![]() |
|
|
fimmtudagur, september 25
Örþrifa ráð Helliseyinga
![]() Samkvæmt öruggum heimildum síðunnar eru Helliseyingar búnir að koma aumkunar- verðasta mannvirki Þjóðhátíðarinnar fyrir við Höllina í Vestmanna- eyjum. Þetta útspil þeirra Helliseyingja kemur ritstjórn síðunnar ekki á óvart. Enda þeir búnir að ganga um með hjartað í buxunum yfir því að Lundaballið yrði of fjölmennt allt frá því að fyrstu þrí Álsey- ingarnir skráðu sig. Eins og alþjóð veit eru Helliseyingar verkkvíðnir með eindæmum. Því eru þeir búnir að vera að bölsótast í öðruhverju horni í bænum yfir því að senn færi að fyllast í öll sæti á ballinu. Það væl þeirra virðist þó ekki hafa borið tilætlaðan árangur, því fólk hefur haldið áfram að skrá sig. Enda Lundaball slík skemmtun að meira að segja Helliseyingum ætti ekki að geta tekist að skemma það. Þess vegna virðast þeir hafa gripið til þess örþrifa ráðs að fæla fólk frá Höllinni með því að planta viftunni við hana. Það mun þó ekki stöðva okkur Brandarana í að mæta, enda búnir að semja aðgerðaráætlun sem miðar að því að komast klakklaust framhjá þessari hindrun. Gunni Ella Pé mun halda fyrir augun á okkur meðan við göngum inn. Kunnum við Gunna miklar þakkir fyrir að leggja þessa þolraun á sig, að fórna sér svo aðrir þurfi ekki að sjá viftuna. Þetta mun eflaust reyna á, og þótt hann muni væntanlega leggja sig fram við að líta undan verður hann sennilega eftir sig eftir þetta, og bið ég því þá sem hitta hann á ballinu að bjóða honum í glas.
þriðjudagur, september 23
Ofbeldi vs. peningar
Þegar ég settist upp í bílinn í morgun og skrúfaði frá útvarpinu mættu mér hinir óþarflega morgunhressu útvarpsmenn Bylgjunnar. En þar sem ég teygði mig til þess að skipta um stöð heyrði ég að þeir ætluðu að hleypa hlustendum í loftið. Eins leiðinlegir og mér jafnan þykja þessháttar dagskrárliðir var ég nokkuð spenntur fyrir þessum, enda stóð til að gefa fólki kost á að viðra skoðanir sínar á Kompásþætti gærkvöldsins. Ég hafði nefnilega séð umræddan þátt, og þar sem hann vakti hjá mér mun fleiri spurningar en hann gaf mér svör, fýsti mig að vita álit annara á honum. Sá tónn sem mér fannst ríkjandi hjá þeim sem hringdu inn kom mér þó á óvart. Stórum hluta þeirra virtist finnast aðgerðir árásarmannsins réttlætanlegar. Nú er ég alveg sammála því að þessi Ragnar (sá sem varð fyrir árásinni) virkar, bæði samkvæmt því sem maður hefur heyrt og lesið um hann og því sem kom fram í þættinum í gær, sem frekar skítlegur karakter. En það breytir því ekki að mér finnst í þessari afstöðu fólks kristallast það sem oft heyrast háværar gagnrýnisraddir um í kringum dómsuppkvaðningar í ofbeldismálum. Að Íslendingar virðast almennt líta fjárhagslegt tjón alvarlegri augum en líkamlegt. Þó svo að Ragnar hafi svikið fé útúr einhverjum, jafnvel með ólöglegum hætti. Sem ekki er hægt að heimta af honum til baka. Og jafnvel þótt Benjamín (árásarmaðurinn) telji sig eiga einhverjar persónulegar óuppgerðar sakir við hann. Réttlætir það ekki að gengið sé í skrokk á honum. Það sést greinilega á myndbandinu af atvikinu að Benjamín reyndi að stappa á höfðinu á Ragnari. Sama hvað Benjamín kann að segja, þá réttlætir það ekkert. Einhverjir vildu meina að árásin væri réttlætanleg þar sem Ragnar hefði verið að egna Benjamín til þess að ráðast á sig. Myndskeiðið sem var sýnt í Kompás var kannski eitthvað klippt til, en í því var ekkert að sjá sem réttlætti þessa árás. Reyndar finnast mér varla nokkur orð geta réttlætt það að gengið sé í skrokk á manni, hvað þá að reynt sé að stappa á höfði hans. Hinsvegar er spurningin alltaf til staðar um ábyrgð Kompáss í málinu. Enda svo sem ekki í fyrsta sinn sem þeir "leiða menn í gildru". En ólíkt t.d. máli Ágústs Magnússonar, þá er þarna raunverulegt afbrot fest á filmu. En Ágúst hafði "einungis" gert sig sekan um að mæla sér mót við barn sem ekki var til í raunveruleikanum og gat því, sem betur fer, ekki brotið á henni. Það vekur þess vegna óneitanlega upp spurningar, fyrst lögreglan virðist ekkert vilja eða geta gert í málinu, hver úrræði annara sem lenda í kúgurum eins og Benjamín sé. Fólks sem hefur ekki myndband sem sýnir málsatvik jafn greinilega og það sem Kompássmenn tóku af árásinni og aðdraganda hennar. Þó svo að lögreglustjóri hafi hvatt fólk til að kæra svona hrotta, hvort sem væri fyrir kúganir eða árásir, þá spyr maður sig til hvers? Ef ekki er einu sinni talin ástæða til að sækja mann til saka fyrir árás eins og þessa, þrátt fyrir að það hafi náðst á vídeó, vegna þess að lítið sást á fórnarlambinu, hvaða von eiga þá þeir sem einungis hefur verið hótað ofbeldi til þess að lögregla geti eitthvað í þeirra málum gert? Þó svo að ég leggi allajafna takmarkaðan trúnað á æsifréttamennsku eins og mér finnst þessi umfjöllun Kompáss bera keim af, gæti ég allt eins trúað því að handrukkarar vaðið uppi eins og Kompássmenn vilja vera láta. Allavega ef úrræði lögreglunnar eru ekki meiri en þessi þáttur bar með sér. En hinsvegar held ég að aðalpunkturinn sé sá að, miðað við viðbrögð fólks í morgunútvarpi Bylgjunnar og á síðunni hans Egils Helgasonar og víðar, fólki væri nær að líta í eigin barm næst þegar það hneykslast á dóm í ofbeldismáli og skammast yfir því að dómstólar virðist meta peninga meira en menn. Því ef meirihluti þjóðarinnar telur árás sem þessa réttlætanlega þar sem Ragnar hafi haft af einhverjum peninga, þá endurspeglar verðmætamat dómstóla einfaldlega verðmætamat þjóðarinnar.
miðvikudagur, september 17
Fratercula Arctica
Það væri veltilfundið að höfuðkokkur veiðifélagsins Ólafsson, Kjartan Ólafsson Vídó, kynnti sér vandlega uppskriftina í lok þessa myndbands fyrir næstu veiðiferð (hvenær nú sem hún verður). Brennivínslegnar lundabringur virka með öllu ómótstæðilegar, þó svo að handbrögð Skotans við veiðar eftir leiðsögn Suðureyingsins í Ellirey séu ekki til eftirbreytni.
þriðjudagur, september 16
Bara að spá
Ég er að spá í að fara að skrifa nafnið mitt Helgi Ólafz. Er það kúl?
föstudagur, september 12
Gott á hausnum?
![]() Er það virkilega ..?
miðvikudagur, september 10
Landsleikurinn
Legg til að næst verði bæjarstjórinn og bróðirinn fengnir til að syngja þjóðsönginn. Og hvað var með þennan dómara? Hvernig verða eiginlega svona hæfileikalaus dusilmenni alþjóðlegir dómarar ..? Nú er ég ekki hneigður til ofbeldis, en það á að taka svona menn og berja þá ...
Vestfirskur harðfiskur á 300
Önnur fréttin í hádegisfréttum Söðvar 2/Bylgjunnar var að heimsendir hafi ekki orðið í morgun. Það þurfti nú ekki að segja mér það. Ég tók alveg eftir því.
föstudagur, september 5
Íbúþróun í Vestmannaeyjum
Ef þessi þróun heldur áfram, þá verður kynjahlutfallið fljótlega orðið þannig að manni verði ekki stætt á öðru en að flytja heim til Eyja við fyrsta tækifæri.
miðvikudagur, september 3
Flugvöllurinn
Mikið afskaplega finnst mér oft umræðan um staðsetningu Reykjavíkurflugvallar á miklum villigötum. Sérstaklega málflutningur andstæðinga þess að hann sé í Vatnsmýrinni. Í dag, í framhaldi af beiðni Ólafs F. um nýja kosningu um flugvöllinn, skrifar Gísli granni þennan pistil um málið. Þar sem hann með þeirri hrokafullu kaldhæðni, sem mér finnst alltof oft einkenna málflutning þeirra sem vilja ólmir koma vellinum úr Vatnsmýrinni, spyr: „... hversu langan tíma það má taka [...] að komast frá miðju Reykjavíkur út á flugvöll. Núna tekur það um 5 mínútur. Er það hámarkið?“. Í mínum huga snýst málið ekki um það, og hefur aldrei snúist um það, hvort maður sé kortérinu lengur eða skemur að komast af flugvellinum niður að tjörn. Heldur snýst þetta, og mun alltaf snúast, um sjúkraflugið. Ég hef upplifað það að horfa á eftir föður mínum fara með sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum. Hann hafði fengið alvarlegt hjartaáfall, og hver mínúta sem leið áður en hann komst í aðgerð hefði getað skilið milli feigs og ófeigs. Blessunarlega gekk þetta allt hratt og örugglega fyrir sig og faðir minn komst undir læknis hendur í Reykjavík í tæka tíð, með aðeins örfáar mínútur upp á að hlaupa. Svarið við spurningunni hans Gísla er því: Nei, 5 mínútur eru ekki hámarkið fyrir því hversu langan tíma það má taka að komast frá miðju Reykjavíkur út á flugvöllinn. En 5 mínútur er hámarkið fyrir því hversu langan tíma það má taka að komast af flugvellinum og á sjúkrahúsið. Ég er algjörlega á móti því, miðað við þær áætlanir sem eru uppi í dag varðandi nýtt háskóla sjúkrahús, að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni. Landspítalinn, háskóla sjúkrahúsið, hátækni sjúkrahúsið eða hvað þið viljið kalla þetta, er ekki bara fyrir höfuðborgarbúa. Þar er veitt ýmis þjónusta sem ekki er hægt að sækja annarstaðar á landinu. Oft og tíðum er það bráðaþjónusta, sem getur ráðið því hvort fólk lifi eða deyi. Viljinn til þess að halda flugvellinum í Vatnsmýrinni hefur því ekkert með fjarlægðina frá tjörninni, Austurvelli eða Laugaveginum að gera. Þess vegna er mér slétt sama þótt flugvöllurinn verði færður til Keflavíkur, svo framarlega sem nýtt háskóla sjúkrahús rísi þar líka. En að ætla sér að flytja flugvöllinn út fyrir borgarmörkin en reisa nýtt háskóla sjúkrahús við Hringbrautina er algerlega út í hött. Það er ekki bara út í hött, heldur getur það hreinlega verið lífshættulegt fyrir þá fjölmörgu landsbyggðarbúa sem þarf að flytja í skyndi á sjúkrahús í Reykjavík ár hvert. |
Ég er fæddur í Eyjum 1981
Lesist á eigin ábyrgð Blogg-óði maðurinn
Þetta skoða ég Fréttir
Gamalt og mis gott mars 2004 Þakkir fá blogskins |