![]() |
|
|
sunnudagur, febrúar 26
Topp græjur Ég er búinn að uppgötva snilldar þætti á Skjá 1. Þótt ég hafi aldrei verið neinn áhugamaður um bíla, þá féll ég alveg killi flatur fyrir Top Gear. Hef svo sem alltaf verið veikur fyrir skemmtilgu fræðsluefni í sjónvarpi, og þessir þættir eru náttúrulega nokkuð fræðandi. Svo eru þessir þáttastjórnendur líka heljarinnar húmoristar, og þræl gaman af þeim alveg. Hugmyndirnar sem þeir fá eru líka algjör snilld, svo er myndatakan líka á köflum alveg mögnuð. Sem kristallaðist í þættinum sem var áðan, þeir komu með þrjá mismunadi blægjubíla hingað til Íslands að prófa þá og bera saman. Voru rosalega flottar myndir af landslaginu, og þeir lofsungu landið og náttúrufegurðina út í eitt, hrósuðu meira að segja Víking gylltum. Sennilega ein besta landkynning sem ég hef séð, ekki laust við að manns litta íslenska hjarta hafi slegið óvenju stolt þarna um tíma. Líka gaman að sjá landið aðeins svona frá sjónarhorni utanaðkomandi manna. Ef þú, lesandi góður, misstir af þessum þætti (sem er alls ekki ólíklegt því þeir eru sýndir á hreint fáránlegum tíma) þá mæli ég eindregið með því að þú reynir að sjá hann í endursýningu. Þessir þættir eru, ef ég man rétt, endursýndir í lok dagskrár á fimmtudögum, og örugglega oftar, fyrst þetta er á Skjá 1.En að lokum smá hérna í tilefni af því að það sé bolludagurinn á morgun.
þriðjudagur, febrúar 21
Skipið í fyrramálið Þá er þessari Vestmannaeyjareisu alveg í þann veginn að ljúka. Er svo sem lítið búinn að gera annað en að flatmaga heima hjá mömmu og pabba þennan tíma. Lét reyndar plata mig aðeins út strax og ég skreið á skerið á föstudagskvöldið. Hafði rekist á Leó Snæ á MSN fyrr um daginn. Kíkti í heimsókn til hans um kvöldið. Sem endaði náttúrulega með sötri, eins og von er á þegar tveir þetta votir menn koma saman. Það endaði auðvitað með að kíkt var á Drífandabar sem endaði náttúrulega með að væri kíkt á Lundann. Enda í leiðinni heim. Var frekar fámennt á djamminu þessa helgi, enda sennilega um hálfur bærinn á vertíð. Það þótti mér bara afar góð tilbreyting frá örtröðinni í borginni. Held ég sé að verða búinn að eyða alltof miklum tíma í Reykjavík, þegar það er orðin tilbreyting fyrir mann að fara á djammið á hálftómum Lunda. Maður sem var kominn í æfingarhópinn með landsliðinu á sínum tíma.En jæja, rétt að fara að finna sig til fyrir skipið í fyrramálið. Bæ.
föstudagur, febrúar 17
Deifð Voðaleg deifð eitthvað búin að vera yfir kommentunum við bloggið mitt undanfarið. Hlýta vera farinn að blogga um svona óháhugavert efni. Er að íhuga að byrja að blogga um kúk eins og trillukallinn. Held samt ég sleppi því. Að minnsta kosti í þetta skiptið. Þarf að fara að gera mig tilbúinn í Herjólf. Er á leiðinni heim til Eyja um helgina, og jafnvel ögn lengur, í fyrsta skipti frá því ég fluttist aftur hingað í borgina eftir jólin. Bæ.
miðvikudagur, febrúar 15
Af samgöngumálum Þá virðist það vera orðið ljóst að ferjulægi í Bakkafjöru verður fyrsti kosturinn í framtíðar samgöngum milli lands og Eyja í augum samgönguyfirvalda. Verð samt að viðurkenna að mér þykja þessar kostnaðratölur, sem lekið hefur verið í Vestmannaeysku fjölmiðlana í dag, svolítið undarlegar. Hef svo sem engan grundvöll til þess að vera að draga þær sem slíkar eitthvað í efa, en engu að síður þá þykir mér það svolítið undarlegt að það skuli ekki vera tekið inn í umræðuna rekstrarkostnaður við þessa nýju ferju og þetta ferjulægi. Í það minnsta, þá kostar reksturinn á Herjólfi ríkissjóð rúmlega hálfan milljarð á ári eins og þetta er í dag. Auk þess sem Þorlákshafnarbær sér náttúrulega um allan rekstur og viðhald á höfninni í Þorlákshöfn.Gæti svo sem verið að þetta væru bara særindi í mér yfir að horfa á meðan þeim kosti sem hefur í mínum augum verið númer eitt í samgöngumálum Vestmannaeyja er sópað af borðinu, þ.e. göng. En maður verður víst að sætta sig við það. Það breytir þó ekki því að ég vil fá ákveðin svör við því hvort hætta sé á að það verði algerleg ófært á milli lands og Eyja oftar en nú er. Því mynni þessa nýja ferjulægis verður náttúrulega fyrir opnu hafi. En ég er persónulega þeirra skoðunar, að kostur sem þýðir mikla aukningu á dögum þar sem ófært er bæði í lofti og á legi sé ekki ásættanlegur. Það gerist bara það oft að maður hreinlega verður að komast upp á land ef maður er í Eyjum, hvort sem það sé til að komast til sérfræðilæknis eða í jarðarför eða annað sem maður annað hvort getur ekki, eða vill ekki sleppa. En það verður víst bara að koma í ljós. Ég ætla þó að vona að þetta verði ekki keyrt það hratt í gegn, vegna þess að fólk sé orðið of þreytt á að bíða eftir úrbótum á samgöngumálum, að það verði látið liggja á milli hluta að láta athuga almennilega hvort þetta þýði aukningu á samgöngulausum dögum milli lands og Eyja.
sunnudagur, febrúar 12
1 2 Selfoss Gleymdi bílnum á Selfossi í gær. Gleymdi honum reyndar ekki, var ekki beint í ökuhæfu ástandi þegar ég lagði af stað aftur til Reykjavíkur. Fannst bara fyndnara að segjast hafa gleymt bílnum. Og já ég veit ég er með ömurlegan húmor. En já, hvað var ég að gera á Selfossi. Ég fór nefnilega á fund í gær. Reyndar ekki á Selfossi, en á Stokkseyri. Vorum að ganga frá stofnun Kjördæmasamtaka ungra Sjálfstæðismanna í suðurkjördæmi (KUSS). Fundurinn var haldinn á Draugasetrinu á Stokkseyrir. Eftir fundinn fórum við í gegnum Draugasetrið, og ég verð bara að segja að þetta var hin fínasta skemmtun. Mæli eindregið með þessu. Væri til í að fara þarna í gegn með Sigga Birni og Haffa littla. Eftir það var okkur svo boðið upp á öl og röllt með okkur í gegn þar sem verið er að byrja að ganga frá trölla, álfa og norðurljósa safni í sama húsi. Verður án nokkurs vafa virkilega flott hjá þeim, og eitthvað sem maður þarf endilega að gera sér ferð til þess að skoða þegar það verður komið í gagnið. Þá var haldið í mat á Selfossi, þar sem ég þakkaði fyrir að þekkja sem fæsta þarna af nokkru ráði, því keppst var við að segja sem svæsnasta sögur af hverjum öðrum. En inn á milli saganna gafst tími fyrir alvarlegar umræður. Þar sem meðal annars spunnust miklar umræður um stöðu leðurgagnkynhneigðra í samfélaginu. Sem okkur þótti afar afskiptur hópur. Stendur jafnvel til að stofna hagsmunasamtök leðurgagnkynhneigðra til að reyna að vega upp á móti allri umræðunni sem leðurhommar fá. Því næst var okkur boið í smá skemmtun á vegum Hersis félags ungra Sjálfstæðismanna á Selfossi. Þar rann en meiri bjór, sem var einmitt orsök þess að bíllinn varð eftir á Selfossi. Lukkulegt að bú hérna á Stúdentagörðunum þá, ekki hefði ég gengið í skólann ef ég byggi enn í Grafarvoginum
miðvikudagur, febrúar 8
Bjúgupasta, kosningar og lag Bauð Sindra í gær í bjúgupasta. Hann lét í það minnsta sem honum þætti það gott. Ég var ansi ánægður að fá tækifærið til þess að elda fyrir einhvern annan en sjálfan mig. Þó svo að mér líki það að mestu leiti mjög vel að búa einn. Þá er ýmislegt sem ég sakna frá því þegar ég var að leigja með öðrum. Þar á meðal að elda almennilega. Það er bara ekki eins að vera að stússa í að elda eitthvað sem kannski tekur sæmilegan tíma. Og sitja svo bara einn að éta það og fá ekkert "feedback".Fyrst ég var byrjaður að gera eitthvað fyrir aðra, þá fór ég í það í dag að sinna eftirliti með stúdentakosningunum í dag. Var að taka niður kennitölur hjá fólki. Komst að því að ég er alveg agalegur í að átta mig á aldrinum á fólki. Brá nærri því í hvert einasta skipti sem ég heyrði árið sem þetta fólk var fætt. En samt gaman af því að það kom einn sem er fæddur réttu ári á eftir mér. Langaði til að standa upp og dansa. En það hefði sennilega verið óviðeigandi. Æi, þetta er styttra en ég ætlaði að hafa þetta. Veit hvernig ég redda því. Hendi inn lagi. Lagið að þessu sinni er með bresku grúbbunni Artic Monkeys, en þeir eru víst að gera allt vitlaust í Bretaveldi þessa dagana. Platan þeirra Whatever people say I am, thats what I'm not selst víst eins og heitar lummur þessa dagana. Og lagið sem ég ætla að bjóða ykkur upp á að þessu sinni er einmitt síðasta lagið á þeirri plötu. A certain romance geriði svo vel.
mánudagur, febrúar 6
Crash Jæja, þá er pústið bílnum komið á lag. Þori aftur að viðra bílinn eftir kl. 10 á kvöldin. Var reyndar meira að en ég vissi af, og kostaði því töluvert meira. En jæja, það tekur því ekki að vera að velta sér upp úr því. Horfði á Crash í gær. Yngri myndina sko, ekki þessa með James Spader. Var búið að standa lengi til hjá mér að sjá þessa mynd. Stóð algerlega undir væntingum þótt ég væri ekkert búinn að heyra nema gott um hana, og það mikið gott. En hinsvegar mæli ég ekki með því að horfa á svona áhrifamikla mynd svona þunnur eins og ég var. Var lengi að jafna mig eftir myndina. Því lagði ég ekki í það þegar reynt var að draga mig með á Hostel um kvöldið. Svo treysti ég mér heldur ekki beint lengi út úr húsi. Allt þetta viský sem Birkir bauð manni uppá hafði greinileg áhrif á magann á manni. En ég ætla ekki að fara að ræða það neitt meira.
miðvikudagur, febrúar 1
Æi Nokkuð miður skemmtilegt átti sér stað í gær. Boggi hringdi í mig og bað mig um að skutla sér út á Höfða, því hann var að spá í að verzla sér bíl og skipta Lödunni út. Það var svo sem ekki svo slæmt. En þegar ég var að skutla honum til baka aftur þá gaf pústið sig. Því fylgdu náttúrulega slík beljandi læti að ég þori ekki að keyra bílinn eftir kl. 10 á kvöldin svo ég verði ekki kærður fyrir ólæti. Sem skapaði smá vandamál þegar ég lét plata mig til þess að kíkja í bíó í gærkvöldi með Sigurði Birni og Haffa Dan. En sem betur fór, þá vorkenndi Sigurður mér nægilega mikið til að gera sér ferð eftir mér hérna út í 101 á leiðinni í bíó. En þótt ég hafi komist klakklaust á leiðarenda, þá gekk þessi bíóferð ekki alveg eins og til var ætlast. Því þegar á hólminn var komið þá var víst ekki verið að sýna myndina sem við stefndum á að sjá. Þess vegna, í stað þess að fara og sjá hryllinginn í Hostel sáum við húmorinn í Dick and Jane. Ætla ekkert að fara að hafa mörg orð um myndina, bara ágætis afþreying, fór ekki inn með miklar væntingar. Og varð því vitanlega ekki fyrir vonbrigðum.
Ljóskubrandari Svei mér þá, ef ÞETTA er bara ekki besti ljóskubrandari sem ég hef séð. |
Ég er fæddur í Eyjum 1981
Lesist á eigin ábyrgð Blogg-óði maðurinn
Þetta skoða ég Fréttir
Gamalt og mis gott mars 2004 Þakkir fá blogskins |