*
*
*
*
þriðjudagur, nóvember 29


Messa 1. des
Mér sýnist það á öllu, að það verði bara frí hjá manni í öllu í skólanum fyrsta desember. Sem skiptir svo sem littlu, þar sem minnsti hluti þess tíma sem maður eyðir í námið er í formi þess að sitja í tímum. Og maður svo sem getur alveg sleppt því á þessum síðustu og verstu ef manni sýnist svo. En samt merkilegt að það skuli vera hægt að gefa okkur Háskólastúdentunum frí á þessum degi, en ekki krökkunum og börnunum í grunn- og framhaldsskóla. Er það ekki annars rétt munað hjá mér að það búið að taka fríið af bæði grunn- og framhaldskólum á fyrsta dessember? Allavega er ekki lengur hægt að gefa þessum greyjum frí á öskudeginum lengur, nema að kennar ákveði að hafa starfsdag á þeim degi, sem mér skilst að sé nú reyndar að verða venjan í flestum skólum.
En hvað á maður svo að gera við þetta frí sem maður fær, Jú ætli maður nýti ekki tækifærið og hlusti á vin minn og bekkjabróðir fyrrverandi Óla Jóa. En hann á að flytja úrtvarpsmessuna á Rás 1 fyrsta desember kl. 11:00. Hann klárar Guðfræðina núna í vor og verður væntalega vígður til prests fljótlega eftir það. Gaman af því, þar sem hann hefur stefnt að þessu lengi drengurinn.
En við að hugsa til þess að við útskrifuðumst saman úr framhaldskólanum og að hann skuli vera u.þ.b. að klára 5 ára Háskóla nám. Fer maður óneitanlega að spá í, hvað er ég eiginlega búinn að vera að gera allan þennan tíma.






sunnudagur, nóvember 27


Næturgestur
Í nótt var í fyrsta skipti frá því að ég flutti inn í þessa kitru mína sem ég svaf ekki einn hérna. En dapurlegt frá að segja þá var næturgesturinn karlkyns. Hannes kom í borgina til að sprikla í einhverju innanhús sparki og vantaði samastað í nótt. En ég held ég hafi verið sá eini af okkur félögunum sem var edrú í gær, svo ég tók það að mér að hýsa peyjann. Kippti efri dýnunni af rúminu hjá mér og henti henni inn í geymslu. Þar lá hann í nótt undir teppi, sem er enn nokkuð vel blandað kattahárum eftir læðuna heima í Eyjum. Held það hafi ekkert angrað hann þó, hefur ábyggilega bara minnt hann á Durg ræfilinn.
Hann var svo almennilegur líka að bjóða mér í bíó til að borga fyrir gistinguna. Held samt að hann hafi bara viljað sýna sig fyrir stelpunum sem hann var að vinna með í Regnboganum. En það skiptir svo sem engu. En það varð reyndar bara til þess að ég frestaði því að læra, og var þess í stað að læra til rúmlega fjögur í nótt á meðan Hannes hraut inni í geymslu. En það skiptir svo sem heldur engu.






miðvikudagur, nóvember 23


Lagið
Nú er það lagið. Sérstaklega skemmtilegt lag í þetta skiptið. Eða sérstakt allavega. Mjög sérstök útgáfa af einu besta rokklagi sögunnar. Stairway to Heven í fluttningi Maríó bræðranna.
Njótið vel.






mánudagur, nóvember 21


Kítl
Boggi kítlaði mig víst, enn eitt svona helvítis keðju-blogg-dæmi. Veit ekki afhverju ég er að standa í þessu, eða jú reyndar. Ágætis afsökun fyrir að fresta því aðeins að læra. Búið að taka mig líka fjandi langan tíma, alltaf svo hugmyndasnauður þegar það kemur að einhverju svona. En jæja allvega, here goes:

Hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
1. Vera Eyjamaður vikunnar
2. Ferðast til annarar heimsálfu, helst sem flestra (held samt ég sleppi Antartíku)
3. Verða ríkur
4. Eignast hús, bíl og íbúð í bænum
5. Klára þessa fjandans verkfræði

Hlutir sem ég get ekki gert:
1. Sýnt sjálfsaga á nokkru sviði
2. Skrifað skiljanlega
3. Teiknað
4. Farið út úr húsi án símans
5. Sungið

Hlutir sem ég get gert:
1. Snúið úr lunda, annað en konan Hannes
2. Lesið
3. Fundið eitthvað annað að gera en ég á að vera að gera. Eins og þetta frekar en að læra.
4. Gengið á höndum (nei bíddu ... nei ég get það víst ekki)
5. Hlaupið á umferðarskilti (það var ekki gott, en afar fyndið)

Hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
1. Greind
2. Fallegt bros
3. Húmor
4. Léttlyndi
5. Skemtilegur persónuleiki

Frægar konur sem heilla mig:
1. Rohna Mitra
2. Keira Knightley
3. Cristina Aguliera
4. Charlize Theron
5. Nicole Kidman

Orð sem ég segi oft:
1. Þú
2. ert
3. Bévítans
4. Blessaður
5. Djöfulsins

Hlutir sem ég sé akkúrat núna:
1. Tölvuskjár
2. Seðlaveski
3. Rúðustrikið stílabók
4. Fjarstýing að Philips græjum
5. Bókin Contemporary Engineering Economics

Manneskjur sem ég ætla að kítla:
1. Sindri Freyr Ragnarsson
2. Elías Ingi "Mónó" Björgvinsson
3. Jóna Heiða Sigurlássdóttir
4. Hannes Kristinn Eiríksson
5. Werner






sunnudagur, nóvember 20


Verzlunarleiðangur
Alltaf er maður sami sveitamaðurinn hérna í borginni. Fór áðan í Nóatún að verða mér úti um eitthvað að borða. Ætlaði að kaupa mér kjúkling í kjötborðinu. Þegar ég var búinn að standa þarna í drykklanga stund, fór ég að velta því fyrir mér afhverju ég fengi aldrei afgreiðslu. Alltaf talað við fólkið sem stóð fyrir aftan mig, en aldrei við mig. Ég var skelþynnur og mikið þreyttur, í hálfgerðu móki þarna, svo ég nennti ekki að vera með nein læti yfir þessu. Þá tók ég eftir því að afgreiðslumaðurinn sagði alltaf einhverja tölu áður en að hann afgreiddi fólk. Því fór ég aðeins að skima í kringum mig, og rak augin í stand með númeruðum miðum. Röllti mér aðeins í burtu og þóttist skoða frosnar rjúpur og eitthvað svo það væri ekki jafn áberandi þegar ég færi að standinum og næði mér í miða.






laugardagur, nóvember 19


Það hafðist
Jæja, þá ætti ég að geta farið að hugsa um eitthvað annað en Vestmannaeyjagöng. Er búinn að vaka, sofa, borða og slefa göng núna undanfarna dag. En núna er þetta loxins búið, bara kynningin eftir á morgun. Og þá verður allt klappað og klárt. Kláruðum óvenju snemma þessa nóttina, svona miðað við undanfarnar. Bara kominn heim fyrir 3 og alles. Þarf reyndar að vaka aðeins lengur, tók það víst að mér að sjá um kynninguna fyrir hópinn. Borgar sig að lesa nokkrum sinnum í gegnum hana áður en maður dembir sér í djúpulaugina. Svo maður standi nú ekki eins og stamandi smástúlka þarna á morgun.
En bíddu já, hvað er ég að tala um ..?
Jú sjáðu til. Ég er nú í viku búinn að vera að vinna fram á nótt í lokaverkefni í Hagverkfræði ásamt tveimur öðrum vöskum mönnum. Við gerðum athugun á arðsemi einkaframkvæmdar við Vestmannaeyjagöng. Endaði með að þetta varð miklu meiri vinna en við áttum nokkurn tíman von á. Endaði í einhverjum rúmum 50 blaðsíðum, og vinnu upp á óteljandi klukkustundir.
En það er búið núna, svo það er bara að fá sér bjór á morgun og hella sér svo út í næsta stóra verkefni, eða tvö ...






fimmtudagur, nóvember 17


Wulffmorgenthaler

Þetta er viðbjóðslega fyndin síða.






þriðjudagur, nóvember 15


Life on mars ?
Þegar ég var að leita að mynd til að setja með póstinum hér að neðan, fann ég þessa hérna til hliðar. Þá rifjaðist upp fyrir mér að ég ætti eftir að setja inn Lagið þessa vikuna. Því ákvað ég að ráða bót á því sem fyrst. Og hér kemur það, Life on Mars? með stór snillingnum David Bowie. Gjöriði svo vel.






mánudagur, nóvember 14


Líf?
Nokkuð sérstök helgi hjá mér. Fyrir það fyrsta, þá drakk ég ekki dropa. Sat heima að læra til tvö um nóttina á föstudeginum. Var svo vaknaður upp úr átta morguninn eftir til að keyra út í Garðabæ að dæma í First Lego Leauge keppninni í Marel. Það var bara nokkuð gaman, lenti líka í rólegheitar djobbi, var að dæma hönnunina á lego vélmennunum og tæknivinnu liðanna. Var laus við hasarinn sem var í kringum keppnina. Kom því sennilega ekkert í sjónvarpinu, sem er ágætt. Djöfull hefði ég viljað fá að taka þátt í svona keppni á mínum barnaskólaárum. Var hálf svektur að sjá ekkert lið að heiman. Vonandi að þeir taki þátt á næsta ári, örugglega hörku skemmtun fyrir bæði nemendur og kennara. Sýndist allavega allir skemmta sér konunglega á laugardaginn. Var að vesenast í þessu lego dæmi til um 5 um daginn. Þá fór ég rakleiðis heim aftur að læra og var að því þar til um 2 laugardagsóttina. Fór svo á fætur fyrir 10 í gærmorgun, og upp í skóla að vinna í hópverkefni. Var þar fram að kvöldmat, fór þá heim, eldaði, borðaði og lærði til eitt um nóttina. Lét það svo reyndar eftir mér að sofa til um 10 í morgun og fór þá aftur að læra. Gaf mér núna bara smá tíma til að éta, er á leiðinni aftur upp í skóla í þessum töluðum/rituðum orðum að reyna að ná að gera eitthvað í þessu hópverkefni áður en ég fer í körfuna í kvöld.






fimmtudagur, nóvember 10


Dómgæsla
Ekki átti ég nú von á því að ég myndi vera að leika mér með lego kubba á 3. ári í verkfræði (álita mál reyndar hvort ég sé á 3. ári). Lét nefnilega plata mig til þess að vera dómari fyrir hönda nema við véla- og iðnaðarverkfræði í fyrstu First Lego leauge keppninni á Íslandi. Hún fer fram núna næsta laugardag í Marel. Byrjar um morguninn og stendur svo fram yfir miðjandaginn. Sem þýðir það að ég verð alveg pottþétt edrú á morgun. Nenni ekki að eyða heilum degi þunnur innan um 200 æpandi börn. En það er svo sem allt í lagi. Fórum á fund áðan í Marel þar sem var verið að kynna fyrir okkur hvernig að þetta gengi allt saman fyrir sig, og hvers væri ætlað af okkur. Þar var okkur boðið upp á bæði pizzu og bjór. Vorum eindregið hvött til að hafa með okkur einn heim. Ég gat nú ekki skorast undan því, og sér sá bjór um að halda uppi rakastiginu í kverkum mínum þessa stundina. Á kynningunni fengum við eitt "kítt" eins og það sem skólarnir nota til að smíða róbótana úr til að skoða og fikta í. Það voru strax komnar stjörnur í augun á öllum strákunum þarna, og ekki laust við það að mann hafi langað að vera 10 ára þegar maður sá þetta. Sigurður Brynjólfs deildarforseti yfir verkfræðideildinni var með okkur á fundinum, og voru menn fljótlega farin að liggja í honum að keypt yrðu nokkur svona "kítt" til að hafa á þriðja árs stofunni. Verst að maður skuli ekki eiga lítinn bróður sem maður gæti gefið þetta í jólagjöf.






miðvikudagur, nóvember 9


NBA
Hef í vetur spilað körfubolta tvisvar í viku í hópi frækinna félaga. Hefur þessi hópur hingað til gengið undir heitinu KÉSHÁM (Karlaklúbburinn Ég sá hana í horninu á Mánabar). En þegar við vorum að spila núna í morgun og mér var litið yfir hópinn þá datt mér í hug annað styttra og ef til vill meira viðeigandi nafn. Því tók ég þá einhliða ákvörðun að breyta nafninu í NBA (Notalega bumbubolta akademían).






þriðjudagur, nóvember 8


Lagið og ammæli
Eitthvað búið að fyrirfarast hjá mér að skella inn laginu síðustu tvær vikur. Sem er víst alveg ótækt. Veit það að mínir dyggustu aðdáendur eru búnir að vera að skipuleggja uppþot í miðbæ Vestmannaeyjabæjar ef ég færi ekki að bæta úr því sem fyrst. Ekki annað hægt en að reyna að koma í veg fyrir það. En þar sem ég er voðalega snauður af hugmyndum þá ætla ég bara að vísa í gamla fólderinn sem ég stofnaði í kringum það þegar ég var með vikulegan lið hérna á síðunni sem ég kallaði Kött vikunnar þar sem ég póstaði einu Cat Stevens lagi á viku. Smellið hér til að komast í fólderinn.
Svo er kannski rétt líka að óska kallinum honum pabba til hamingju með að hafa orðið 53 ára í gær. Hann er víst farinn að lesa þessa síðu af og til. Til hamingju pabbi.






föstudagur, nóvember 4


Tónlist
Fór á tónleika í gær. Þeir voru fínir. Var samt frekar fúll þegar ég frétti að Dr. Spock hefðu afboðað sig vegna listræns ágreinings. Maður verður þá bara að gera sér ferð á næsta gigg með þeim. En þeir sem voru fengnir í staðinn voru virkilega góðir líka, Telepathatics (ekki viss með stafs.). Svo voru þarna lík Benny Crespo's gang, hin fínasta grúbba þar á ferð líka, ekkert heyrt í þeim áður. En var búinn að heyra held ég allavega tvo lög á X-fm með Telepathatics. Svo komu Hoffmenn í lokin og stóðu fyrir sínu. Þótt það hafi verið mál kunnugra að sjaldan hefði sést til Óla jafn edrú á giggi og Viggó hafi þurft að söngla gítarhljómana um tíma þegar hann kippti effektinum úr sambandi. Svo er verið að reyna að narrra mig á aðra tónleika í kvöld. Vaginas eru víst að spila á Dillon, kannski að maður skelli sér bara. Nenni þó ekki að vera að standa í einhverju rúllandi fylleríi. Þarf að vera að vinna í Hagverkfræði verkefninu um helgina. Þyrfti reyndar líka að vera að vinna í hönnunar verkefninu. Sjáum til hvernig það gegnur.






Ég

er fæddur í Eyjum 1981

hef búið í Eyjum nær alla ævi

bý núna í Reykjavík

vinn sem möppudýr í smiðju í Garðabæ

er flokksbundinn Sjálfstæðismaður

veit ekki hvað ég get sagt fleira um sjálfan mig

býð þig hjartanlega velkominn á síðuna

e-Póstur

msn




Lesist á eigin ábyrgð

Blogg-óði maðurinn
Blogg-óða konan
Blogg-óði faðirinn
Þessi flúði land
Passið ykkur á þessum
Síra
Sýra
njé-2
Þessi kom á Þjóðhátíð
Oft gaman að þessum
Þessi er rokk-fróður
Þessi hefur áhuga á listum
Þessi kann að segja sögur
Þessi fær aldrei notið steríós
Þessi stuðlar að fjölgun mannkyns
Þessi ætlar að laga í mér lifrina
Þessi fór til Spáns
Þessi á dýptarmæli
Þessi fílar Bubba óhóflega mikið
Þessi styður Newcastle United
Þessi er mikið fyrir murtuna
Þessi stúderar í Danaveldi
Þessi er í Breskum leikskóla
Þessi kann á rússneskar bongótrommur
Þessi fann Jesúm
Þessi biður að heilsa
Þessi stjórnar bæ
Þessi kann að jóðla
Þessi valdi Hellisey
Foster's Blog
Foster's Net
VKB's Blog

Þetta skoða ég

Fréttir
Mogginn
Vísir
eyjar.net
Háskólinn
VKB
Dalurinn
Ægisdyr
Eyjabloggarar
B2.is
Google
Heimabankinn
Dagskráin
Árgangur '81
Leikjanet
Uncyclopedia
Encyclopedia
KÉSHÁM (NBA)
Öll tónlist
Eyverjar
IMDb
TV.com
YouTube
Reykjavík FM

Gamalt og mis gott

mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008
september 2008
október 2008
nóvember 2008
desember 2008
janúar 2009

Þakkir fá

blogskins
Main Site
Powered by TagBoard Message Board

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

eXTReMe Tracker