*
*
*
*
sunnudagur, maí 28


Sigur
Þá er þessari kosningabaráttu lokið, og maður getur aftur farið að eyða einhverjum meiri tíma heima hjá sér heldur en bara meðan maður sefur. Sem hefur ekki verið mikið undanfarna viku. Búin að vera all lagleg törn, en það var sko algjörlega þess virði. Hreint ólýsanleg tilfinning að fá loxins að taka þátt í kosningum þar sem maður vinnur afgerandi sigur. Tók náttúrulega þátt í kosningunum fyrir fjórum árum, þar sem við misstum einn mann úr bæjastjórn, þá var maður akkurat hinu megin á tilfinningaskalanum miðað við í gærkvöldi. Alþingiskonsingarnar fyrir 3 árum voru lítið skárri en bæjarstórnar kosningaranar árið á undan, og þá setti líka hörmulegt slys pólitíkina svolítið í samhengi fyrir mann við það sem virkilega skiptir máli. Svo maður sá ekki ástæðu til þess að vera að reyna að búa sér til einhvern sigur til að vera að fagna fram á morgun. En í gærkvöldi var mun léttara yfir manni og sigurinn ótvíræður, og fögnuðinum því framhaldið langt fram á morgun, þrátt fyrir takmarkaðann svefn vikuna á undan. Var ekki að skila mér heim fyrr enn einhvertíman um 6. En það tók sennilega um klukkutíma að komast heim, því ég tók þá miðurgáfulegu ákvörðun að labba heim samferða frambjóðanda. En náttúrulega allir sem við mættum þurftu að ræða við hann.






fimmtudagur, maí 18


Tónlistarklukk
Andri Hugo var að klukka mig. Leiðast þessi klukk yfirleitt alveg gífurlega mikið, en þetta er með skárra móti. Enda smíðað af Andra sjálfum. Þetta tók drykklanga stund, en hér á eftir fer afrakstur erfiðisins:

1. Með hvaða hljómsveit eða flytjanda áttu flestar hljómplötur?
Bob Dylan trónir lang efst á þeim lista með eithvað um 50 plötur.

2. Hvað var síðasta lagið sem þú hlustaðir á?
Oh My God með Kaiser Chiefs í bílnum á leiðinni heim úr vinnu.

3. Hvaða hljómplata er mest á fóninum hjá þér þessa dagana?
Hlusta voðalega lítið á tónlist þessa dagana, þ.e. eftir að ég kom til Eyja. En Employment með Kaiser Chiefs er í spilaranum í bílnum, svo það er það sem maður hlustar svona mest á.

4. Spilarðu á eða langar þig að læra á eitthvað hljóðfæri?
Nei, kann ekkert á hljóðfæri (þótt ég kunni byrjunina á Nothing Else Maters á gítar). Mig langar til þess að læra á hljóðfæri, en þar sem ég er fatlaður bæði á tón og takt þá held ég að það sé borin von ...

5. Hver er uppáhalds íslenska hljómsveitin þín?
Úffff þar fórstu alveg með það. Margt mikið gott til íslenskt. Dr. Spock er eitthvað það magnaðasta sem ég hef séð á sviði, svo á Ham alltaf horn í hjarta mínu. Hélt rosalega mikið upp á Utangarðsmenn þegar ég var 13 - 14 ára gamall. Svo eru líka til miklir snillingar eins og Megas og KK, og auðvitað Villi Vill. Svo ætli ég segi ekki bara pass.

6. Hvaða hljómsveit sástu síðast á tónleikum?
Ætli það hafi ekki verið Dr. Spock á Gauknum. En af svona "stóru" þá var það Metallica í Egilhöll. Já ég fór ekki á neina tónleika síðasta sumar og ég skammast mín fyrir það.

7. Hvað er bestu tónleikarnir sem þú hefur séð?
Ham á Gauknum var alveg mögnuð upplifun, hreint ólýsanleg stemmning. Svo var líka alveg ógeðslega gaman á Metallica, þótt ég hafi ekki mikið hlustað á þá undanfarin ár, þá fílaði síðhærði unglingurinn inni í mér sig í botn á þeim.

8. Hver er lélegasta hljómsveit sem þú hefur séð á tónleikum?
Veit það ekki.

9. Hefurðu verið í hljómsveit?
Er í sveitaballagrúbbunni Wolfram með ekki ómerkari mönnum en Sigga Birni, Bogga og Kjötbeini Matsvein. Eina giggið okkar var í hljómsveitarherberginu á Gauknum á sínum tíma. Svo vorum ég, Raggi Ben og Kuti komnir langt með að stofna grúbbuna Spice Guys á sínum tíma þegar við vorum allir með sítt hár. Sú grúbba snérist reyndar lítið um tónlistarfluttning. Veit ekki alveg hvað hún átti að snúast um, held það hafi aðalega verið að brjóta hluti.

10. Hvaða tónlistarmann, bæði dáinn og lifandi, myndirðu helst vilja hitt?
Af þeim lifandi þá held ég að það yrði virkilega gaman að spjalla við Bob Dylan. En ég held það sé ekki gaman að tala við dáinn mann.

11. Hvaða tónleikar eru á döfinni sem þú hlakkar til að sjá?
Bíð spenntur eftir fyrsta giggi The Ramanamahamanams. Er það ekki annars á döfinni ..?

12. Hver er uppáhalds tónlistarbolurinn þinn?
Á enga tónlistarboli. Eða jú bíddu, keypti Metallica bol á tónlistarmarkaði Péturs Kristjáns þegar ég var 17 ára. Hann var allatíð full lítill á mig, en þar sem hann er eini tónlistarbolurinn minn, þá hlýtur hann að vera uppáhalds.

13. Hver er elsta tónlistarminning þín?
Fyrsta uppáhaldslagið mitt sem ég man eftir var I Want To Break Free með Queen. Það var reyndar aðalega út af myndbandinu. Fannst svo fyndið að sjá kall með yfirvaraskegg, eins og pabbi, í kvennmannsfötum að ryksuga. Enda kallaði ég það alltaf ryksugulagið.

14. Hvaða tónlistarmaður eða tónlistarkona myndirðu vilja að væri ástfangin(n) af þér?
Þú segir nokkuð. Það er svo mikið til af mjög fallegum söngkonum. En ég man ekki eftir neinni ákveðinni í augnablikinu sem ég er heitari fyrir en annari. Er það svindl ef ég vel bara Pussycat Dolls ..?

15. Hvaða tímabili sem tónlistarunnandi ertu ekki stoltur af?
Þó svo að tónlistarsmekkur minn sé búinn að víkka töluvert á síðustu árum, þá er ekkert tímabil frá því að ég byrjaði að hlusta sjálfur á tónlist (þ.e.a.s. ekki bara í útvarpi) sem ég skammast mín fyrir. Búin að vera nokkuð bein leið frá því að ég var að stelast í Guns N' Roses og Queen plötur bróðir míns 10 - 11 ára gamall þangað sem ég er staddur tónlistarlega í dag.

16. Hvort hélstu með Blur eða Oasis á sínum tíma?
Var bæði full mikið píkupopp fyrir minn smekk á sínum tíma. En ætli ég verði ekki að segja Blur, þar sem ég hataði Oasis á sínum tíma, og geri eiginlega enn.

17. Hvaða þrjár hljómsveitir myndirðu kalla þínar uppáhalds?
Sóló artistar eru eiginlega í uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Menn eins og Bob Dylan, David Bowie og Cat Stevens.

18. Hver er uppáhalds hljómplatan þín í plötusafninu þínu?
Þetta er nú eiginlega eins og að gera upp á milli barnana sinna, svo ég sleppi að svara þessari spurningu, þar sem ég ætla ekki að gera upp á milli þeirra.

19. Hvaða áratugur í tónlistarsögunni var bestur?
Erfitt val, ætli það sé ekki annað hvort 60's eða 70's

20. Hvað er uppáhalds kvikmynda sándtrakkið þitt?
Hefur fundist Tarentino og Guy Richie hafa tekist einna best upp í gegnum tíðina með að velja lög í myndirnar sínar. Myndir eins og Resovoir Dogs og Snatch.

Svo á ég víst að klukka fimm aðra, en ég nenni því ekki, svo ég klukka bara fjóra. Ég klukka Bogga, Láru (hún getur gert þetta þegar hún kemur frá Spáni) og Sindra (alveg að verða kominn tími á að hann fari að blogga oftar enn einu sinni á tveggja mánaða fresti) og Gumma (því hann hefur svo gaman af svona).






föstudagur, maí 12


Færsla
Finnst sem ég þurfi að blogga eitthvað, hef bara ekki nennt því, og nenni því eiginlega ekki heldur núna. Tengingin er svo fáránlega hæg hérna.
Er sem sagt kominn heim á hótel mömmum í Eyjum. Kom á mánudaginn, mætti í vinnu á miðvikudaginn, búið að vera temmilega mikið að gera. Er að fara aftur til Reykjavíkur á sunnudaginn til að flytja búslóðina inn til Bogga í nokkra daga áður en ég fæ nýju íbúðina.
Jæja, þetta er nóg af upplýsingum í bili.
Bæ.






föstudagur, maí 5


Lífið að loknum prófum
Ýmislegt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Fyrir það fyrsta þá er ég búinn í prófum, ótrúlegt en satt. Ákvað að fara bara í tvö próf á þessari önn, skipti aftur yfir í iðnaðarverkfræðina, svo ég hafði ekki not fyrir nema tvö af námskeiðunum sem ég var skráður í, og það féll þannig að bæði prófin komu hvort ofan í annað strax í upphafi prófatíðar svo ég kláraði núna um miðja vikuna. En ekki nóg með það, heldur gekk ég frá því að ég er að fara að flytja. Ekkert langt svo sem, bara á milli íbúða á stúdentagörðunum, er sem sagt að fara að færa mig í íbúð með 12 mánað leigu í stað 9 eins og ég er með núna. Ekkert vit í öðru, þótt ég verði í Eyjum í sumar. Búinn að semja við Bogga um að fá að henda draslinu mínu inn hjá honum þangað til að ég get sett það inn í nýju íbúðina. En annars þyrfti ég að vera að standa í þessum til færingum akkurat 26. maí, sem ér náttúrulega ómögulegt, daginn fyrir kosningar. En því miður þá er ég anskotan engu búinn að koma í verk frá því að prófunum lauk. Er búinn að vera fastur í CM eiginlega allan tímann. Reyndar ekki CM heldur Football manager, en hann er víst gerður af þeim sem gerðu gömlu góðu Championship manager hérna í denn, enda algjörlega ávanabindandi andskoti hér á ferð, sem er nær ómögulegt að slíta sig frá. En ég verð samt að fara að drullast til að gera eitthvað í þessu og koma mér heim og fara að vinna. Verður ljúft að komast í vinnu aftur.






þriðjudagur, maí 2


Siggi ?






Ég

er fæddur í Eyjum 1981

hef búið í Eyjum nær alla ævi

bý núna í Reykjavík

vinn sem möppudýr í smiðju í Garðabæ

er flokksbundinn Sjálfstæðismaður

veit ekki hvað ég get sagt fleira um sjálfan mig

býð þig hjartanlega velkominn á síðuna

e-Póstur

msn




Lesist á eigin ábyrgð

Blogg-óði maðurinn
Blogg-óða konan
Blogg-óði faðirinn
Þessi flúði land
Passið ykkur á þessum
Síra
Sýra
njé-2
Þessi kom á Þjóðhátíð
Oft gaman að þessum
Þessi er rokk-fróður
Þessi hefur áhuga á listum
Þessi kann að segja sögur
Þessi fær aldrei notið steríós
Þessi stuðlar að fjölgun mannkyns
Þessi ætlar að laga í mér lifrina
Þessi fór til Spáns
Þessi á dýptarmæli
Þessi fílar Bubba óhóflega mikið
Þessi styður Newcastle United
Þessi er mikið fyrir murtuna
Þessi stúderar í Danaveldi
Þessi er í Breskum leikskóla
Þessi kann á rússneskar bongótrommur
Þessi fann Jesúm
Þessi biður að heilsa
Þessi stjórnar bæ
Þessi kann að jóðla
Þessi valdi Hellisey
Foster's Blog
Foster's Net
VKB's Blog

Þetta skoða ég

Fréttir
Mogginn
Vísir
eyjar.net
Háskólinn
VKB
Dalurinn
Ægisdyr
Eyjabloggarar
B2.is
Google
Heimabankinn
Dagskráin
Árgangur '81
Leikjanet
Uncyclopedia
Encyclopedia
KÉSHÁM (NBA)
Öll tónlist
Eyverjar
IMDb
TV.com
YouTube
Reykjavík FM

Gamalt og mis gott

mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008
september 2008
október 2008
nóvember 2008
desember 2008
janúar 2009

Þakkir fá

blogskins
Main Site
Powered by TagBoard Message Board

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

eXTReMe Tracker