og fara ekki fyrr enn helgina eftir það. En mér brá það mikið í brún hér í gær morgun þegar jörðin var orðin fölhvít þegar ég röllti út í skóla. Að mér liggur orðið meir á að koma þeim undir. En síðan er reyndar útlit fyrir að skólinn gæti jafnvel tekið af mér völdin varðandi það. Ég á nefnilega að skila þessu verkefni sem ég talaði um hér að neðan á mánudaginn eftir þetta ball. Svo ætli ég verði ekki fastur yfir því alla helgina. Svo í tilefni dagsins ætla ég að deila með ykkur einu lagi. Má ekki kalla það lag vikunnar, því Andri er með það, fyrir utan náttúrukega að ég geri þetta ekki vikulega. Svo má ég ekki kalla þetta föstudags fílinginn, Boggi er með það. Svo ætli ég kalli þetta ekki bara Lagið. Og Lagið er þetta.
miðvikudagur, október 12
Sumar á Sýrlandi Það mætti gestur með kennaranum mínum í tíma Verkefnastjónun í dag, og það var stuðmaður. Við eigum nefnilega að vinna hópverkefni undir heitinu Sumar á Sýrlandi 2006, sem á að snúast um skipulagningu fyrirhugaðrar tónleikaferðar Stuðmanna til Damaskus höfuðborgar Sýrlands í júní á næsta ári. Af því tilefni mætti Jakob Frímann Magnússon (eða Fríkob Möller eins og góður maður kallaði hann einu sinni) í tíma hjá okkur og fræddi okkur um hvað þessi ferð þeirra eigi að snúast og hvers væri vænst af okkur í verkefninu. Það var að heyra á honum að þeir Stuðmenn hefðu hug á að nýta besta verkefnið sem skilað yrði inn. Og talaði um það að besta hópnum yrði jafnvel boðið að koma með til Sýrlands. Sem væri svo sem ekki amalegt, því þó ég hefði nú lítinn áhuga á að sjá Stuðmenn spila, þá væri nú spennandi að koma til Sýrlands. En svo er það nú annað mál hvort staðið verði við þau stóru orð.
þriðjudagur, október 11
End of an era Þá er ég búinn að elda fyrstu alvöru máltíðina í nýju kitrunni minni. Það er að segja eitthvað sem þarf meira til en henda inn í örbylgjuofn eða hita upp í vatni. Því þó mér þyki ágætlega skemmtilegt að elda (og ekki síður skemmtilegt að borða eins og sést) þá var mér boðið eitthvert út að borða flest undanfarin kvöld frá því ég flutti hingað inn, því faðir minn var staddur hér í Reykjavík og vildi ólmur gefa mér eitthvað að éta. Það eru reyndar liðnir nokkrir dagar frá því að pabbi fór aftur til Eyja. En ég var upptekinn við aðra yðju en eldamennsku um helgina. Og veit ég að það mun ábyggilega koma þeim sem þekkja mig gífurlega á óvart að fyrsta máltíðin sem ég elda er eðalpastaréttur.Og nei Boggi, það var ekki bjúgupasta.
mánudagur, október 10
Hættur Ég er hættur að koma með svona yfirlýsingar. Þetta gekk víst ekki alveg eftir. Gerði nefnilega þau mistök að hafa samabnd við Bogga fljótlega eftir að ég skreið fram úr. Ég ætlaði að ljúka sukki helgarinnar á einhverju skyndibita fylleríi og vantaði einhvern með mér. Aðalega vegna þess að ég nennti ekki að keyra. Röllti því yfir til Bogga, þar var fyrir Bongó-Bjössi mættur líka. Svo við fórum félagarnir fengum okkur einn vænan borgara og skelltum okkur svo á smá rúnt sem endaði í ríkinu í Smáralindinni. Og ekki nenma um fjórum tímum eftir að ég kom með þessa yfirlýsingu hér að neðan, var ég búinn að opna fyrsta bjórinn. Kíktum svo til Viggó, þar sem við sátum og ræddum misgáfuleg mál þar til við dröttuðumst niður í bæ um 3 að nóttu. Viggó hafði reyndar farið á undan okkur á tónleika á Grandrokk. Enginn okkar var beint í stuði í einhvert tjútt svo við ætluðum bara að komast einhvert og geta sesst niður. Sem er ekki beint það auðveldasta að finna um 3 á laugardagsnóttu. Svo voru líka biðraðir allstaðar. Og okkur Vestmannaeyingunum datt okkur ekki í hug að fara inn á stað sem tæki okkur meira en mínútu að komast inn á. Fórum fyrst inn á Celtic Cross. En gáfumst strax upp á því. Enduðum svo á efri hæðinni á Gauknum, en þar var verið að spila svo skelfilega tónlist að ég held ég sé enn að gjalda þess með meltinga truflunum þótt við höfum drifið okkur nánast strax út aftur. Svo fór ég heim.
laugardagur, október 8
Hættur Ég ætla aldrei að drekka aftur.
þriðjudagur, október 4
Af kitrunni og Lundaballi Jæja, þá er ég lox búinn að innrétta kitruna mína eins og ég ætla mér að hafa hana. Eða réttar sagt búinn að koma því fyrir sem ég kom með með mér frá Eyjum í gær og því sem ég sendi með Flytjanda. Það er nú ekki hægt að segja annað en að þetta sé öllu heimilislegra svona. Þá fer líka loxins að vera fært til þess að halda innflutningspartý hérna. Ætli það sé ekki alveg að verða kominn tími á það.En nóg um það. Því ég fór nefnilega á Lundaball um helgina, í fyrsta skipti í alltof mörg ár. Var eiginlega búinn að gleyma því hvað þetta er rosalega gaman. Fór fyrst á Lundaball fyrir 7 árum þegar Bjarnareyingar sáu um ballið, líkt og þeir gerðu í ár. En þá, eins og nú, áttum við Brandarar að taka að okkur ballið árið eftir. Það er alveg sérstök stemmning sem skapast á þessum böllum, og yfir þeim eðal skemmtiatriðum sem einkenna þau, og við Brandarar munu bera ábyrgð á á næsta ári. Ég mun þó eflaust hugsa mig um tvisvar þá ef ég á að taka einhvern þátt í skemmtiatriðinum. Síðast þá lék ég Þórarinn Siguðrson í Geisla. En þótt ég sé ekkert gefinn fyrir samsæriskenningar, þá þykir mér það nokkuð grunarfullt (eins og sumir myndu orða það) að frá þeim tíma þá hefur mér verið sagt upp á tveimur stöðum þar sem hann hefur mikil ítök.
Auglýsingar Gallinn við fyndnar auglýsingar er að maður verður pirraður ef það er alltaf verið að segja manni sama brandarann aftur og aftur. Sama hvað hann er fyndinn.
laugardagur, október 1
Já var það ekki Þarf að fara að kaupa bjór. Ætlaði að vera sniðugur og fór í ríkið í gær til að kaupa bjór. En það var ekki sniðugt, því ég drakk hann í gær. Maður er alltaf jafn ginkeyptur. Lét Bogga plata mig á fyllerí í gær. Svo sem ekker rúllandi, en samt nóg til þess að maður færi á smá pöbba röllt. Byrjuðum á að kíkja aðeins á staðinn hans Þrastar Johnsen. Alltaf að verða ánægðari og ánægðari með þann stað. Einhver sjarmi yfir honum. Ætli það sé ekki hvað Þröstur rukkaði okkur lítið fyrir sopann. Eftir gott úteyjaspjall í tilefni Lundaballs í kvöld. Þá rölltum við yfir á Lundan, sem var alveg agalega tómur. Fundum reyndar bróðir Þrastar þar inni. Spjölluðum aðeins við Árna Johnsen, en hann hafði mætt með teikningar með sér af Herjólfsbænum sem stendur til að byggja inní Herjólfsdal. Einstaklega gaman af því. En já, má ekki vera að þessu. Þarf að fara að andskotast í ríkið svo ég geti farið að sturta í mig aftur. Ómögulegt að gefa sér færi á að verða þunnur í dag. |
Ég er fæddur í Eyjum 1981
Lesist á eigin ábyrgð Blogg-óði maðurinn
Þetta skoða ég Fréttir
Gamalt og mis gott mars 2004 Þakkir fá blogskins |