![]() |
|
|
föstudagur, apríl 28
Af mússíck Mér voru að áskottnast ein tæplega 700 lög með snillingnum Bob Dylan. Þetta torent dæmi er snilld, nú nær maður ekki lengur í eitt og eitt lag í einu, ó nei, ekki í eina og eina plötu heldur, nú nær maður í heiluferlana í einu. Í þessum pakka voru allar breiðskífur kappans auk glæsilegs safns af bootleg-um. Þar á meðal 15 laga plata með dúettum með Dylan og Van Morrison. Ég get ekki annað en leyft ykkur að njóta þessa með mér, svo ég ætla að bjóða ykkur að hlusta á Bob og Van flytja saman lagið Tupelo Honey Why Must I Always Explain, njótið vel.Ekki nóg með það, heldur hringdi Þórir líka í mig áðan til þess að flytja mér þér mögnuðu fréttir að Lemmy og félagar í Motörhead væru á leið til landsins og að engir aðrir en snillingarnir í HAM ættu að hita upp fyrir þá. Ekki amaleg blanda það, og ég get ómögulega séð hvernig maður geti látið það fram hjá sér fara.
fimmtudagur, apríl 27
Euler's formula Veit ekki, kannski að ég sé bara að verða búinn að læra mig vitlausann, en mér fannst --> þetta <-- ógeðslega fyndið.En ég er að verða geðveikur á að reyna að muna hvað þetta lag heitir. Veit ég á að vita það.
þriðjudagur, apríl 25
Af auglýsingum ... Þegar ég var lítill sagði Tolli bróðir við mig: "Bubbi, þú átt eftir að fá brunandi bíladellu" ... ... Nú er ég með algjöra bíla dellu, skoða bílablöð og svona. Ég er ekkert áberandi við þetta fletti þessu í sjoppum og á tannlæknastofum, svona eins og maður sem er að skoða klámblöð ... Það er svo sem að verða nokkuð langt síðan ég hef farið til tannlæknis, en ég man samt ekki til þess að það hafi verið klámblöð hjá Hartmanni.
fimmtudagur, apríl 20
RVK Þá er ég kominn í kitruna mína hérna á Suðurgötunni aftur eftir annasama páska. Hafði víst verið með einhverjar yfirlýsingar um að fá mér ekki í glas nema tvisvar nú um páskana, en það var víst eitthvað minna um efndir hvað það varðar. Kom með fyrri ferðinni í gær og eyddi megninu af gærdeginum að útrétta varðandi afmælisgjafir. Það voru nefnilega flestir ættingjar mínir svo sniðurgir að gefa mér peninga eða gjafakort í afmælisgjöf, svo ég þurfti að redda þessu öllu sjálfur. Allir nema amma sem gaf mér glæsilega mynd sem Gvendur Fúsa tók með breiðlinsu ofan af Heimakletti yfir allan bæinn og yfir eyjarnar sunnan af Heimaey, þar sem Brandurinn rís áberandi fegurstur upp úr sænum fyrir miðri mynd. Ég hengdi mynda upp yfir rúminu mínu í gær með miklum molbúahætti sökum hamarsleysis.Það var þó fínt að fá að sjá um sín gjafakaup sjálfur, enda eignaðist ég nokkra mjög þarfa hluti svo sem utan á liggjandi harðan disk, enda að verða búinn að fylla tölvuna mína, þriggja diska DVD útgáfu af Shawshank Redemption og þráðlausa mús með Bluetooth, svo ég get loxins tengt símann við tölvuna og þarf því ekki að liggja í Hannesi lengur ef mig langar til þess að senda hringitón í símann.
föstudagur, apríl 14
Aftermath Ég er með harðsperrur í fótunum. Ég dansaði í gær. Já þú heyrðir rétt (eða kannski öllu frekar last rétt) ég var að dansa. Svo sem ekki annað hægt þegar Stuðpolkinn hans Gylfa Ægis er settur ítrekað í, að ég tali nú ekki um Loverboy. Afrekaði það meira að segja að fækka ögn fötum þarna á tímabil, vona bara innilega að það hafi ekki náðst myndir af vömbinni á mér. En fjárinn, þetta var þess virði. Skemmti mér alveg gífurlega vel, þó svo að hluti af afmælisgjöfinni minni hafi verið drukkin frá mér. Hafði haft svolitlar áhyggjur af því þegar ég frétti að það yrðu engir skemmtistaðir opnir síðustu nótt, svolítið uggvænleg tilhugsun að sitja uppi með þessa vini mína langt fram á nótt. En það rættist nú heldur betur úr þessu. Enda er ég líka miklu meiri partýkall í mér heldur en nokkurntíman ballkall. Líka gaman að vera í partýi þar sem ég fíla hvert einasta lag sem kemur, enda var tónlistin "hand picked" fyrir þetta til að fitta vel í gott partý með góðu fólki.
sunnudagur, apríl 9
25 Þá er ég orðinn tuttugu og fimm ára gamall, og bara nokkuð ern miðað við aldur. Enda óþunnur. Fékk mér nefnilega ekkert í glas um helgina, þó það hafi nú varið ansi freistandi að reyna drekka frá sér allt minni um hversu hryllilega aldraður maður sé að verða. En mér fannst það hálfgert svindl að halda upp á afmælið mitt tvisvar. Því eins og kemur fram í tilkynningunni hér að neðan, þá ætla ég að halda upp á afmælið mitt á skírdag.Ég ákvað að skrifa disk fyrir veisluna, svo ég gæti haft einhverja tónlist þarna í gangi sem ég fíla og hef gaman af að fá mér í glas við. Byrjaði því að reita eitt og eitt lag úr safninu mínu hérna á tölvunni. Þegar ég var búinn að vinna mig í gegnum allt safnið var ég kominn með 11 tíma af tónlist, sem mér þótti full mikið. Nenni ekki að sitja uppi með ykkur fram undir morgun. Ætla ekki að endurtaka skírdagspartýið frá því fyrir nokkrum árum, þegar maður var ekki að skila sér heim fyrr en einhvertíman undir klukkan þrjú á föstudaginn langa. En eftir mikla yfirlegu, tókst mér að skera tónlistina niður í rúma fimm og hálfan tíma. Sem þýðir að ég verð að byrja veisluna frekar snemma ætli ég að ná að komast í gegnum öll lögin áður en ég hendi ykkur út.
miðvikudagur, apríl 5
Tilkynning Ég hef ákveðið að fagna 25 ára afmælinu mínu í Eyjum um páskana. Nánar tiltekið í Eyverjasalnum á skírdag (það er fimmtudagurinn fyrir páska ef einhver vissi það ekki). Ég ætla mér ekki að bjóða neinum formlega, alveg með það á hreinu að ef ég fer út í eitthvað svoleiðis þá verður það bara til þess að ég gleymi einhverjum sem fer í fýlu yfir því. Ef þú telur þig eiga eitthvert erindi í þessa veislu, þá eru allar líkur á að svo sé, svo endilega láttu sjá þig. Það er ekki öruggt að ég komi til með að bjóða upp á neitt í þessu afmæli, svo ef þú ert bara að koma þarna til að ná þér í ókeypis áfengi, þá geturu sleppt því. Kveðja, Hinn alduraði veisluhaldari
mánudagur, apríl 3
Fuglaflensa Það er ekki laust við að maður sé að verða svolítið þreyttur á þessu "hæpi" sem hefur verið í kringum þessa fuglaflensu. Það tala allir fjölmiðlar um þetta eins og þetta sé einhver stórhættulegur andskoti. En á síðustu þremur árum hafa aðeins rúmlega 100 manns látist úr þessu um allan heim. Hvað haldið þið að margir hafi látist úr "venjulegri" flensu á þessum tíma? Og nær allir sem hafa látist úr þessu eru frá löndum þar sem umgengni um alífugla er mörgum áratugum á eftir því sem tíðkast hér. Í mörgum þessara Asíuríkja, þar sem hvað mest af þessu hefur verið að koma upp, þar hefur hinn almenni borgari hvorki aðgang að kæli né frystigeymslum og þarf því að geyma dýrin lifandi til að halda kjötinu fersku og slátra þeim svo bara undir húsvegg hjá sér. Menn tala líka alltaf eins og það sé bara tímaspursmál hvenær að veiran stökkbreytist þannig að hún berist á milli manna, en það er ekkert sem segir að það sé öruggt að það komi nokkurntíman til þess.Ekki misskilja mig, mér finnst það fullkomlega eðlilegt að alþjóðayfirvöld eins og WHO hafi áhyggjur af þessu, og að yfirvöld allra landa ættu að gera einhverjar áætlanir um hvernig eigi að bregðast við þessu ef þetta verður að alvarlegu vandamáli. En eins og staðan er í dag eru meiri líkur á því að þú látist úr venjulegri flensu en fuglaflensu. Dramatíkin í kringum fuglaflensuna er bara í fjölmiðlum.
laugardagur, apríl 1
1. apríl Í dag er fyrsti apríl, það þýðir ýmislegt. Það þýðir meðal annars að fjölmiðlar koma til með að reyna að láta landsmenn hlaupa apríl og að það eru þrír mánuðir í að lundaveiðitímabilið hefjist og að það eru einn og hálfur mánuður í síðasta prófið á þessari önn og að það eru 125 dagar í Þjóðhátíð og að það eru 56 dagar í bæjastjórnarkosningar og að það eru 8 dagar í að ég verði 25 ára og að það eru 13 dagar í að ég haldi upp á það að vera orðinn 25 ára og að það séu tveir og hálfur mánuður síðan Siggi Björn og Laui komu út úr skápnum og ákváðu að gifta sig í sumar og að það eru 63 dagar í aðalfund VKB og að það eru og að það eru 97 dagar í Goslokahátíð.Hvað af þessu hadið þið svo að hafi verið aprílgabb? |
Ég er fæddur í Eyjum 1981
Lesist á eigin ábyrgð Blogg-óði maðurinn
Þetta skoða ég Fréttir
Gamalt og mis gott mars 2004 Þakkir fá blogskins |