![]() |
|
|
fimmtudagur, desember 29
Dauði og djöfull Nenni ekki að skrifa mikið. Var að koma heim eftir að vesenast í áramóta-stússi VKB. Er þreyttur og ætla að fara að sofa fljótlega. Verður spennandi að sjá hvernig þetta gegnur á gamlárskvöld. En það er búið að eyðileggja það samt fyrir mér að ég komist í almennilega stemmningu. Búinn að fá út úr tveimur prófum núna í röð sem ég féll í. Búinn að gleyma því hvað þetta er ógeðslega sárt þegar maður virkilega gerði sér vonir um að ná. Þetta er þá formlega lélegasta önnin mín í Háskóla, eða reyndar í allri skólagöngu. Þótt þetta hafi byrjað vel með að fá út úr tvennu sem ég fékk bestu einkunnir sem ég hef fengið í Háskóla. En svo kom þetta. Maður er alvarlega að spá hvort maður ætti ekki bara að hætta þessu helvíti og fara að vinna inni í Lyftu. Líkar hvort eð er betur í vinnu en í skóla, alla tíð gert. En ég ætla nú ekki að taka neina slíka ákvörðun fyrr en ég er allavega búinn að sofa á þessu.
þriðjudagur, desember 27
Úffff Þá er afar erfiðum vinnudegi lokið. Lét plata mig til þess að fara í vinnu inni í Skipalyftu í jólafríinu. Var reyndar bara alveg ágætlega gaman, fyrir utan all sæmilega þynku. Fór í hina árlegu afmælisveislu hjá Andra og Hjalta í gær. Var alveg ljómandi gaman að vanda. Afrekaði það reyndar að fara í þrjú partý fyrir ball. Fyrst heima hjá Hannesi, var nú reyndar ekki mikið partý, sátum nokkrir að horfa á Bowie á DVD á meðan aðrir spiluðu poker. Svo var það afmælið, og restaði þetta svo á að koma við í smá partýi heima hjá Jónu Heiðu á leiðinni á ballið. Við Siggi drukkum koníakið sem við unnum í Pöbbquiz-inu á littlu jólunum hjá VKB. Ég var reyndar held ég duglegri í því en Siggi, enda var hann enn að hrista af sér afleiðingar síðasta kennedrís þegar við byrjuðum. Það sást líka alveg á mér. Skilst að ég hafi verið farinn að draga ýsur undir lokin á ballinu. Svo sem ekkert í fyrsta skipti sem ég legg mig aðeins inni í Höllinni, og líklega ekki það síðasta heldur.
laugardagur, desember 24
Jólakveðja Nenni ekki að senda jólakort eða vesenast í einhverju slíku. Svo þið sem nennið að lesa þessa síðu fáið bara jólakveðjur hérna.
þriðjudagur, desember 20
Próf, bjór, bolti og jólalög Jæja, þá er þessari prófatörn lokið. Ekkert alltof sáttur við árangurinn, frekar pirraður yfir prófinu í gær. En ég ætla ekki að fara að þreyta ykkur með að væla eitthvað frekar yfir því hérna. Þið getið bara hringt í mig ef þið viljið endilega hlusta á mig barma mér yfir prófunum. Bindindið var rofið í gær, við Boggi sátum hérna í kitrunni minni og sötruðum bjór fram á nótt. Gáfum okkur reyndar tíma frá drykkjunni til að kíkja í körfubolta í síðasta skipti fyrir jól. Svei mér þá ef þetta var bara ekki skemmtilegasta skiptið til þessa, þótt það hafi framan af verið frekar óþægilegt að hlaupa með hálffullan maga af bjór. Tókum ákvörðun um að vera ekkert að þvælast niður í bæ í skíta veðri á mánudagskvöldi. Sátum frekar bara hérna heima og spjölluðum til rúmlega fjögur held ég, og leystum öll heimsins vandamál. Svo er það bara að ruska til í kitrunni, pakka niður og svo skipið í fyrramálið og heim til Eyja í jólin. Fyrst maður er laus úr prófunum þá getur maður gefið sér tíma til að komast í smá jólafíling. Því ætla ég að deila með ykkur nokkrum af mínum uppáhálds jólalögum. Njótið heil. John & Yoko - Happy Xmas (War is Over) Bowie & Crosby - Little Drummer Boy The Pouges & Kristy Mccoll - Fairytale of New York Stevie Wonder - Someday At Christmas
sunnudagur, desember 18
Þurkur Svei mér þá, ef þetta er ekki bara fimmta af sex helgum sem ég er edrú. Og meira að segja fjórða helgin í röð. Þetta held ég hafi nú bara ekki gerst síðan, síðan ... Jaaa, ætli þetta hafi nokkuð gerst síðan ég var eitthvað um 16 - 17 ára gamall. Sem er nú skuggalega nálægt að vera 10 ár síðan. Úfff hvað maður er að verða aldraður, en ekkert þroskast maður. Eða jú kannski, held ég hafi tekið þroska-kipp þennan mánuð sem ég er búinn að vera edrú. Allavega var ég kominn á fætur í morgun (á sunnudagsmorgni NB.) klukkan fimm mínútur yfir sjö. Held ég sé að nálgast sjötugt í þroska núna. Nei nei, reyndar ekki. Á próf á morgun, síðasta prófið, og ákvað að vakan frekar tímanlega í morgun og læra og fara þá fyrr í bólið í gærkvöldi. Til að halda sólahringnum á réttu róli fyrir prófið.En hver veit nema þurkatíðin taki enda annað kvöld. Heyrðist það á Borgþóri í gær að það væri hugur í honum og Hannesi vökupeyja, eða Ásu eins og mig minnir að ég hafi ákveðið að kalla hann á Þjóðhátíðinni til að aðgreina hann frá Hannesi Kristni Eiríkssyni.
föstudagur, desember 16
3 dagar til prófloka, 5 dagar til heimkomu og 8 dagar til jóla Nú eru ekki nema 3 dagar í síðasta prófið og ekki nema 5 dagar þá í að ég fari heim til Eyja í jólafrí. Ekki laust við að maður sé farinn að hlakka til þess, bæði að komast heim, og jólanna. Af því tilefni er ég búinn að taka könnunina út hérna til hliðar, og búinn að setja upp jólaskraut í staðinn. Enn fyrir ykkur sem þyrstir að vita það, þá voru niðurstöður könnunarinn eftirfarandi. Spurt var, Kemuru oft hingað? 7 svöruðu Já, eins oft og ég get, eða 32% 4 svöruðu Svona ca. daglega eða svo, eða 7% 8 Svöruðu Nei nei, bara af og til, eða 29% 7 svöruðu Nei, fyrsta skipti núna, eða 17% og 6 voru eitthvað úti á þekju og svöruðu Bíddu hvar er ég ..? Hvernig komst ég hingað ..?, eða 19% Alls greiddu 32 atkvæði í þessari könnun.
þriðjudagur, desember 13
Próf og lag Þá er öðru prófi lokið. Var öllu átaka minna en eðlisfræðin. Alveg fáránlega "sanngjarnt" próf. Segir maður ekki annars að próf séu "sanngjörn" þegar maður kann ekki við að segja að þau séu létt? Allavega, þá er þetta "sanngjarnasta" próf sem ég he tekið í Háskólanum.En nóg af því. Finnst ykkur ekki kominn tími á nýtt lag? Mér finnst það allavega. Lagið sem varð fyrir valinu að þessu sinni er mikill eðal smellur með elli smellum. Það er lagið I want to break free með Queen. Það rifjaðist upp fyrir mér núna um daginn, þegar ég heyrði það í auglýsingu, að þetta er fyrsta uppáhaldslagið mitt sem ég man eftir. Veit svo sem alveg afhverju það var. Það var út af myndbandinu, mér fannst það nefnilega svo sniðugt að það væri karla þarna, með yfirvaraskegg alveg eins og pabbi, klæddur eins og kona að ryksuga. Kallaði þetta líka alltaf ryksugulagið. Hvað er fyrsta uppáhaldslagið ykkar sem þið munið eftir?
sunnudagur, desember 11
Þungt fall Maður var nú sleginn harkalega niður á jörðina aftur. Gekk hreint afleitlega í þessu eðlisfræðiprófi í gær. Bind ekki beint miklar vonir við að ég nái því. Það er allavega nokkuð víst að ef ég slefa í gegnum þetta, þá eru einhverjar heilladísir sem brosa við mér. En það þýðir víst ekki að vera að velta sér upp úr því. Engum hægt að kenna um þetta nema mér sjálfum. Og rétt að fara að einbeita sér að mikilvægari hlutum en að velta sér upp úr slökugengi í gær. Próf í verkefnastjórnun framundan á þriðjudaginn. Maður verður nú að lesa eitthvað fyrir það, þó það verði nú örugglega öllu viðráðanlegra en eðlisfræðin. Verst samt að ég missi af öllum líkindum af körfuboltanum annað kvöld. En smá pæling í lokin. Sórfyrirtæki eru alltaf að styrkja gerð íþróttamannvirkja sem svo eru skírð í höfuðið á þeim. Afhverju hefur Apple aldrei borgað fyrir einhverja þessara halla? Sem héti þá MacArena ??? Lélegur brandari, ég veit það. En æi maður hálfsteikir í sér hugann í þessum próflestri.
miðvikudagur, desember 7
Fyrsta einkunn komin í hús Ég er búinn að fá út úr hönnunar áfanganum. Get ekki annað sagt en að ég sé vel sáttur við útkomuna. Hæsta einkunn sem ég hef fengið í háskóla. Liggur við að manni líði bara eins og í framhaldskóla. Samt þurfti aldrei að hafa svona mikið fyrir 8,5 í framhaldskóla. Þurfti reyndar ekki heldur að hafa svona mikið fyrir 10 í framhaldskóla. En engu að síður var þetta virkilega til að létta hjá manni lundina. Gott að byrja prófatörnina á þessu. Nú er bara að koma sér almennilega í gírinn að læra fyrir prófið á laugardaginn. En það á örugglega ekki eftir að bera jafn ríkulegan ávöxt og hönnunin. Vona samt að það verði nóg.
sunnudagur, desember 4
Lagið Svo lagið núna er myndband. Smellið á myndina til að spila það. |
Ég er fæddur í Eyjum 1981
Lesist á eigin ábyrgð Blogg-óði maðurinn
Þetta skoða ég Fréttir
Gamalt og mis gott mars 2004 Þakkir fá blogskins |